- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for September, 2009

Page 3 of 3

Game Tíví hefst trailerar…

gtvnew1

Nú styttist í að Game Tíví hefji göngu sína aftur á skjáeinum, en við förum í loftið fimmtudaginn 17. september kl. 19:30, af því tilefni byrja trailerar á skjáeinum í kvöld og hér er smá forskot á þá :)

Kv. Game Tíví

Skráðu þig í Star Trek Online betaprufuna!

star-trek

Cryptic Studios, framleiðendur City of Heroes og City of Villains, vinna þessa dagana hörðum höndum að framleiðslu Star Trek Online, sem byggir á samnefndri seríu kvikmynda, sjónvarpsþátta og bókaflokka svo eitthvað má nefna.

Leikurinn á að vera tilbúinn 31. mars á næsta ári, svo það er kominn tími á að opna fyrir skráningar í lokaða betaprufu sem fram fer á næstu mánuðum.

Þeir sem hafa keypt sér 6 mánaða eða lífstíðar áskrift að næsta leik Cryptic Studios, Champions Online, hafa reyndar þegar tryggt sér aðgang að betaprufunni, en þeir sem hafa ekki enn gert það geta skellt sér á þessa síðu og skráð sig í hana.

Star Trek Online hefur gengið í gegnum súrt og sætt frá því hann var fyrst tilkynntur fyrir nokkrum árum, en það er loksins ljós við enda ganganna. Cryptic segir leikinn vera allra fyrsta fjölspilunarleikinn sem spilast á bæði jörðu niðri og í geimnum.

Núna geta allir verið Dr. Spock.

Heimildir: Shacknews

Kveðja,
GameTíví

Rock Band Unplugged (PSP) – Leikjadómur

rbu_00

Guitar Hero og Rock Band leikirnir hafa farið sigurför um heiminn á öllum tegundum heimaleikjatölva frá því Harmonix og RedOctane gáfu út Guitar Hero á Playstation 2 í nóvember 2005. Við erum þegar komin ansi langt frá þeim stað sem við byrjuðum. Við höfum vaxið upp úr því að spila bara með gítarfjarstýringunni og yfir í það að hafa heilu hljómsveitirnar með bassa, trommum og hljóðnema fyrir söng. Guitar Hero er núna ekki eina serían sem er í boði því árið 2006 keypti Activision RedOctane og Harmonix fór saman í eina sæng með Electronic Arts árið 2007 og setti á legg Rock Band seríuna.

Rock Band Unplugged á PSP er andsvar Harmonix og Electronic Arts gegn Guitar Hero On Tour leikjunum fyrir Nintendo DS. Leikurinn reynir þó ekki að gera sömu mistök og Guitar Hero On Tour með því að láta sérstakan aukahlut fylgja með til að spila leikinn. Þess í stað hverfur leikurinn aftur til fyrstu leikja Harmonix, Frequency og Amplitude, þar sem stjórntæki tölvunnar eru látin nægja til þess að drífa leikinn áfram. Harmonix voru þó ekki einir í að þróa leikinn því Backbone Entertainment, sem hefur höndlað PSP leiki frá því þeir gerðu leikinn Death Jr. árið 2005, voru fengnir til að hjálpa til við framleiðsluferlið.

Þrátt fyrir að það sé ekki sami fílingur að spila án hljóðfæris gerir það Rock Band Unplugged ekkert verri – hann er alveg jafn ávanabindandi og aðrir leikir í svipuðum gír. Maður fær svipaða spennu úr því að spila More Than a Feeling á PSP og á öðrum leikjatölvum, og það er alveg jafn mikil ánægja sem fylgir því að fá fimm stjörnur í PSP útgáfu leiksins.

