- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for August, 2009

Page 2 of 3

Playstation 3 lækkar loksins í verði

Það hlaut að koma að því, fyrr eða síðar. Á GameCon ráðstefnunni sem stendur nú yfir þessa dagana staðfestu Sony verðlækkun á Playstation 3 vélinni sem margir hafa beðið óreifafullir eftir. Margir bjuggust nú þegar við henni löngu fyrr en spurningin var sú hvenær mun verðlækkunin eiga sér stað.

Frá og með deginum í gær lækkaði Playstation 3 vélin um 100 bandaríkjadali sem eru rúmar 12.000 íslenskar krónur miðað við gengið í dag. Þó svo að síðustu mánuðirnir hér á landi hafa ekki verið mjög bjartir upp á síðkastið getum við þó verið sáttir með að Sony skyldu loksins taka þessa ákvörðun.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

playstation3

Call of Juarez 2, demó sem við mælum með…

call

Það eru ekki margir tölvuleikir þessa dagana sem gerast í villta vestrinu, en Call of Juarez 2 – Bound in Blood gerist einmitt þar. Við erum búnir að vera að spila þennann og getum við hiklaust mælt með honum, fyrir þau ykkar sem viljið prófa leikinn áður en þið kaupið hann þá er hægt að nálgast demóið hér.

Í demóinu er hægt að spila eitt borð, fangelsisborðið, en í því þarftu að sleppa úr fangelsinu, ganga frá lögguni á meðan bróðir þinn hjálpar þér, komast á barinn og sigra einvígí. Ekki slæmt dagsverk það! :)

Demóið er um 1 GB.

Dómar um leikinn eru hér.

Kv. Game Tíví

Vatnið streymir inn í LittleBigPlanet

littlebigplanet-painting-artwork

Media Molecule, hönnuður LittleBigPlanet hafa heldur betur verið duglegir við að uppfæra leikinn sinn undanfarið með ýmsum góðgætum og munu væntanlega halda því lengi áfram. Nýjasta uppfærslan þeirra mun gera spilendum kleift að nota vatn í borðum sínum en það hefur ekki verið hægt undanfarið og menn neyddust til þess að nota gler eða önnur áhöld til þess að líkja því við vatni.

Vatnið mun gjörbreyta spilun leiksins eins og sést á myndbandinu hér fyrir neðan. Nú geta spilendur búið til neðansjávar borð og synt í sjónum, búið til bát og siglt út fyrir höfin sjö eða fullt af öðrum uppátækjum sem fólki dettur í hug.

Það verður svo sannarlega líf og fjör þegar vatnið skellur á í LittleBigPlanet. Enging dagsetning hefur verið gefin upp ennþá og viðbótin mun sennilega kosta eitthvað þegar það dettur inn á PSN búðirnar, en Media Molecule eiga þó enn eftir að gefa það upp.

Kveðja,
Game Tíví

Dust 514 – Nýr leikur frá CCP

170363-dust-514-2_original

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP greindi í dag frá nýjum leik, sem fyrirtækið vinnur nú að, en leikurinn mun bera heitið Dust 514. Ólíkt EVE Online leiknum, sem spilaður er á hefðbundnar borðtölvur, verður Dust 514 spilaður á leikjatölvur. Ekki hefur enn verið ákveðið hvaða leikjatölvur munu geta spilað leikinn, en helstu tölvur þessarar tegundar eru Xbox 360 og Playstation 3. Verður þetta í fyrsta sinn sem heimur EVE opnast fyrir leikjatölvuspilara.

Dust 514 verður svokallaður fyrstu persónu skotleikur (FPS), þar sem spilarar munu berjast sín í millum með skotvopnum, brynvögnum og flugvélum. Munu spilarar geta breytt þessum vopnum og hergögnum sjálfir. Þá verður lög meiri áhersla á herkænsku en gert er í mörgum slíkum leikjum. Blandast því við ákveðnir þættir úr leikjum, sem kallast rauntíma herkænsku (RTS) leikir.

Það sem gera mun Dust 514 frábrugðinn öðrum FPS leikjum er að leikurinn mun tengjast beint við EVE Online, en slík tenging milli leikja hefur ekki verið reynd áður með þessum hætti. Spilarar í Dust munu berjast á plánetum sem eru í hinum stóra heimi EVE. Líkt og í EVE er ætlunin sú að hegðun og háttsemi spilara hafi áhrif á heim leiksins. Heimurinn verður það sem kallast á leikjamáli„viðvarandi heimur“, sem ekki hverfur þótt spilari slökkvi á tölvunni.

