Maður verður aldrei þreyttir á að leita að Valla þegar kemur að því að leita að honum í nýju umhverfi. Það getur þó verið svolítið þreytandi að leita að honum aftur og aftur í sömu bókinni þegar hún hefur verið skoðuð nokkrum sinnum. Hins vegar ætlar Ubisoft að bjarga þeim málum með því að gefa út samnefndan leik þar sem spilendur fá tækifæri að leita að Valla í nýju umhverfi.
Leikurinn mun bera heitið Where’s Waldo? The Fantastic Journey þar sem Valli er týndur, enn eina ferðina og það er upp á þig komið að finna hann. Líkt og í bókunum að þá getur þú einnig fundið vini hans í leiðinni, ásamt því er að finna allskonar hluti sem hann hefur týnt í förinni.
Ubisoft hafa einnig lofað fjölspilun fyrir leikinn þar sem allt að fjórir manns geta keppt á milli sín um það hver verði á undan að finna Valla. Spilendur geta svo beitt ýmsum kúnstum gegn andstæðingum sínum til þess að trufla viðkomandi svo þeir verði ekki á undan þér að finna hann.
Where’s Waldo? The Fantastic Journey er svo væntanlegur í haust fyrir PC, Mac, Wii og DS.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
Getur þú fundið Valla?



Stóri föður þarf núna að passa upp á litlu systur ennþá lengur.







Nýleg comment