- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for July, 2009

Page 2 of 4

Disney gerir leiki um Lísu í Undralandi

Disney Interactive Studios er, ef marka má nýjustu fregnir, að vinna að nokkrum leikjum byggðum á kvikmynd Tim Burtons um Lísu í Undralandi.

Leikirnir eru þrír talsins, fyrir Nintendo DS, Nintendo Wii og PC einkatölvur. Í leiknum fara spilendur í hlutverk Lísu og fá að kynnast þekktum persónum á borð við Glottskírisköttinn, Óða hattarann og Hjartadrottninguna og spilaher hennar. DS útgáfan mun svo innihalda sérstaka aukapersónu og DSi eigendur geta notað myndavélina til að opna fyrir sérstaka fídusa.

Leikirnir þrír verða gefnir út um svipað leyti og kvikmyndin. Lísa í Undralandi verður frumsýnd í flestum hlutum heimsins 5. mars á næsta ári og skartar Helenu Bonham Carter, Johnny Depp, Crispin Clover og fleiri leikurum í helstu hlutverkum, en það er nýstirnið Mia Wasikowska sem leikur Lísu.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

alice

Halo anime á leiðinni

Microsoft tilkynnti á Comic-Con, sem fer fram í San Diego þessa dagana, áform um að gera sjö stuttar teiknimyndir sem gerast í Halo heiminumm, Halo Legends, og verða framleiddar með hjálp frá Shinji Aramaki (Appleseed), Mamoru Oshii (Ghost in the Shell) og fimm frægra japanskra teiknimyndavera.

Það eru Toei, BONES, Casio Entertainment, Production I.G. og Studio4 C sem munu gera stuttmyndirnar sjö, og mun Aramaki hafa yfirumsjón með öllu verkinu. Hann mun sjálfur leikstýra einni kvikmynd sem mun fjalla um Spartan stríðsmennina.

Microsoft mun fjármagna verkefnið í gegnum nýstofnaða Halo deild sína, 343 Industries, en deildin mun sjá um allt Halo tengt, allt frá teiknimyndunum til skáldsagna og myndasagna. Þá mun deildin einnig sjá til þess að Aramaki og félagar fari ekki of frjálslega með hinn helga Halo heim.

Teiknimyndunum verður dreift í gegnum Xbox Live Marketplace í haust og er svo stefnt að útgáfu þeirra á DVD og Blu-Ray á fyrri hluta næsta árs.

Heimildir: Gamasutra

Kveðja,
GameTíví

halo_legendsMaster Chief(?) á japanskan máta

BioWare hita upp fyrir Mass Effect 2 með myndasögum

Stórgóðar fréttir fyrir alla Mass Effect aðdáendur!

Eitt vinsælasta hlutverkaleikja fyrirtækið í dag, BioWare, tilkynntu nú á dögum að þeir væru að vinna að nýjum myndasögublöðum í tengslum við Mass Effect seríuna. Myndasögublöðin munu gangast undir nafninu Mass Effect: Redemption og verða gefin út í samstarfi við „Dark Horse Comics“.

Sagan verður skrifuð af yfir rithöfundinum hjá BioWare, Mac Walter, ásamt John Jackson Miller sem sér um handritið og svo Omar Francia sem sér um teikningarnar, en hann sá einnig um teikningarnar fyrir Star Wars Legacy. Myndasögurnar verða gefnar út í fjórum heftum og mun síðasta heftið leiða að byrjuninni í Mass Effect 2 leiknum.

Fyrsta heftið verður gefið út þann 6. janúar á næsta ári. Við hvetjum alla Mass Effect aðdáendur til þess að kíkja við í Nexus, stutt eftir að tímaritið verður gefið út, til þess að næla sér eintak af Mass Effect: Redemption. Þeir sem þekkja ekki til Mass Effect nú þegar ættu að verða sér um hann fljótlega, því hann er án efa einn besti hlutverkaleikur sem komið hefur út í langan tíma.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

masseffectcomicimage580

Wii MotionPlus tæknin var ekki til staðar fyrr en nú

Margir hafa örugglega velt því fyrir sér af hverju í ósköpunum eru Nintendo að gefa út nýjar viðbætur fyrir hreyfiskynjunina núna, Wii MotionPlus, í stað þess að hafa það innbyggt í fjarstýringunni frá upphafi. Leikir fyrir vélina hefðu ábyggilega verið mun skemmtilegri en þeir líta út í dag, hefðu framleiðendur haft Wii MotionPlus tæknina til staðar við gerð leikja þeirra.

