- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


SEGA: “Það mun taka langan tíma að laga Sonic”

Eins og margir vita hefur blái broddgölturinn Sonic ekki séð marga góða daga síðan SEGA stóð í því sjálft að gefa út leikjatölvur. Eftir að Dreamcast lagðist af hefur hver Sonic leikurinn verið verri en sá sem áður kom og sjaldan hefur sú regla verið brotin, nema kannski með Sonic and the Seven Rings á Nintendo Wii og Sonic Rush leikjunum tveimur fyrir Nintendo DS.

SEGA veit vel af þessu vandamáli, samkvæmt viðtali IndustryGamers við yfirmann markaðsdeildar Sega í Ameríku, Sean Ratcliffe.

“Gæði (leikjanna) er eitthvað sem verður lagað þegar fram líða stundir. Þetta er ekki eitthvað þar sem maður vaknar einn morguninn og segir “Veistu, við ætlum að bæta gæði þessarar leikjaseríu,” sagði Ratcliffe meðal annars.

Hann segir að Sonic Unleashed hafi fengið góðar viðtökur… hjá krökkum, sem áttu víst að hafa heillast af varúlfspörtum leiksins þar sem hraðinn var hægari, meira var um bardaga og minna um hlaup. “Ég held að eldri Sega aðdáendur sem öldust upp með seríunni og fyrstu Sonic the Hedgehog leikjunum og tengja leikina við hraðan tvívíddan hliðskrunsleik, og þeir fíluðu dagpartana (í Sonic Unleashed), en þegar það kom að hægari pörtum leiksins voru þeir frekar ósáttir við það, og það er allt í lagi – þeir hafa sínar eigin skoðanir,” bætti hann við.

Ratcliffe segir þó að SEGA séu að íhuga að skoða betur klassískar leikjaseríur, hvort sem það er Sonic eða eitthvað annað. iPhone útgáfan af upprunalega Sonic the Hedgehog vakti mikla athygli og naut gífurlegra vinsælda. “Við þurfum ekki lengur að hugsa til heimaleikjatölva og innpakkaðra vara og getum litið í áttina að niðurhalanlegum leikjum,” sagði Ratcliffe. “Við getum skoðað XBLA og slíkt, og það þýðir að við getum gefið þessum kjarnaaðdáendum öðruvísi reynslu. Þetta er hluti af stefnu okkar, að taka klassísk vörumerki og gera þau fáanleg yfir netið frekar en að eyða fullt af pening í að skapa þeim nýja ímynd á Playstation 3 eða Xbox 360.”

Vonandi þýðir þetta að við þurfum að spila fleiri afskræmi eins og Sonic the Hedgehog á PS3/Xbox360 og Sonic and the Black Knight á Nintendo Wii.

Heimildir: IndustryGamers

Kveðja,
GameTíví

sonic_ps3Sonic á einum af sínum slæmu dögum

3 Responses to “SEGA: “Það mun taka langan tíma að laga Sonic””


  • Vonandi fer þessi sería batnandi þó ég kjósi ennþá Sonic á Sega Mega Drive framyfir hinar tölvurnar. Stundum á bara ekkert að vera fikta við gömul masterpiece og reyna betrumbæta.

  • sammála er með emulator þar sem ég spila reglulega gömlu sonnic sonic var fyrsti leikurinn sem ég spilaði og hef verið a´stfanginn af honum síðann. en þeir hafa reinnt að evolva hann og gera hannb etri með að koma með nýjar hugmyndir. hei að evolva legend er no easy thing svo það tókst ekki í fyrstu 2 tilraunum þeir ættu ekki að hætta að reina. það er mín skoðun.

  • ég held að það yrði gaman að sjá hann í 2d með 3d gæði

Comments are currently closed.