Þá er hugsun CCP að leikirnir tveir, EVE og Dust, geti haft áhrif hvor á annan, þ.e. að hegðun spilara í Dust geti haft áhrif á EVE og öfugt. Ekki er þó enn komið á fast hvernig þessi gagnkvæmu áhrif muni virka.

Tekið af MBL.is

Meira á PCworld.com

*viðbót: Hægt að sjá cam vídeó úr leiknum hér.

Kv. Game Tíví

Tvö ný Starcraft II myndbönd líta glæsilega vel út

starcraftii

Blizzard fyrirtækið hefur verið þekkt í gegnum tíðina fyrir það að hanna eingöngu góða leiki fyrir aðdáendur sína. Hvort sem það eru hlutverka- eða herkænskuleikir að þá hafa þeir ávallt farið skrefi lengra en önnur fyrirtæki sem hefur skilað þeim mjög góðum árangri.

Um þessar mundir eru þeir að vinna hörðum höndum að hlutverkaleiknum Strarcraft II sem virðist aldrei ætla að koma út. Leiknum hefur verið frestað nokkuð oft og er búist við því að hann detti inn einhvern tíman á næsta ári. Þó svo að biðin taki langan tíma að þá er hún ávallt þess virði að bíða eftir. Því lengur sem biðin verður, því betri verður leikurinn.

Núna um helgina komu út tvö glæný myndbönd úr Starcraft II og líta þau bæði ótrúlega vel út. Það er klárt mál að Blizzard ætla sér stóra hluti með þessum leik, enda býst maður ekki við öðru þar sem fyrri leikurinn er talinn vera einn besti herkænskuleikur sem komið hefur út.

Kveðja,
Game Tíví

Hvað á nýji Command & Conquer 4 leikurinn að heita?

command-and-conquer-4-tiberian-twilight-subtitle-naming-contest

Við hjá Game Tíví höfum alltaf haft mjög gaman að Command & Conquer seríunni og munum þess vegna færa ykkur nýjustu fregnir af nýja leiknum, Command & Conquer 4. Það er því miður ekki stutt bið í gripinn, en við erum þó strax orðnir spenntir yfir honum. Enginn útgáfudagur hefur verið settur á leikinn nema 2010 og það á enn eftir að gefa leiknum fullt nafn.

EA Los Angeles tóku þá skemmtilegu ákvörðun að leyfa „ykkur“ að velja nafn fyrir leikinn! Það eina sem þið þurfið að gera er að velja nafn sem ykkur finnst henta best fyrir fjórða og síðasta Tiberium titilinn, skrá inn netfangið ykkar, gefa upp afmælisdag, haka við ómerkta kassann og staðfesta það svo á síðunni. Til þess að taka þátt í keppninni, smelltu þá á þennan hlekk.

Á meðan þið ákveðið hvað leikurinn skal heita, að þá getið þið gælt ykkur að sjö nýjum skjáskotum sem EA gáfu út í gær.

Kveðja,
Game Tíví

Styttist í nýjar fréttir af The Secret World

secretworld-1024x575

Nú styttist í PAX sýninguna og hefur Funcom tilkynnt að þeir ætli að uppljóstra ýmislegt um nýja MMORPG leikinn sinn The Secret World á henni. Lítið er vitað um leikinn en hann var tilkynntur í mars 2007, og hefur Funcom lítið vilja segja, nema hvað að ólíkt öðrum MMORPG leikjum mun saga leiksins taka enda, en hefur þó ekki útilokað að sagan verði svo lengd með aukapökkum.

Við bíðum spenntir eftir nánari fréttum.

Heimasíða leiksins.

Kv. Game Tíví

Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Naughty Dog fyrirtækið

naughtydogddd580

Naughty Dog fyrirtækið hefur verið þekkt í gegnum tíðina fyrir að hanna mjög góða og skemmtilega leiki á Playstation leikjavélarnar. Fyrsta leikjasería þeirra var t.d Crash Bandicoot sem varð fljótt mjög vinsæll á Playstation eitt vélinni og þótti einnig mjög skemmtilegur þegar Naughty Dog sáu um gerð leiksins frá árinu 1996-1999. Eftir að aðrir framleiðendur tóku við varð leikurinn ekki nærrum því eins skemmtilegur og hefur serían dafnað mjög mikið eftir það.

En Naughty Dog voru samt sem áður langt frá því að vera hættir við að hanna skemmtilega leiki. Leikjaserían Jak & Daxter tóku svo við þegar Playstation 2 var kominn út á markaðinn og þykja Jak & Daxter leikirnir vera með þeim betri „platform“ leikjum sem komu út fyrir Playstation 2.

