- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for August, 2009

Game Tíví hefst aftur…

gtvnew1

Jæja, margir hafa verið að spurja hvenær við komum aftur á skjáeinn og nú getum við staðfest að það verður fimmtudaginn 17. september kl. 19:30 sem við mætum aftur af fullum krafti. Meðal efnis í fyrsta þættinum verður ýmislegt spennandi frá Gamescon sýningunni sem við vorum á um daginn, glænýr raunveruleikur, 2 glænýir leikjadómar og svo auðvitað rennum við yfir nýja og væntanlega leiki svo eitthvað sé nefnt.

Nú er bara að setja reminder í símann og bíða :)

Kv. Game Tíví

Halo 3: ODST – kominn í búðir?

halo-odst

*UPPFÆRT, búið er að taka myndbandið af youtube…

ÆÆæææ, svo virðist sem Halo: ODST leikurinn sé kominn í umferð, mánuði áður en hann átti að fara í almenna sölu, samkvæmt þessu youtube myndbandi þá keypti viðkomandi aðili leikinn núna um daginn, í búð í frakklandi. Myndbandið sýnir ekkert úr leiknum, bara viðkomandi að taka leikinn úr plastinu.

Þetta er auðvitað skelfilegt fyrir Microsoft þar sem mjög líklegt er að leikurinn leki á torrent síður í framhaldinu…

Microsoft í frakklandi er búið að gefa frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að hver sem verði gripinn við að spila leikinn áður en hann á að koma út verði bannaður frá Xbox Live.

Við mælum auðvitað bara með að bíða eftir leiknum þangað til að hann kemur út í lok september, biðin verður þess virði :)

Kv. Game Tíví

Fallout 3: Mothership Zeta

zeta

Nú á dögunum kom út síðasti aukapakkinn fyrir meistaraverkið Fallout 3, en það var pakkinn Mothership Zeta. Í honum er manni rænt af geimverum og teleportaður upp í risavaxið geimskip sem er á sporbaug yfir jörðu.

Nú það sem er svona skemmtilegast við þennann aukapakka er að drepa haug af geimverum, nýtt vopn, Drone Cannon sem er snilld, og það er fullt af skemmtilegum karakterum sem maður hittir í geimskipinu.

Það slæma er að Mothership Zeta lítur allur frekar svipað út og missionin mættu vera fjölbreyttari, en í heildina bara nokkuð þéttur pakki sem enginn Fallout 3 spilari ætti að láta fram hjá sér fara.

Hér er svo trailerinn fyrir aukapakkann:

Kv. Game Tíví

Getraun – hvaða 3 leikir eru þetta..?

Jæja nú styttist í að Game Tíví hefjist aftur á Skjáeinum, og svona til að hita upp þá er hér smá getraun. Að þessu sinni ætti hún að vera bæði skemmtileg og vonandi smá erfið. Engin verðlaun, nema heiðurinn að vera klárasti leikjanördinn að þessu sinni.

Spurt er, hvaða 3 leikir eru þetta:

gettu1

gettu2

gettu3

Góða skemmtun :)

Kv. Game Tíví.

Blizzard afhjúpa World of Warcraft: Cataclysm

wow-cataclysm-logo-580

Í dag hófst hin árlega BlizzCon ráðstefna þar sem aðdáendur Blizzard koma saman til þess að fá nýjustu fréttir frá þeim beint í æðarnar og spila nýjustu leiki frá þeim sem eru að þessu sinni Starcraft II, Diablo III og að sjálfsögðu World of Warcraft. Líkt og ávallt að þá byrjuðu Blizzard menn að tilkynna stórfenglegar fréttir í upphaf sýningarinnar sem fékk hárin heldur betur til þess að rísa. Þeir afhjúpuðu glænýjan aukapakka fyrir World of Warcraft sem ber undirtitilinn Cataclysm.

World of Warcraft: Cataclysm mun gjörbreyta World of Warcraft heiminum og einnig bæta við tveimur nýjum kynþáttum, Goblins fyrir Horde liðið og Worgen fyrir Alliance. Nú verður hægt að hækka persónu sína í allt að „level“ 85 ásamt fullt af fleirum góðgætum sem verður bætt við í leikinn þegar World of Warcraft: Cataclysm verður gefinn út.

