- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for October, 2009

Torchlight er mættur – prufuútgáfan líka!

torchlight

Fyrr í dag kom út hasarhlutverkaleikurinn Torchlight. Leikspilunin byggir nær algjörlega á Diablo seríunni, sem er ekki furða því nokkrir af fyrrum starfsmönnum Blizzard North, sem gerðu einmitt Diablo leikina, stofnuðu Runic Games, sem gerir Torchlight, fyrir um ári síðan.

Líkt og í Diablo fara Torchlight spilendur í hlutverk persónu sem þarf að kafa djúpt ofan í námurnar í grenndinni við bæinn Torchlight, en þar er ýmislegt skuggalegt á seyði. Á móti hetjunni, en hægt er að velja úr þremur mismunandi hetjum til að spila, taka heilu herirnir af skrímslum sem missa vænan skammt af gulli, vopnum, brynjum og öðrum gersemum þegar þeim er slátrað.

Ef fólk vill kynna sér leikinn betur er hægt að skoða myndbandið hér að neðan, kíkja inn á heimasíðu leiksins, eða skella sér á Steam og sækja prufuútgáfuna.

Þá er hægt að kaupa leikinn í gegnum Steam, Direct2Drive, eða beint í gegnum vefsíðu leiksins á 19,99 bandaríkjadali.

Kveðja,
GameTíví

Brütal Legend aukaefni væntanlegt í nóvember

Fyrir þá sem eru búnir að fá leið á fjölspilunarkortunum í Brütal Legend eru hér frábærar fregnir: Í byrjun nóvember munu tvö ný fjölspilunarkort verða gefin út yfir Xbox Live og PlayStation Network.

Kortapakkinn heitir Tears of Hextadon og inniheldur tvö kort: Circle of Tears, sem er umkringt vatni, og Death’s Fjord, sem gerist víst á ísi lagðri fjallaslóð þar sem spilendur þurfa að ferðast yfir víðfeðm svæði til að komast í aðdáendagoshveri (fan geysers).

Tears of Hextadon er væntanlegur á Xbox Live 3. nóvember og PlayStation Network 5. nóvember. Á Xbox Live mun pakkinn kosta 400 MS punkta á meðan pakkinn verður gjaldfrjáls á PlayStation Network… til 19. nóvember, en eftir það leggst vægt gjald, um 5 dollarar, á pakkann.

Brütal Legend er, fyrir þá sem ekki vita nú þegar, blanda af sandboxævintýri og rauntíma herkænskuleik þar sem Eddie Riggs (talsettur af Jack Black) sem endar í heimi þungarokks þar sem allt er farið til fjandans og hann þarf að bjarga heiminum. Ekki slæmt, eyh?

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

brutal_legend11

Gott tilboð í kreppunni!

stalker

Núna og til 2. nóvember er tilboð á STEAM á leiknum S.T.A.L.K.E.R, margir spiluðu ekki þennann leik af því að hann var böggaður þegar hann kom út og þurfti næstum ofurtölvu til að spila hann. En nú er öldin önnur og er hægt að keyra hann á þokkalegri leikjatölvu án nokkura vandræða, og búið er að laga alla gallana sem voru í honum þegar hann kom út.

Tilboðið er hreint út sagt ótrúlegt og ætti enginn að láta það fram hjá sér fara, en leikurinn er á aðeins 5 dollara eða 600 kall!

Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið þennan leik þá er einfaldast að lýsa honum sem blöndu af leikjum eins Fallout 3 og Modern Warfare.

Hér er svo smá gameplay vídeó til að byggja upp matarlystina:

Engin þörf á uppsetningu á Final Fantasy XIII

Eins og margir PlayStation 3 hafa fengið að kynnast þarf oftast að setja leikina upp á harða disknum. Hinn frábæri leikur Bioshock, til að mynda, þarfnast um það bil 5 gígabæta pláss á harða disknum til að spila. Eftir því sem leikjasöfnin stækka, þeim mun minna verður plássið sem er eftir á harða disknum. Þetta segir á fréttavefnum Kotaku.

