
Í tilefni af Talk Like a Pirate Day þá ætla Lucas Arts og Telltale Games að gefa fyrsta hlutan af Tales of Monkey Island leiknum á laugardaginn, hægt verður að downloada honum ókeypis hér.
Kv. Game Tíví

Í tilefni af Talk Like a Pirate Day þá ætla Lucas Arts og Telltale Games að gefa fyrsta hlutan af Tales of Monkey Island leiknum á laugardaginn, hægt verður að downloada honum ókeypis hér.
Kv. Game Tíví

Einn heitasti Nintendo DS leikurinn á þessu ári hlýtur að vera The Legend of Zelda: Spirit Tracks sem verður gefinn út á vélina í desember. Nintendo í Ameríku staðfestu nú á dögum að leikurinn verður gefinn út þann 7. desember næstkomandi í Bandaríkjunum. Við Evrópubúar þurfum líklegast að bíða örlítið lengur þar til þeir kynna útgáfudag fyrir evrópsku útgáfuna af leiknum.
Þrátt fyrir það, að þá ætti þetta myndband að svala niðri þorstanum á meðan við bíðum eftir þessu meistaraverki frá Nintendo.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
Sá leikur sem okkur þykir mest áhugaverður fyrir Nintendo DS lófatölvuna á þessu ári er án efa Scribblenauts frá 5TH Cell fyrirtækinu. Leikurinn skartar fleiri en 22,082 orð sem hægt er að birta á skjáinn með því að skrifa einfaldlega það orð sem þig langar til þess að nota í leiknum.
Í síðustu viku kom upp atvik þar sem talið var að framleiðendur leiksins hafi birt upp heildar tölu yfir þau orð sem hægt er að finna í leiknum. Þar mátti finna hvorki meira né minna en 22,082 orð sem hægt er að notast við í leiknum til þess að leysa hinar ýmsar þrautir sem verða í vegi fyrir mönnum.
Jeremiah Slaczka, sköpunarstjóri leiksins var ekki lengi að svara fyrir sér með því láta þessi orð flakka á veraldarvefnum: „Þessu var lekið á netið af vegum tölvusnáps sem veit ekkert í sinn haus, þau eru fleiri en það.“
Hvort sem þau eru 22,082 eða fleiri að þá skartar leikurinn samt sem áður gríðarlega mörg orð sem menn geta leikið sér að vild í þessum bráðskemmtilega leik. Við mælum með að menn kíki á leikinn um leið og hann kemur út í Evrópu því þetta er einn flottasti leikur sem sést hefur verið á lófatölvunum.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví
Hér sjást aðeins brot af þeim orðum sem hægt er að birta á skjáinn í Scribblenauts.
Bethesda fyrirtækið hefur heldur betur verið að gæla við Microsoft aðdáendur með því að gefa út reglulega aukaefni fyrir Fallout 3 leikinn sem kom út fyrir um það bil ári síðan. Playstation 3 eigendur hafa hins vegar þurft að þola markt hingað til þar sem ekkert aukaefni hefur verið gefið út á vélina og sú útgáfa þykir einnig langt frá því að vera gallalaus að mati leikjadóma.
Í rauninni voru þetta allt samningar sem Microsoft gerðu við Bethesda, líkt þeir gerðu við Take Two í sambandi við GTA IV leikina, nema að Microsoft eignuðu sér samt sem áður ekki einkarétt að aukapökkunum. Og nú er komið að skuldardögum fyrir PS3 eigendur!
Þann 24. september mun fyrsti aukapakkinn, Broken Steel detta inn á PSN búðina. Eftir honum verða tveir aukapakkar gefnir út í einu þann 1. október, þeir Operation Anchorage og The Pitt, en svo verða síðustu tveir, Point Lookout og Mothership Zeta gefnir út 8. október næstkomandi.
Þeir sem hafa ekki ennþá keypt gripinn nú þegar ættu að tékka á „Game of The Year“ útgáfunni af leiknum sem verður gefin út þann 16. október fyrir PC, Xbox 360 og PS3. Í henni má finna allar uppfærslurnar ásamt öllum fimm aukapökkunum sem hafa komið út fyrir leikinn.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví


Jæja þá er biðin senn á enda, og við byrjum þetta season af krafti með sérstökum 40 mínútu löngum stútfullum þætti í kvöld, sökum þess verður þessi fyrsti þáttur kl. 19:20 en ekki 19:30 eins og vanalega. Í fyrsta þættinum förum við til Þýskalands og heimsækjum Gamescom sýninguna sem haldin var um daginn, leikirnir Batman Arkham Asylum og Guitar Hero 5 verða dæmdir og retró leikur vikunnar að þessu sinni er Ghostbusters frá árinu 1984. Einnig förum við yfir 10 stærstu leikina sem væntanlegir eru á þessu ári.
Aðrir leikir sem við skoðum í þættinum:
Halo 3 ODST
Marvel Ultimate Alliance 2
Saboteur
Need for Speed Shift
Rock Band Beatles
Champions Online
Wolfenstein
Forza Motorsport 3
Borderlands
Star Wars Clone Wars Republic Heroes
Kv. Game Tíví