Spilunin í Rock Band Unplugged er alveg eins og maður býst við: Fjögur mislituð tákn, sem tákna nótur, koma skrunandi niður skjáinn, og þegar þær lenda á réttum stað ýtir maður á viðeigandi takka til að spila nótuna. Í staðinn fyrir að stjórna einu hljóðfæri, líkt og í stærri gerðum leiksins, spilar maður á fjögur hljóðfæri, þ.e.a.s. gítar, söng, trommur og bassa, og þarf maður að skipta á milli þeirra til að halda þeim gangandi. Til þess að gera leikinn aðeins minna kaotískan hafa framleiðendur leiksins skipt lögunum niður í “frasa.” Hver frasi samanstendur af nokkrum nótum og ef allar nótur í frasanum eru rétt spilaðar heldur hljóðfærið áfram að spila sjálfkrafa um nokkra stund og óhætt er að skipta um hljóðfæri og spila frasa þar. Aftur á móti lengist frasinn ef ein feilnóta er slegin í frasa og að lokum hætta önnur hljóðfæri að spila, og því lengur sem þau eru stopp, því meiri líkur eru á að allt fari í kleinu og maður falli á laginu. Fyrir að klára hvern frasa hækkar stigamargfaldarinn um einn, en hæst er hægt að fá fimmfaldan margfaldara. Ofan á þetta bætist svo við að sumar nótur eru hvítar – sem þýðir að ef maður ýtir rétt á þær allar hækkar orkustikan manns, og að lokum getur maður svo ýtt á viðeigandi takka og notað uppsöfnuðu orkuna til að leysa overdrive úr læðingi sem eykur stigamargfaldarann – ef maður er með fullan margfaldara fær maður ellefu sinnum fleiri stig fyrir hverja nótu en ef margfaldarinn væri einfaldur. Flest lög innihalda í það minnsta eitt sóló, þar sem leikurinn skiptir sjálfkrafa yfir á ákveðið hljóðfæri og maður á einfaldlega spila sólóið í gegn. Það hljómar ekki flókið að spila leikinn, er það nokkuð?

rbu_01

Líkt og Guitar Hero og Rock Band fer Rock Band Unplugged eftir “easy to learn, difficult to master” formúlunni. Það eru fjögur erfiðleikastig í leiknum: Easy, Medium, Hard og Expert. Á fyrstu þremur erfiðleikastigunum er tveggja takka nótum beitt gegn manni, en þegar maður er kominn á expert byrja þrigga takka nótur að blanda sér í hasarinn, sem gerir leikinn enn meira krefjandi – og að mínu mati skemmtilegri. Að lokum verður það eitt að ljúka lagi afrek út af fyrir sig – og þótt leikurinn gefi manni ekki mikið meira en nokkra aura, opni fyrir einhvern nýjan hlut, eða gefi manni nokkra aðdáendur til viðbótar, þá fellur yfir mann ákveðin ánægjutilfinning sem hvetur mann til þess að halda áfram á sömu braut. “Bara eitt lag í viðbót.”

Hægt er að velja um nokkur mismunandi modes. Quickplay leyfir manni að spila eitt eða fleiri lög án þess að eyða tíma í að velja hljómsveit og slíkt. Tour leyfir manni að stofna sína eigin hljómsveit, dressa upp alla meðlimi hennar, velja lógo og hljóðfæri, velja sér umboðsmann og ferðast á milli borga og spila á tónleikum. Eftir því sem maður klárar fleiri áskoranir opnast fleiri borgir til að spila í, fleiri lög til að spila, og fleiri áskoranir til að ljúka. Eftir hverja áskorun, hvort sem hún samanstendur af einu lagi eða fleiri, fær maður pening sem hægt er að eyða í ný föt, nýja klippingu og ný hljóðfæri, og hljómsveitin fær fleiri aðdáendur, sem opnar fyrir nýja hluti og nýjar áskoranir.

Í Band Survival Mode eru frasar fjarlægðir úr leiknum með öllu og þess í stað þarf maður að skipta um hljóðfæri reglulega til að koma í veg fyrir að þau klikki. Þá er einnig hægt að fara í Warmup Mode þar sem hægt er að einbeita sér að einu hljóðfæri og spila það í gegnum allt lagið (að undanskildum sólóköflum). Fleira var það ekki. Það sem kemur helst á óvart er að það er ekki hægt að spila leikinn á móti öðrum, hvort sem það er yfir netið eða ad-hoc. Einstaklega undarlegt í ljósi þess að það er þráðlaust netkort í PSP vélinni. Leikurinn er, hvort sem manni líkar betur eða verr, einspilunarleikur, og að því leyti finnst mér Harmonix hafa tekið kolranga ákvörðun. Það hefði gefið leiknum algjörlega nýja vídd.

