Brütal Legend getur farið að passa sig því hann verður ekki eini ævintýraleikurinn sem væntanlegur er 13. október. Sony Computer Entertainment tilkynntu í dag að næsta ævintýri harðjaxlsins Nathans Drake, Uncharted 2: Among Thieves væri væntanlegt þann sama dag, og ekki er seinna vænna.
Að vísu á útgáfudagurinn við Ameríku en ekki Evrópu, en við getum gert fastlega ráð fyrir að leikurinn muni koma út á svipuðum tíma í Evrópu. Flestir framleiðendur sem heita ekki Square-Enix hafa sýnt það og sannað að það sé bæði mikilvægt og ekkert mál að gefa út leiki beggja megin Atlantshafsins í sömu vikunni.
Bandarískir (og Kanadískir) neytendur sem forpanta leikinn fá glaðning í leiknum sjálfum, en hver hann er fer eftir versluninni sem þeir forpanta hjá. Best Buy býður upp á gylltar byssur í fjölspilunarhluta leiksins, Amazon lætur fjársjóðskort fylgja með sem hjálpar spilendum að finna falda fjársjóði í gegnum leikinn, Game Crazy gefur hlut sem gefur fólki kleyft að safna stigum hraðar í fjölspilun og Gamestop býður upp á aðgang að multiplayer demóinu þremur vikum á undan öllum öðrum.
Uncharted 2: Among Thieves kemur, eins og áður sagði, 13. október næstkomandi og er að sjálfsögðu eingöngu fyrir Playstation 3.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
GameTíví




0 Responses to “Uncharted 2 væntanlegur 13. október”