- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Dragon Quest IX hefur selst í meira en 3 milljónum eintaka

Dragon Quest IX: Defenders of the Starry Sky, sem kom út á Nintendo DS í Japan 11. júlí síðastliðinn, er víst búinn að seljast í meira en 3 milljónum eintaka. Þetta væru kannski ekki merkar fréttir ef leikurinn hefði komið út alls staðar, en svo er ekki raunin; Japan er eina landið sem hefur fengið leikinn hingað til. Þetta þýðir að einn af hverjum 42 Japönum eiga leikinn. Geri aðrir betur!

Í Dragon Quest IX leika spilendur engil sem verður fyrir því óláni að missa geislabauginn og vængina sína og þarf að ferðast um mannheima til að komast aftur í englatölu. Það er þó erfiðara en hann heldur, en hann er þó alls ekki hjálparlaus því nokkurs konar blómálfur að nafni Sandy ákveður að hjálpa honum í leit sinni. Þá er einnig hægt að skella þremur öðrum persónum, sem maður býr til frá grunni, í hópinn líka til þess að yfirbuga erfiðari óvætti heimsins.

Dragon Quest IX var sá tíundi til að fá fullt hús stiga, 40 stig af 40 mögulegum, í hinu virta tímariti Famitsu, svo það eru einhverjar ástæður á bak við vinsældir leiksins. Fyrir utan að Dragon Quest serían hefur alltaf verið vinsæl í Japan, en því miður nær óþekkt á vesturlöndum. Square-Enix hafa þó reynt að bæta úr því, meðal annars með því að gefa út endurgerðirnar af Dragon Quest IV og Dragon Quest V á Nintendo DS, og vonast þeir til að leikurinn fái góðar viðtökur þegar hann kemur út í Norður-Ameríku og Evrópu á næsta ári.

Þó er búist við að leikurinn verði undir frá og með morgundeginum, 1. ágúst, en þá verður nýjasti leikurinn í Monster Hunter seríunni gefinn út á Nintendo Wii.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

dragonquest

0 Responses to “Dragon Quest IX hefur selst í meira en 3 milljónum eintaka”


Comments are currently closed.