Það sem fer hvað mest í taugarnar á manni, og þá mun meira en fjarvera fjölspilunarmöguleika, er hvað leikurinn leggur mikla ofuráherslu á að vista þegar þess þarf ekki. Ef maður ætlar að breyta hljómsveitarmeðlimum og fer þá í þá valmynd, en hættir við, þá heimtar leikurinn að vista breytingarnar sem urðu ekki gerðar. Svo fer maður og spilar lag, og maður klikkar á einhverju og manni gengur ekki eins vel og vanalega, fær færri stig en eðlilegt er og þess háttar, og samt sem áður heimtar leikurinn að vista. Leikurinn er alltaf að vista – og þrátt fyrir það vistast staða manns ekki ef maður slekkur á leiknum án þess að fara aftur til baka í aðalvalmynd leiksins. Þessu þurfti maður að kynnast erfiða veginn – ef leikurinn verður batteríslaus í miðju lagi, þá er allur sá tími sem maður hefur ekki farið til baka í aðalvalmynd leiksins farinn í súginn, þrátt fyrir að leikurinn heimti að vista eftir hvert einasta lag sem maður spilar.

rbu_02

Í leiknum eru 41 lög, og er hvert eitt og einasta þeirra byggt á upphaflegu masterupptökunum. Engin cover lög í þessum leik, nokkuð sem er eiginlega orðið standard í þessari týpu leikja. Því miður eru flest lög hefur maður spilað í hinum Rock Band leikjunum, sér í lagi Rock Band 2; einungis níu lög hefur maður ekki heyrt í seríunni áður. Lagalistinn er þó, að mínu mati í það minnsta, ansi þéttur, og inniheldur margra gullmola á borð við Less Talk More Rokk eftir Freezepop (sem hefur ekki birst síðan í Guitar Hero II), Laid to Rest með Lamb of God (sem er einnig hluti af DLC í Rock Band) og ABC í flutningi Jackson Five (sem hefur ekki heyrst í neinum leik hingað til). Því miður hefur Harmonix ákveðið að fara ákveðna leið til að lengja líftíma leiksins með því að láta mann spila sömu lögin aftur og aftur í mismunandi áskorunum. Ef maður situr lengi er maður sífellt að heyra sömu lögin, og maður hefur bara ákveðið mikla þolinmæði við að spila í gegnum trommurnar hjá Offspring. Þess má geta að allan lagalistann má finna neðst í þessari færslu.

Fyrir þá sem vilja meira er hægt að kaupa fleiri lög í tónlistarverslun sem hægt er að nálgast í gegnum aðalvalmynd leiksins. Það er að vísu vandkvæðum bundið fyrir íslendinga að kaupa inneign til að eyða í versluninni þessa dagana, en það mun lagast 1. október þegar Evrópsku Playstation Network kortin koma á markað. Það er hins vegar spurning hvort það sé þess virði að kaupa þessi lög þar sem það er eingöngu hægt að spila þau í Rock Band Unplugged; þau virka s.s. ekki í Rock Band eða Rock Band 2 á Playstation 3. Verðið á hverju lagi er á svipuðu reiki og lögin fyrir Rock Band og Rock Band 2 og það er spurning um hvort að leikur sem leyfir manni ekki að spila á fjögur mismunandi hljóðfæri, og gefur okkur þannig 3-4 mismunandi leiðir til að spila það í gegn, sé peningsins virði. Því verður hver að svara fyrir sig.

Eins og áður sagði inniheldur leikurinn eingöngu masterupptökur og hljómar hvert lag alveg einstaklega vel í tækinu knáa – svo fremur sem maður notar heyrnartól. Ef maður notar hátalara vélarinnar hljóma lögin eins og þau séu spiluð úr dós, en þegar maður skellir heyrnartólum á sig fær maður að heyra einhver bestu hljómgæði sem finnast í PSP leik. Þegar maður spilar sig svo í gegnum lögin heyrist alltaf aðeins hærra í hljóðfærinu sem maður er að spila. Með öðrum orðum á leikurinn skilið nánast fullt hús stiga fyrir hljóm, enda ekki við öðru af búast í leik af þessu tagi.

rbu_03

Grafík leiksins er í skárri kantinum. Það er um nóg af mismunandi borgum – og þar af leiðandi sviðum – til að velja um, allt frá New York til Shanghai og Reykjavíkur. Hljómsveitarmeðlimir eru að sjálfsögðu einnig í fullri þrívídd, en það er í hreyfingum sem þeir fá falleinkunn. Það skiptir litlu máli hvað er að gerast í laginu, þeir hreyfa sig ekki í takt við tónlistina heldur fara algjörlega sínar eigin leiðir. Þá kemur fyrir að rammatíðnin fari örlítið niður, en aldrei það lengi að það valdi einhverjum glundroða. Grafíkin er kannski ekki sterkasta hlið leiksins, en notendaviðmótið er afar slick og vel hannað.

Þegar á heildina er litið er Rock Band Unplugged afar eigulegur leikur fyrir PSP eigendur. Leikurinn fer sömu leið og aðrir Rock Band leikir, en hverfur samt aftur til Frequency og Amplitude hvað stýringar varðar. Hann er alveg jafn ávanabindandi – ég festist oft í honum, gat einfaldlega ekki hætt. Mikilvægustu partar leiksins, það er að segja lagaúrvalið og hljómgæðin, eru afar góðir, og grafíkin er þokkaleg, sérstaklega notendaviðmótið. Það eru þó ýmsir hlutir sem plaga leikinn. Það vantar fleiri lög sem við höfum ekki heyrt áður í leik sem þessum, þótt leikurinn sé sífellt að vista þá vistar hann samt ekki framfarir manns í leiknum, og svo eru einstaka vandamál með dýfu í rammatíðni.

Rock Band Unplugged á PSP fær því 4 rokkhljómsveitir af 5 mögulegum.

Þessi gagnrýni er birt á bæði GameOver.is og GameTíví.is.

Allur lagalistinn:

2000s
AFI – “Miss Murder” *
All-American Rejects – “Move Along”
Audioslave – “Gasoline” *
Black Tide – “Show Me the Way” *
Freezepop – “Less Talk More Rokk” *
Jimmy Eat World – “The Middle”
The Killers – “Mr. Brightside”
Lacuna Coil – “Our Truth”
Lamb of God – “Laid to Rest”
Modest Mouse – “Float On”
Queens of the Stone Age – “3′s and 7′s”
System of a Down – “Chop Suey!”
Tenacious D – “Rock Your Socks” *

1990s
3 Doors Down – “Kryptonite” *
Alice in Chains – “Would?” *
Blink 182 – “What’s My Age Again” *
Foo Fighters – “Everlong”
Judas Priest – “Painkiller”
Lit – “My Own Worst Enemy”
Lush – “De-Luxe”
Mighty Mighty Bosstones – “Where’d You Go?”
Nine Inch Nails – “The Perfect Drug”
Nirvana – “Drain You”
The Offspring – “Come Out and Play (Keep ‘em Separated)”
Pearl Jam – “Alive”
Smashing Pumpkins – “Today”
Social Distortion – “I Was Wrong”
Soundgarden – “Spoonman”
Weezer – “Buddy Holly”

1980s
Billy Idol – “White Wedding Part 1″
Bon Jovi – “Livin’ on a Prayer”
Dead Kennedys – “Holiday in Cambodia”
Motörhead – “Ace of Spades”
The Police – “Message in a Bottle”
Siouxsie & the Banshees – “The Killing Jar”

1970s
Boston – “More Than a Feeling”
Jackson 5 – “ABC” *
Jethro Tull – “Aqualung”
Kansas – “Carry on Wayward Son
Rush – “The Trees”

1960s
The Who – “Pinball Wizard”

Ezio verður í banastuði í Assassins Creed 2

assassins-creed-2

Ef horft er á myndbandið hér fyrir neðan að þá lítur allt út fyrir það að Assassins Creed 2 eigi eftir að verða stærri, betri, flottari og vonandi skemmtilegri heldur en sá fyrri. Ezio Auditore di Firenze, afkomandi Altaïr, lætur að sjálfsögðu ekkert stöðva sig og mun þess vegna beita ýmsum aðferðum til þess að ljúka verki sínu.