Final Fantasy XIII er ekki einn þessara leikja. Þetta þýðir að hægt er að spila leikinn án þess að þurfa að hreinsa út af harða disknum óþarfa skrár, eins og til að mynda uppsetningarskrár fyrir Resident Evil 5, sem flestir ættu að hafa fengið leið á, nú þegar hinn miklu flottari Uncharted 2 er kominn út.

Og það er ekki það eina, heldur eru tiltölulega fáir staðir þar sem leikurinn þarf að hlaða sér. Að sögn Motomu Toriyama hjá Square-Enix unnu starfsmenn fyrirtækisins baki brotnu við að finna leiðir til að minnka hleðslutíma frekar snemma á framleiðslustiginu svo hægt sé að spila leikinn án nokkurra tafa inn á milli.

Þá kemur einnig fram að Final Fantasy XIII muni styðja bikarakerfi PS3 leikjatölvunnar, en það ætti líkast til ekki að koma á óvart því Sony setur það sem skilyrði að framleiðendur styðji við kerfið í leikjum sem koma út þessa dagana.

Heimildir: Kotaku

ff13_01

Svona lítur God of War safnið í HD upplausn

god-of-war-collection1

Snemma á næsta ári munu Sony endurgefa God of War og God of War II leikina í einum leik undir heitinu God of War: Collection fyrir PS3 vélina. God of War leikirnir þykja með þeim betri leikjum sem voru gefnir út á PS2 vélina og á næsta ári verða þeir gefnir út í hágæðum í samræmi við núverandi kynslóð leikjatölva.

Hér fyrir neðan má sjá nýtt myndband sem sýnir hvernig leikirnir munu koma til með að spilast á PS3 vélinni.

Kveðja,
Game Tíví

Mass Effect 2 fær staðfestan útgáfudag

Electronic Arts tilkynntu nú á dögum að framhaldið af einum besta hlutverka leik fyrr og síðar, Mass Effect 2 hafi fengið staðfestan útgáfudag og verður leikurinn gefinn út 26. janúar á næsta ári. Sannir hlutverkaleikja áhugamenn ættu alls ekki að láta þennan grip fram hjá sér fara því hann verður klárlega einn af leikjum ársins 2010, það er bókað mál.

Þeir sem hafa ekki spilað fyrri leikinn nú þegar og eiga annað hvort Xbox 360 leikjavél eða þá nokkuð góða PC einkatölvu ættu að verða sér um gripinn fljótlega. Mass Effect kom fyrst út á Xbox 360 árið 2007 og ennþá daginn í dag er óhætt að mæla með honum.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

MassEffect_275

World of WarCraft spilarar: Munið að uppfæra reikningana ykkar!

Segjum svo að dagurinn í dag sé 13. nóvember 2009. Þið kveikið á World of WarCraft eins og venjulega, skrifið inn aðgangsorðið, og ýtið á “Login”… og það virkar ekki. “Andskotans helvítis,” heyrist hugsanlega úr ykkur þar sem þið strögglist við að skrifa inn reikningsnafnið (“icelandftwone”) og lykilorðið (“simba12345″). Og enn gengur ekkert. Því næst er farið á World of WarCraft spjallborðin og skrifaður þráður þar sem hvert einasta orð er skrifað í hástöfum. “AF HVERJU GET ÉG EKKI SKRÁÐ MIG INN?!?!?!?!?!?!??!?!?” Svo kæmi í ljós að þið hafið bara ekkert verið að fylgjast með.

Sem betur fer er 14. október í dag, svo það er enn mánuður í að þetta gerist. World of WarCraft spilandi góður, ertu búin(n) að uppfæra World of WarCraft reikninginn þinn í Battle.net reikning? Það er um að gera að vera fljótur að því þar sem, jú, illu er best af lokið! Farðu einfaldlega á eu.battle.net og fylgdu leiðbeiningunum þar.

Það eru ekki eintóm leiðindi sem fylgja þessu því þeir sem breyta reikningum sínum fá sent í pósthólfið allra persóna sinna krúttlega mörgæs að launum.