Á núverandi kynslóð leikjatölva bjuggu þeir svo til nýjan leik frá grunni á Playstation 3 vélinni, Uncharted: Drake’s Fortune sem sló heldur betur í gegn þegar hann var gefinn út í Evrópu árið 2007. Nú vinna þeir hörðum höndum að framhaldi fyrir leikinn sem ber heitið Uncharted 2: Among Thieves sem er væntanlegur 13. október í Norðu Ameríku, vonandi ekki mikið seinna hér í Evrópu.

Naughty Dog sitja að sjálfsögðu ekki aðgerðalausir við gerð Uncharted 2: Among Thieves. Hér fyrir neðan eru svo nokkrar staðreyndir sem 1up fréttasíðan fékk í hendurnar nú á dögum.

Heimildir: 1Up

Kveðja,
Game Tíví

  • Yfir 130,000 mans tóku þátt í Uncharted 2 fjölspilunnar Betunni og voru þar að finna spilendur frá allt að 135 löndum um allan heiminn.
  • Alls voru 40,300 klukkustundir spilaðar í Betunni á aðeins þremur vikum með fjölspilunar og samspilunar leikjum samanlagt.
  • Í Uncharted: Drake’s Fortune voru 104 einstaklingsbundin umhverfisskrár á einum disk, Uncharted 2 skartar yfir 400 skrár.
  • Við drukkum helling af gosi, yfir 30,000 dósir, og eina „Bourborn whisky“ flösku á tveggja ára ferli við gerð Uncharted 2.
  • Við höfum alltaf haft að minnsta kosti  einn hund sem lukkudýr hjá okkur frá því Naughty Dog hóf göngu sína. Eins og stendur erum við með tvo hunda skráða hjá okkur þau Pogo(French Bulldog) og Trumpet(Bichon Frise)

2K Boston vinna að nýjum skotleik

Fyrir þá sem þekkja ekki til fyrirtækisins 2K Boston að þá hafa þeir unnið að mögnuðum titlum undanfarin ár á borð við BioShock, SWAT 4, Freedom Force  og System Shock 2. Allir leikirnir hafa verið undir stjórn snillingsins Kevin Levine sem vinnur núna hörðum höndum að nýjum leik sem þeir eiga enn eftir að afhjúpa.

Því miður hafa nánast engar fréttir borist að leiknum að svo stöddu og vilja þeir halda hulinni yfir honum sem lengst. Nú liggur grunur um það að þeir séu að vinna að nýjum skotleik þar sem fyrirtækið leitar nú að hæfileikaríkum og reyndum tölvuleikja hönnuðum til þess að hjálpa við gerð skotleiks.

Þó svo að fyrirtækið vinnur að öðrum skotleik að þá erum við samt sem áður ótrúlega spenntir yfir nýja leiknum frá þeim. Þeir sem spiluðu  BioShock vita hreinlega hvaða hæfileikar búa í Kevin Levine og samstarfmönnum hans, því leikurinn var stórkostlegur á alla staði. Ekki bara nóg með það, því Kevin Levine hefur sjálfur lýst yfir því að nýji leikurinn þeirra eigi eftir að verða mun stærri heldur en BioShock.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

ken_levine

EA Denmark afhjúpa lagalistann fyrir Brutal Legend

brutal_legend11

EA Denmark tóku sig til um helgina og afhjúpuðu lagalistann fyrir Brutal Legend sem hefur setið ofarlega á innkaupalista hjá mörgum tölvuleikjaunnendum. Nokkrum dögum fyrir hafði listanum verið lekið á netið og voru þar að finna hvorki meira né minna en 108 lög sem koma öll við sögu í leiknum.

Nú hafa þeir loksins afhjúpað lagalistann í heild sinni og ættu allir þungarokks aðdáendur að finna eitthvað sitt hæfi. Hljómsveitir á borð við Black Sabbath, Dragonforce, Kiss, Megadeath, Slayer og fullt af fleirum hljómsveitum er að finna á listanum svo eitthvað sé nefnt.

Svo til gamans að þá ákvað Tim Schafer(höfundur leiksins) að keppa við Emily Ridgeway(tónlistarstjórnandi leiksins), hvort þeirra yrði fljótari, Tim Schafer að leysa Rubik’s kubb eða Emily Ridgeway að lesa upp allan lagalistann í heild sinni.

