
*UPPFÆRT, búið er að taka myndbandið af youtube…
ÆÆæææ, svo virðist sem Halo: ODST leikurinn sé kominn í umferð, mánuði áður en hann átti að fara í almenna sölu, samkvæmt þessu youtube myndbandi þá keypti viðkomandi aðili leikinn núna um daginn, í búð í frakklandi. Myndbandið sýnir ekkert úr leiknum, bara viðkomandi að taka leikinn úr plastinu.
Þetta er auðvitað skelfilegt fyrir Microsoft þar sem mjög líklegt er að leikurinn leki á torrent síður í framhaldinu…
Microsoft í frakklandi er búið að gefa frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að hver sem verði gripinn við að spila leikinn áður en hann á að koma út verði bannaður frá Xbox Live.
Við mælum auðvitað bara með að bíða eftir leiknum þangað til að hann kemur út í lok september, biðin verður þess virði
Kv. Game Tíví



0 Responses to “Halo 3: ODST – kominn í búðir?”