Aftur á móti hefur Shigeru Miyamoto sagt frá því að það hefði verið ómögulegt að hafa Wii MotionPlus tæknina með Wii leikjatölvunni þegar hún var gefinn út. Hann kom einnig að þeim orðum að tæknin var vissulega til staðar, en þá hefði Wii fjarstýringin líklegast kostað rúmlegar 200 dollara eða 25.000 krónur miðað við gengið í dag og hún hefði verið á þyngd við ungabarn.

Núna fer Wii Sports Resort loksins að koma út og fylgir einmitt einn Wii MotionPlus kubbur með leiknum. Þó að leikurinn verði aðeins nokkurs konar sýnishorn fyrir Wii MotoinPlus tæknina að þá lítur hann þrælskemmtilega út og hentar ábyggilega mjög vel í Nintendo Wii leikjasafnið.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

6311889_r1_500

The Saboteur fær staðfestan útgáfudag

sabot

Nýjasti leikurinn frá Pandemic Studio, The Saboteur hefur nú fengið staðfestan útgáfudag og verður hann gefinn út 4. desember í Evrópu.

Þú ferð í hlutverk skemmdarverkamann í París sem berst fyrir lífi sínu gegn nasistum sem herja borgina dag og nótt. Leikurinn skartar mjög sérstakan stíl þar sem nánast allir litir leiksins eru svarthvítir og um leið og þú lýkur við verkefnum, byrjar umhverfið að taka á sig liti.

Það sem sýnt hefur verið úr leiknum nú þegar lítur bara nokkuð vel út og bendir allt til þess að leikurinn verði áhugaverður í spilun. Eins og áður var getið, er leikurinn væntanlegur þann 4. desember fyrir PC, Xbox 360 og PS3.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Sam Raimi leikstýrir Warcraft myndinni

Fréttasíðan Variety hefur staðfest að Warcraft kvikmyndin, sem hefur verið í bígerð í nokkur ár, hafi fengið leikstjóra. Það er enginn annar en Sam Raimi (Evil Dead, Spider-Man) sem mun sitja í leikstjórastólnum. Það er því óhætt að segja að engin tölvuleikjakvikmynd hafi haft jafn frægan leikstjóra og Warcraft, en Sam Raimi hefur halað inn milljörðum dala fyrir þær myndir sem hann hefur gert í gegnum tíðina.

Raimi mun hafa yfirumsjón með myndinni á meðan hann tekur upp Spider-Man 4, og stefnt er að því að taka Warcraft myndina upp þegar fjórða kvikmyndin um köngulóarmanninn er tilbúin.

Leikstjórinn frægi er þó ekki eina stóra nafnið sem búið er að festa við kredit lista myndarinnar því Charles Roven, einn af framleiðendum Batman Begins og The Dark Knight, er framleiðandi kvikmyndarinnar. Þá hefur einnig verið staðfest að Chris Metzen, faðir Warcraft heimsins, verði meðframleiðandi kvikmyndarinnar, sem mun væntanlega sjá til þess að öllum gæðastöðlum verður fylgt eftir.

Eins og frægt er gerði Blizzard Entertainment samning við Legendary Pictures (The Dark Knight, 300) árið 2006 og hafa fyrirtækin tvö fyllilega staðið við sitt hingað til. Ekki er komin dagsetning á Warcraft myndina en það er líklega óhætt að fullyrða að hún komi ekki fram á sjónarsviðið fyrr en árið 2011.

Heimildir: Variety

Kveðja,
GameTíví

wrath_of_the_lich_king

Uncharted 2 væntanlegur 13. október

Brütal Legend getur farið að passa sig því hann verður ekki eini ævintýraleikurinn sem væntanlegur er 13. október. Sony Computer Entertainment tilkynntu í dag að næsta ævintýri harðjaxlsins Nathans Drake, Uncharted 2: Among Thieves væri væntanlegt þann sama dag, og ekki er seinna vænna.

Að vísu á útgáfudagurinn við Ameríku en ekki Evrópu, en við getum gert fastlega ráð fyrir að leikurinn muni koma út á svipuðum tíma í Evrópu. Flestir framleiðendur sem heita ekki Square-Enix hafa sýnt það og sannað að það sé bæði mikilvægt og ekkert mál að gefa út leiki beggja megin Atlantshafsins í sömu vikunni.

Bandarískir (og Kanadískir) neytendur sem forpanta leikinn fá glaðning í leiknum sjálfum, en hver hann er fer eftir versluninni sem þeir forpanta hjá. Best Buy býður upp á gylltar byssur í fjölspilunarhluta leiksins, Amazon lætur fjársjóðskort fylgja með sem hjálpar spilendum að finna falda fjársjóði í gegnum leikinn, Game Crazy gefur hlut sem gefur fólki kleyft að safna stigum hraðar í fjölspilun og Gamestop býður upp á aðgang að multiplayer demóinu þremur vikum á undan öllum öðrum.