Nú er nóg komið af lestri, kíkið á þetta magnaða myndband sem Blizzard sýndu við afhjúpun leiksins.

Kveðja,
Game Tíví

Gametíví bloggar frá leikjasýningunni – Partur 2

eyepet

Við Gametíví bræður byrjuðum daginn með slefið niður á bringu, enda sveittir í herbergi með öðrum nördum að skoða kynningu á Fifa 10 leiknum..Leikurinn er að lúkka eins og Pamela Anderson gerði fyrir 10 árum síðan…sjóðheitur…Fullt af nýju stöffi, spilunin mun raunverulegri og svo getur maður búið til sinn eigin gaur og þróað hann í gegnum leikinn bæði á netinu og án…einnig er hægt að búa til sínar eigin auka- og hornspyrnur…Næst glugguðum við inn til Tim Schaefer sem er maðurinn á bak við leiki á borð við Monkey Island og Full Throttle, en hann var mættur til að kynna nýja leikinn sinn Brutal Legend sem er væntanlegur í haust. Leikurinn er “tribute” til rokksins og fer Jack Black með aðalhlutverkið. Leikurinn er blanda af hasar og “strategy” spilun og sýndi Tim hvernig multiplayer-inn virkar og það er svakalegt stuð. En leikurinn er uppfullur af húmor og hasar…

Microsoft var með frekar lokaðan bás og sýndur nýja Halo leikinn aðeins bakvið luktar dyr, en telfdu mest fram Lips leiknum, þar sem menn geta sungið úr sér lungu og lifur…Nintendo voru hinsvegar með jólabás fullan af jólasveinum, auk þess sem Mario og Sonic voru á vaktinni enda nýr leikur um þá félaga á leiðinni eða Mario & Sonic at the Olympic Winter Games…nýi Mario leikurinn var einnig fyrirferðamikill og svo allskyns “fitness” leikir sem menn voru hoppandi og skoppandi í :)

Sony menn gerðu mikið úr nýju tölvunni á sýnum bás, auk þess þar sem við Svessi prófuðum God of War 3, sem í raun sprengdi fjölda æða í hausnum á okkur, enda svaðalegt kvikindi. Uncharted 2 sveik ekki og ljóst að Nathan Drake ætlar að mæta útúr hasaður til leiks..einnig sýndu Sony menn nýju PSP vélina eða PSP Go og er hún að svínlúkka…

Athyglisverðasti leikurinn hjá Sony fyrir yngri kynslóðina var EyePet, en þar er maður með lítið og loðið kvikyndi á skjánum sem bregst við öllu sem maður gerir. Maður getur baðað kvikindið, greitt því, teiknað fyrir það myndir sem lifna við, gefið dýrinu að borða og svo framvegis…gríðarlega harður leikur :)

 

Þess má geta að líklega hafði Diablo 3 vinninginn þegar kom að biðröðum, en þýsk leikjanörd þurftu að bíða í 5 tíma í röð til að sjá leikinn, en þess má geta að hann er “awesome” og hreinlega í ruglinu.

Að síðustu segjum við frá heimsókn okkar til 2K Games, en þeir sýndu úr hinum stórkostlega Bioshock 2 sem fékk hárin til að rísa svo um munaði, en auk hans, sýndu 2K menn úr Mafia 2 sem fékk meira en hárin til að rísa og svo “surprise” titilinn Borderlands frá Gearbox, en hann er blanda af fyrstu persónu skotleik og hlutverkaleik, en við Gametíví bræður hvetjum ykkur til að fylgjast vel með þeim leik, enda er hann algjört megadúndur…

borderlands

En nóg í bili, við dettum aftur inn á morgun með álit okkar á fleiri leikjum og því sem er að gerast :

Gamescom leikjasýningin – Gametíví bloggar

20082009033

Þá erum við Gametíví bræður mættir í banastuði á leikjasýninguna í Köln…Sýningin er með stærra móti og allt hreinlega í ruglinu. 

Á þriðjudagskvöldið duttum við funheitir inná blaðamannafund Sony manna þar sem þeir tilkynntu um litlu, mjóu PS3 tölvuna sem menn eru að fíla, enda verður hún ódýrari og nettari…einnig tilkynntu Sony menn ný kort þar sem menn geta keypt sér inneign í PSN búðina, en það eru stuð og gleðifréttir fyrir Íslendinga, en þessi kort ættu að auðvelda okkur aðgang að stöffinu.