Þegar Assassins Creed lauk skildi leikurinn eftir sig ófáar spurningar sem fengust engin svör við. Nú fer framhaldið loksins að koma út, þann 20. nóvember, sem mun vonandi skýra nokkra atburði sem áttu sér stað í fyrri leiknum.

Spilun leiksins lítur alveg ljómandi vel út eins og sést á myndbandinu hér fyrir neðan. Ezio myndi gjörsamlega sigra forföður sinn Altaïr ef svo kæmi fyrir að þeir skildu þurfa berjast upp á líf og dauða, hvernig sem það ætti nú að fara fram.

Kveðja,
Game Tíví

The Ballad of Gay Tony er væntanlegur þann 29. október

eflcfob580pxheaderimg

Á meðan GTA IV var enn í framleiðslu tóku Microsoft stórt skref með því að eigna sér einkarétt á tveimur aukapökkum í tengslum við leikinn. Fyrri aukapakkinn, The Lost & Danmed  kom út fyrr á þessu ári og skilaði inn miklum gróða fyrir fyrirtækið.

Nú um þessar mundir vinna Rockstar North hörðum höndum við að ljúka við seinni aukapakkanum sem heitir á því skemmtilegu nafni The Ballad of Gay Tony. Aukapakkinn hefur nú þegar fengið staðfestan útgáfudag, þann 29. október næstkomandi, og verður pakkinn fáanlegur í gegnum Xbox Live Marketplace og í verslunum.

Á sama tíma og aukapakkinn verður gefinn út munu Rockstar gefa út annan pakka sem inniheldur bæði The Lost & Danmed og The Ballad of Gay Tony, undir nafninu Episodes From Liberty City. Allir Xbox 360 eigendur sem eiga GTA IV nú þegar ættu að tékka á The Ballad of Gay Tony þegar hann kemur út, eingöngu fyrir Xbox 360.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Kíkið á þetta magnaða myndband úr Modern Warfare 2

mw2

Nú ættu allir að vera búnir að merkja inn á dagatalið sitt, þann 10. nóvember kemur Modern Warfare 2  út. Ef ekki, að þá skulu þið gera það sem snöggvast!

Leikurinn lítur stórfenglega vel út og er nokkuð bókað mál að leikurinn eigi eftir að sópa að sér verðlaunum líkt og fyrri leikurinn gerði.

Myndbandið hér fyrir neðan sýnir nýjan spilunar möguleika, „flag runner“ þar sem leikmenn keppast við að koma fánum á eftirfarandi staði.

Kveðja,
Game Tíví

Nýr Scene It? leikur kemur út á allar gerðir leikjatölva um jólin

Warner Bros. tilkynntu í dag að fyrirtækið væri að vinna að nýjum Scene It? leik, Scene It? Bright Lights! Big Screen! fyrir allar núverandi kynslóð leikjatölva. Fyrir þá sem ekki þekkja til leiksins Scene It? að þá er leikurinn í anda Buzz! leikjanna sem gengur út að svara spurningum sem birtar eru á skjáinn. Allt að fjórir geta spilað leikinn saman með sérhannaðri fjarstýringu þar sem leikmenn velja á milli fjóra hnappa til þess að velja réttu svörin við eftirfarandi spurningum.

Líkt og nafnið gefur til kynna, Séð þessa? á íslensku, að þá inniheldur leikurinn spurningar í tengslum við kvikmyndir. Fyrri Scene It? leikurinn var hins vegar eingöngu gefinn út fyrir Xbox 360 en framleiðendur leiksins hafa tekið þá ákvörðun að stækka við sér með því að gefa út nýja leikinn, einnig fyrir Playstation 3 og Nintendo Wii.