Uncharted 2: Among Thieves kemur, eins og áður sagði, 13. október næstkomandi og er að sjálfsögðu eingöngu fyrir Playstation 3.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

unchartedbox

PSN notandi lögsækir Sony fyrir að banna sig

Það getur reynst erfitt að fá sig bannaðan algjörlega af þjónustum á borð við Playstation Network og Xbox Live, en alls ekki ómögulegt, líkt og Erik Estavallo sannaði þegar hann fór yfirum í Resistance: Fall of Man. Hann fór þó heldur óhefðbundna leið til þess að leysa sín mál. Á meðan flestir hefðu líklega haft samband við Sony ákvað Estavallo að fara dómstólaleiðina og lögsótti Sony.

Estavallo segir að bannið brjóti á tjáningarfrelsi sínu, rétti sem hann hefur samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna, þar sem hann var ekki eingöngu bannaður frá því að spila Resistance heldur einnig alla aðra netleiki yfir PSN. Þetta hefur víst allt valdið honum miklu hugarangri og þjáningu þar sem sökum agrófóbíú (s.s. hræðsla við mannfjölda) er Playstation Network eini staðurinn þar sem hann getur haft samskipti við annað fólk.

Estavallo fer fram á 55.000 dollara skaðabætur og að banninu verði aflétt. Hann segir að Playstation 3 sé “eina tölvan þar sem notendur eru bannaðir algjörlega frá þjónustunni. Á meðan Nintendo bannar enga notendur. Og Microsoft Xbox bannar sjaldan.”

Það verður áhugavert að sjá hvernig málið fer því það gæti verið fordæmisgefandi fyrir aðra notendur sem eru bannaðir fyrir andfélagslega hegðun.

Heimildir: GamePolitics.com

Kveðja,
GameTíví

angrycustomer

Electronic Arts afhjúpar 15 ný lög í Beatles: Rock Band

Electronic Arts og Harmonix hafa afhjúpað fimmtán lög í Beatles: Rock Band til viðbótar við þau tíu sem við vissum nú þegar um. Það er því búið að afhjúpa 25 lög samtals, en við getum gert ráð fyrir því að enn fleiri lög verði afhjúpuð eftir því sem á líður. Leikurinn sjálfur er væntanlegur 9. september næstkomandi á Xbox 360, Nintendo Wii, Playstation 2 og Playstation 3.

Eftirfarandi lög eru staðfest:

  • I Saw Her Standing There
  • Twist And Shout
  • Do You Want To Know A Secret
  • I Want to Hold Your Hand
  • Can’t Buy Me Love
  • I Wanna Be Your Man
  • I Feel Fine
  • Eight Days A Week
  • Day Tripper
  • Paperback Writer
  • Taxman
  • And Your Bird Can Sing
  • Yellow Submarine
  • Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band
  • With a Little Help from My Friends
  • Within You Without You / Tomorrow Never Knows
  • I Am The Walrus
  • Back In The U.S.S.R.
  • Octopus’s Garden
  • Birthday
  • Revolution
  • Here Comes The Sun
  • Dig A Pony
  • Get Back
  • I’ve Got A Feeling

Kveðja,
GameTíví

beatlesrockband

Sérhönnuð Modern Warfare 2 fjarstýring í vinnslu?

Í dag eru rúmlega fjórir mánuðir þangað til að  Call of Duty: Modern Warfare 2 verði gefinn út fyrir PS3, Xbox 360 og PC. Það er löngu vitað að Activision ætla sér að fara langt með að auglýsa gripinn og kemur það engum á óvart þar sem Call of Duty 4: Modern Warfare sló mörg met á ferli sínum.

Nýjustu orðrómarnir hljóma svo að nú sé ný fjarstýring í vinnslu fyrir Modern Warfare 2 sem verður sérhönnuð fyrir sjálfan leikinn. Einn af hönnuðum leiksins, Robert Bowling kom þeim orðrómum af stað með því að senda út skilaboð þar sem hann spyr lesendur hvort fjarstýringin ætti að vera með íholótt grip á stýripinnunum (líkt og Xbox 360 fjarstýringin) eða kúptar (líkt og PS3 fjarstýringin).

Eins og staðan er í dag að þá er ekki alveg ljóst hvort það verður eitthvað úr fjarstýringunni eða ekki. Hvorki Activision né Infinity Ward eru að vinna að fjarstýringunni, þannig að hún mun væntanlega ekki fylgja með leiknum. Við værum samt sem áður ekkert á móti því að prófa eina slíka sem birt er hér fyrir neðan. En það verður örugglega ekki alveg strax, ekki fyrr en að hreyfiskynjunin og myndavélarnar hafa náð góðu sessi í tölvuleikjabransanum.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

mw2controller072009-580px