Fyrir neðan myndbandið má svo sjá lagalistann í heild sinni.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Lagalistinn úr Brutal Legend:

  • 3 Inches of Blood – Deadly Sinners
  • 3 Inches of Blood – Destroy The Orcs
  • Accept – Fast As A Shark
  • Angel Witch – Angel Witch
  • Anthrax – Metal Thrashing Mad
  • Anvil – March of the Crabs
  • Anvil – Tag Team
  • Apostasy – Sulphur Injection
  • Bishop of Hexen – A Serpentine Grave
  • Bishop of Hexen – The Somber Grounds of Truth
  • Black Sabbath – Children of the Grave
  • Black Sabbath – Symptom of the Universe
  • Black Sabbath – Never Say Die
  • Brocas Helm – Cry of the Banshee
  • Brocas Helm – Drink the Blood of the Priest
  • Budgie – Breadfan
  • Budgie – Zoom Club
  • Candlemass – Witches
  • Carcass – No Love Lost
  • Cloven Hoof Nightstalker
  • Children of Bodom – Angels Don’t Kill
  • Coroner – Skeleton on your Shoulder
  • Cradle of Filth – Her Ghost in the Fog
  • Crimson Glory – Queen of the Masquerade
  • Dark Fortress – Insomnia
  • Dark Tranquility – Cathode Ray Sunshine
  • Deathstars – Blitzkrieg
  • Def Leppard – Rock of Ages
  • Dethklok – Mermaider
  • Diamond Head – Am I Evil?
  • Dimmu Borgir – Progenies of the Great Apocalypse
  • Dokken – Mr. Scary
  • Dragonforce – Through the Fire and Flames
  • Emperor – Thus Spake The Nightspirit
  • Enslaved – Frost
  • Enslaved – Loke
  • Firehouse – Overnight Sensation
  • Girlschool – Bomber
  • Iced Earth – When the Night Falls
  • Iced Earth – Pure Evil
  • In Flames – Goliaths Disarm Their Davids
  • Judas Priest – Battle Hymn
  • Judas Priest – The Hellion/Electric Eye
  • Judas Priest – Leather Rebel
  • Judas Priest – One Shot At Glory
  • Judas Priest – Painkiller
  • Kabbage Boy – Girlfriend
  • KMFDM – Free Your Hate
  • KMFDM – Rip The System
  • King Diamond – Cremation
  • King Diamond – Welcome Home
  • Kiss – God of Thunder
  • Lita Ford – Betrayal
  • Marilyn Manson – Beautiful People
  • Manowar – Die For Metal
  • Manowar – The Dawn Of Battle
  • Mastodon – Crack the Skye
  • Mastodon – Oblivion Instrumental
  • Megadeath – High Speed Dirt
  • Megadeath – Tornado of Souls
  • Metal Church – Metal Church
  • Michael Schenker – Group Assault Attack
  • Ministry – Stigmata
  • Ministry – Thieves
  • Mirrorthrone – So Frail
  • Motley Crue – Dr. Feelgood
  • Motley Crue – Kickstart My Heart
  • Motley Crue – Live Wire
  • Motorhead – Back at the Funny Farm
  • Motorhead – In the Black
  • Motorhead – Marching Off to War
  • Motorhead – We Are the Road Crew
  • Nitro – Machine Gun Eddie
  • Omen – The Axeman
  • Ostrogoth – Queen of Desire
  • Overkill – World of Hurt
  • Ozzy Osbourne – Believer
  • Ozzy Osbourne – Mr. Crowley
  • Ozzy Osbourne – Diary of a Madman
  • Prong – Snap Your Fingers, Snap Your Neck
  • Quiet Riot – The Wild and the Young
  • Racer X – Technical Difficulties
  • Racer X – Y.R.O.
  • Ratt – Lay It Down
  • Riot – Road Racin
  • Riot – Narita
  • Riot – Swords and Tequila
  • Rob Zombie – Superbeast
  • Rotting Christ – Ad Notics
  • Running Wild – Riding the Storm
  • Sanctuary – Battle Angels
  • Savatage – Hall of the Mountain King
  • Saxon – Wheels of Steel
  • Scorpions – Blackout
  • Scorpions – Holiday
  • Skeletonwitch – Soul Thrashing Black Sorcery
  • Skid Row – Youth Gone Wild
  • Slayer – Metal Storm/Face The Slayer
  • Slough Feg – Warriors Dawn
  • Static-X – Love Dump
  • Tenacious D – Master Exploder
  • Tenacious D – The Metal
  • Testament – For The Glory Of
  • Testament – More Than Meets The Eye
  • Tvangeste – Birth of the Hero
  • UFO – Rock Bottom
  • Whitesnake – Still of the Night
  • Wrath of Killenstein – Ignisis Dance