Fyrir þá sem eru búnir að fá leið á fjölspilunarkortunum í Brütal Legend eru hér frábærar fregnir: Í byrjun nóvember munu tvö ný fjölspilunarkort verða gefin út yfir Xbox Live og PlayStation Network.
Kortapakkinn heitir Tears of Hextadon og inniheldur tvö kort: Circle of Tears, sem er umkringt vatni, og Death’s Fjord, sem gerist víst á ísi lagðri fjallaslóð þar sem spilendur þurfa að ferðast yfir víðfeðm svæði til að komast í aðdáendagoshveri (fan geysers).
Tears of Hextadon er væntanlegur á Xbox Live 3. nóvember og PlayStation Network 5. nóvember. Á Xbox Live mun pakkinn kosta 400 MS punkta á meðan pakkinn verður gjaldfrjáls á PlayStation Network… til 19. nóvember, en eftir það leggst vægt gjald, um 5 dollarar, á pakkann.
Brütal Legend er, fyrir þá sem ekki vita nú þegar, blanda af sandboxævintýri og rauntíma herkænskuleik þar sem Eddie Riggs (talsettur af Jack Black) sem endar í heimi þungarokks þar sem allt er farið til fjandans og hann þarf að bjarga heiminum. Ekki slæmt, eyh?
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
GameTíví




Er Leikurinn kominn í elko og ef svo er hvað kostar hann
Leikurinn er kominn út í Elko og kostar þar 10.995 kr.