Ekki er vitað hvort þeir muni gefa út nýjar fjarstýringar fyrir PS3 eða Wii, eða hvort að buzzarnir muni styðja við leikinn. Þeir sem hafa gaman að fróðleiks spurningarleikjum ættu að kíkja á Scene It? Bright Lights! Big Screen! þegar hann lendir í verslunum um jólin.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

sceneitlogo

God of War 1 og 2 mæta á PlayStation 3 fyrir jól… Vestanhafs

God of War og God of War II voru vafalaust einhverjir bestu leikir sem komu út á PlayStation 2. God of War III er á næsta leiti, og sumir vilja kannski spila leikina tvo í gegn áður en sá þriðji mætir á svæðið, hvort sem þeir hafa spilað þá áður eður ei. En hver nennir að draga fram PlayStation 2 vélina sína fram til að spila gamla leiki sem erfitt er að finna í verslunum hvort eð er? Ekkert að óttast, Sony ætlar að gefa öllum tækifæri á að spila leikina tvo í gegn því þeir eru væntanlegir á PlayStation 3 korteri fyrir jól… vestanhafs.

Leikirnir hafa verið betrumbættir fyrir PlayStation 3, búið er að hækka upplausnina upp í 720p (1280×720) til að mynda, þeir renna eins og bráðið smjör á 60 römmum á sekúndu og að sjálfsögðu er búið að bæta bikurum inn í leikina.

God of War safnið er væntanlegt í verslanir vestanhafs fyrir jól en snemma á næsta ári hér í Evrópu. Þeir sem eiga erfitt með að sitja af sér biðina geta þó pantað hann inn frá Bandaríkjunum, enda eru Playstation 3 leikir ekki svæðislæstir eins og gengur og gerist með marga leiki á öðrum leikjatölvum. Leikurinn verður þriðjungi ódýrari en nýr leikur kostar í dag og því tilvalinn í jólapakkann og að sjálfsögðu skyldueign í safnið. God of War 3 er svo væntanlegur í mars á næsta ári.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

godofwarcollection

Take Two staðfestir fjóra glæsilega titla fyrir fyrri hluta næsta árs

Take Two hafa staðfest fjóra stórglæsilega titla sem munu koma út á bilinu febrúar til júní á næsta ári. Þessir titlar eru BioShock 2, Max Payne 3, Mafia II og Red Dead Redemption. Það er óhætt að segja að þessir fjórir titlar séu með þeim stærstu sem hafa verið staðfestir fyrir næsta ár.

“Við höldum áfram að meta bestu útgáfuglugga fyrir þessa titla og stefnum á að gefa þá alla út á fyrri helmingi 2010,” sagði Ben Feder, einn af stjórnendum útgefandans á fundi með fjárfestum fyrir skömmu. “Eins og staðan er núna búumst við ekki við því að gefa þá út á fyrsta ársfjórðungi fjárhagsárs okkar, sem endar 31. janúar 2010.”

Nokkrir þessara titla áttu reyndar að koma út á þessu ári. Til að mynda var fyrst gert ráð fyrir að BioShock 2 kæmi út í október eða nóvember, en honum, sem og öðrum titlum fyrirtækisins, var frestað til þess að gefa þeim lengri framleiðslutíma – og til þess að gefa þá út í betri tíð. Mörgum fyrirtækjum er hugað að gefa út titla sína á réttum tíma, sérstaklega þegar jafn margir stórtitlar eru væntanlegir á næstu mánuðum (þið getið reynt að reikna dæmið til enda með Modern Warfare 2 væntanlegan í nóvember).

Þar hafið þið það!

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

bioshock-2-big-sisterÞið þurfið að bíða pínu lengur eftir því að slást við stóru systur.

Nýr LocoRoco leikur væntanlegur

??????0728

Nú styttist í næsta LocoRoco leikinn en hann mun heita Midnight Carnival, og eins og nafnið gefur til kynna gerist hann mikið að nóttu til, einnig er kominn nýr fídus í leikinn eða svokallað “Boing”, en það er þegar þú nærð að hoppa nokkrum sinnum í röð og þá færðu einskonar súperhopp. Leikurinn inniheldur 16 ný borð, 2 mini leiki og 3 bónusborð.

Hér er svo vídeó úr leiknum:

Kv. Game Tíví