Fyrir tveimur árum þróaði breska fyrirtækið Ninja Theory leikinn Heavenly Sword fyrir PlayStation 3. Leikurinn vakti talsverða athygli á meðan hann var í framleiðslu, en lokavaran sjálf fékk þó engar stórkostlegar undirtektir og var helst hylltur fyrir flott myndbönd á milli hasarsins, en var flengdur fyrir ýmislegt annað, eins og stutta sögu og gríðarlegt hökt á köflum.
Fyrirtækið afhjúpar nýjasta verkefni sitt, Enslaved, í nýjasta hefti bandaríska leikjablaðsins Game Informer. Leikurinn byggir lauslega á fornri kínverskri skáldsögu, Journey to the West, en sögusviðið er þó ekki Kína til forna heldur óþekktur staður á jörðinni í framtíðinni. Eftir þriðju og fjórðu heimsstyrjöldina og hatramma baráttu mannkyns við vélmenni eru menn nær útdauðir. Ein af fáum eftirlifandi manneskjum í heiminum, Monkey, lifir lífi sínu á flótta undan vélmennum sem hafa það eina markmið að leita uppi og drepa þá menn sem enn eru á lífi.
Einhvers staðar á leiðinni er Monkey þó klófestur og hent á flugskip, þar sem hann hittir unga konu sem nefnist Trip. Þau ná að flýja í sameiningu, en Monkey rotast einhvern veginn, og þegar hann rankar aftur við sér er búið að skella sérstöku tæki á höfuð hans sem kremur höfuðið á honum eins og svampköku ef hann hjálpar Trip ekki að komast heim til sín.
Það eru engin lítilmenni sem koma nálægt leiknum því Andy Serkis ljáir Monkey ekki bara rödd sína heldur einnig líkama sinn í leiknum (en leikurinn mun nota sömu mo-cap tækni og Heavenly Sword notaði) og snillingurinn Alex Garland, sem skrifaði skáldsöguna The Beach og handrit fyrir kvikmyndir á borð við 28 Days Later og Sunshine, skrifar sögu leiksins.
Ef marka má fregnir virðist leikurinn taka bardagakerfi Heavenly Sword á nýtt stig með því að gera það mun taktískara en það var áður.
Það verður spennandi að sjá hvað úr leiknum verður. Vonandi verður hann betri en Heavenly Sword. Enslaved er væntanlegur á Xbox 360 og Playstation 3.
Heimildir: Destructoid
Kveðja,
GameTíví

Nýleg comment