Ekki slæm skipti það, er það nokkuð?

Kveðja,
GameTíví

oswald

Dragon’s Lair er líklega væntanlegur á DSiWare

Dragon’s Lair hefur komið út á allan andskotann í gegnum tíðina, allt frá því leikurinn var gefinn út á laserdisc fyrir rúmlega 26 árum. Eftir að hafa verið endurgerður á ansi margar leikjatölvur, nú síðast á Nintendo GameCube og PlayStation 2 undir nafninu Dragon’s Lair: Special Edition, er leikurinn enn og aftur væntanlegur, í þetta sinn á Nintendo DSi. Það má í það minnsta lesa út úr upplýsingum sem birtust á vefsíðu USK (og ritarar GamerBytes rákust á), sem m.a. sjá um að aldurstakmarka (og banna) tölvuleiki í Þýskalandi.

Þar sem leikurinn mun líklega ekki styðja venjulegar Nintendo DS vélar gera flestir ráð fyrir því að um sé að ræða niðurhalanlegan DSiWare leik frekar en leik á hefðbundnum minniskortum.

Fyrir þá sem ekki þekkja Dragon’s Lair þá er það í raun teiknimynd sem hægt er að stjórna, og er líklega hægt að kalla afa “quick time atburða” í tölvuleikjum, þar sem leikmenn þurfa að vera snarir í snúningum og velja réttan takka. Plottið er rosalega einfalt: Dirk hinn djarfi þarf að bjarga Daphne prinsessu úr kastala galdramanns sem er vel gætt af illa drekanum Singe.

Stóra spurningin er auðvitað hvenær leikurinn kemur. Hver veit?

Heimildir: GamerBytes

Kveðja,
GameTíví

dirk-the-daringDirk hinn djarfi hefur enn og aftur komið sér í klípu.

Í næsta þætti: Einvígið – Óli vs Sverrir, rematch!

fire2

Jæja þá er komið að næsta einvígi, síðast tapaði Sverrir og þurfti að “pulsa sig” all hressilega :)

Nú er komið að Sverri að skora á Óla og að þessu sinni var það Street Fighter sem varð fyrir valinu.

Þið völduð refsinguna og það sem þið vilduð, var að sá sem tapaði þyrfti að smakka eina af sterkustu sósum sem hægt er að fá á þessari pláentu.

Fyrir áhugasama þá er hægt að lesa um sósuna:

Hér og Hér

Nú er bara að sjá hver sigrar og hver þarf að smakka fljótandi helvíti, ekki missa af næsta þætti af Game Tíví :)

Kv. Game Tíví.

Oddworld leikirnir væntanlegir á Steam og PlayStation Network

Lorne Lanning, meðstofnandi fyrirtækisins Oddworld Inhabitants og faðir Oddworld leikjaseríunnar færði heiminum frábær tíðindi í viðtali við leikjasíðuna Bitmob þegar hann sagði að Oddworld leikir sem áður hafa komið á Playstation og Xbox myndu verða fáanlegir innan skamms í gegnum Playstation netverslunina  og Steam þjónustuna.

Oddworld: Abe’s Oddysee og Oddworld: Abe’s Exoddus komi báðir á Playstation og PC og eru fáanlegir yfir Steam, en til viðbótar munu leikirnir brátt verða fáanlegir í gegnum PlayStation netverslunina fyrir PlayStation 3 og PlayStation Portable innan skamms.

Oddworld: Munch’s Oddysee og Oddworld: Stranger’s Wrath hafa hins vegar eingöngu verið fáanlegir á Xbox hingað til, en til allrar hamingju ætla snillingarnir hjá Oddworld Inhabitants að færa þá yfir á PC einkatölvur og selja þá í gegnum Steam netverslunina.

Þeir sem ekki kannast við Oddworld leikina geta kynnt sér þá frekar á heimasíðu Oddworld Inhabitants, Oddworld.com.

Heimildir: Bitmob

Kveðja,
GameTíví

abeÞessi myndarlega vera heitir Abe og er aðalpersóna fyrstu tveggja Oddworld leikjanna.