Þar sem leikurinn er ný kominn út og á eflaust eftir að fara í gegnum margar breytingar og mörg update, þá ætlum við að hafa þennann leikjadóm mjög stuttan og einfaldan.
Leikurinn lofar góðu, öll grafík og útlit leiksins er mjög flott og möguleikarnir í að smíða þína eigin ofurhetju nánast óendanlegir. Hinsvegar er margt ekki alveg nógu gott við leikinn, bardagar í honum eru mjög einhæfir, hann höktir stundum og er mjög illa “balanced”, sum ofurhetju “build” gera þig nánast ódrepandi á meðan önnur virka skelfilega illa.
En þetta lagast vonandi allt með tíð og tíma, þá er bara að vona að Cryptic Studios verði duglegir að uppfæra (patch-a) leikinn og þá gæti hann orðið mjög góður.
Eins og stendur þá gefum við honum 6.5 af 10 mögulegum.
Kv. Game Tíví

Einn af þeim leikjum sem við hjá Game Tíví erum mest spenntir fyrir er The Secret World, en hann er væntanlegur á Xbox360 og PC og stefnir í að verða fyrsti alvöru MMORPG leikurinn sem kemur á þessa kynslóð af leikjatölvum, svo lengi sem hann kemur út á undan Final Fantasy.
Hér er nýjasti trailerinn:
Kv. Game Tíví

„Loksins, loksins“ segjum við Game Tíví bræður í kór.
Það gerist ekki oft að leikir snúa aftur til fortíðar sinnar í 2D formi, en við þessum fregnum er ekki annað hægt en að hoppa af kæti. SEGA fyrirtækið staðfesti í gær að þeir væru að vinna að glænýjum Sonic leik og mun broddgölturinn knái snúa aftur í tvívíddar formi eins og hann spilast best.
Leikurinn hefur verið í framleiðslu undir dulnefninu „Project Needlemouse“ og er hann byggður upp frá grunni í hágæðum. Framleiðendur leiksins hafa ekkert sagt til um á hvaða tölvur gripurinn verður gefinn út á nema það að hann mun koma út einhvern tímann á næsta ári.
Heimildir: Gamespot
Kveðja,
Game Tíví
Ef Eidos og Rocksteady Studios eru ekki að stríða okkur er ný niðurhalanleg viðbót við hinn nýútkomna leik Batman: Arkham Asylum væntanleg í næstu viku.
Þegar Xbox 360 notendur settu leikinn í gang í gær flakkaði textinn “Free downloadable content coming in 9 days” um neðri mörk skjásins. Það ætti að segja sig sjálft.
Hver þessi viðbót verður veit þó enginn, vandi er um slíkt að spá. Hugsanlega eru það fleiri challenge rooms. Gæti verið að Jókerinn sé á leiðinni á Xbox 360?
Það verður að koma í ljós á næstu dögum.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví


Square-Enix staðfestu á sérstökum Final Fantasy XIII atburði í gær útgáfudag fyrir þennan eftirsóknarverða leik. Leikurinn er væntanlegur 17. desember næstkomandi í Japan Útgáfudagur á vesturlöndum hefur ekki enn verið staðfestur, en á E3 sem fram fór í júní kom fram að hann væri væntanlegur næsta vor, og ef marka má fréttir hefur það ekki breyst.
Final Fantasy XIII fylgir einnig hefð sem Final Fantasy VIII hóf með því að hafa sérstakt þemalag. Áður hafa listamenn á borð við Faye Wong og Angela Aki sungið þemalög leikjanna, en fyrir Final Fantasy XIII varð lag Sayuri Sugawara, Kimi ga iru kara (“Því þú ert hjá mér”) fyrir valinu. Sugawara gaf út sína fyrstu plötu í vor en Kimi ga iru kara er önnur smáskífa hennar og er væntanleg í verslanir í austri 2. desember.
Þá mun drykkjarisinn Suntory hefja framleiðslu á Final Fantasy XIII orkudrykk í tilefni útgáfu leiksins. Drykkurinn, sem ber nafnið Final Fantasy XIII Elixir (eftir orkudrykkjum úr leiknum sjálfum), inniheldur vondandi nógu mikið magn af koffíni til að halda manneskju vakandi frá því leikurinn er settur fyrst í vélina og þar til kreditlistinn klárast.
Vonandi fær Evrópa leikinn líka á skikkanlegum tíma.
Heimildir: Mainichi Shimbun, Gamespot
Kveðja,
GameTíví
Nýleg comment