Sýningin hófst svo í gær og var það fyrsta verk okkar að skoða Modern Warfare 2 og það er skemmst frá því að segja að við félagarnir þurftum fullorðinsbleyjur, slík var spennan.  Framleiðandi leiksins óð í gegnum fyrsta borðið og vorum við stynjandi eins og mæðuveikar rollur af spenningi, enda verður Modern Warfare 2 eitthvað harðasta stöff sem leikjaheimurinn hefur séð.  Eftir kynninguna þurfti að setja Bergmann í spennitreyju, enda geggjaður.´

Við tókum svo í DJ Hero, en þar þeyttum við skífum og skrötsuðum eins og vindurinn.  Leikurinn kom verulega á óvart og engu líkara en við værum andsetnir af Gullfoss og Geysi, slík voru tilþrifin…harðir..

Við látum heyra meira frá okkur á morgun, en þangað til bullandi leikjakveðjur frá Köln

Óli og Svessi

Deildu fréttum okkar með vinum á Facebook

Facebook Friendly Marketing

Nú bíður Game Tíví.is upp á nýja aðferð í tengslum við „Facebook, Twitter“ eða aðrar samskipta síður. Þið getið núna deilt fréttum okkar á Game Tíví.is með vinum ykkar með aðeins einum takka sem er staðsettur fyrir neðan hverja frétt.

Einnig viljum við nota tækifærið til þess að minna á síðuna okkar á Facebook undir heitinum Game Tíví. Þar getið þið orðið meðlimir Game Tíví á Facebook síðunni og rætt um  hina ýmsa leiki sem þið eruð nú þegar að spila.

Kveðja,
Game Tíví

Fable III afhjúpaður á GameCon ráðstefnunni, væntanlegur á næsta ári

fable3art1

Já, þið lásuð rétt!

Peter Molyneux, forstjóri Lionhead Studios afhjúpaði nýtt verk sem fyrirtækið vinnur nú þegar að sem er hvorki annar en Fable III. Við vitum ekki með ykkur, en við bjuggumst alls ekki við framhaldi næstu 2-3 árin, eða allavega ekki svona fljótt. Það liðu meira en fjögur ár frá því að Fable var gefinn út á gömlu Xbox tölvuna þar til Fable II kom svo út fyrir Xbox 360.

Leikurinn á sér stað 50 árum eftir atburð Fable II. Spilendur munu fara með hlutverk barns hetjunnar sem við fengum að kynnast í Fable II. Markmið þitt verður að taka yfir Albion, heimurinn í Fable, hvort sem þú gerir það á góðan eða slæman hátt. Það verður svo undir þér komið að velja hvor leiðina þú ferð, líkt og tíðkaðist í fyrri leikjunum.

Fable aðdáendur geta svo sannarlega glaðst yfir þessum fregnum. Leikurinn er nú þegar í vinnslu hjá Lionhead Studios og það er ennþá skemmtilegra að vita það að við megum búast við honum seint á næsta ári. Hér fyrir neðan má svo sjá stutta styklu sem Peter Molyneux sýndi við tilkynninguna.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

PS3 Slim væntanleg á markaðinn

ps3_slim

Nokkrum árum eftir að Sony gáfu út Playtation 2 vélina ákváðu þeir síðar að breyta vélinni og gera hana ennþá minni og léttari til þess að minnka framleiðslukostnað vélarinnar. Nú hafa Sony tekið upp á því að fara sömu leið og síðast og tilkynntu þar með nýja Playstation 3 vél á GameCon ráðstefnunni, eða PS3 Slim.

Í samanburði við eldri Playstation 3 vélina að þá er PS3 Slim 33% minni, 36% léttari og nýtir þar með 34% minna afl heldur en fyrri Playstation 3 vélarnar hafa notað hingað til. Það mun þó alls ekki hafa neitt áhrif á leikjaspilunina og geta menn notað PS3 Slim í nánast allt það sem fyrri Playstation 3 vélin getur nú þegar. PS3 Slim skartar einnig 120GB harðdisk en getur hins vegar ekki spilað Playstation 2 leiki.

PS3 Slim verður svo gefin út um allan heim í næsta mánuði. Hér fyrir neðan má svo sjá myndir af PS3 Slim í samanburði við þá eldri.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví