- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


BioShock 2 frestað fram til 2010

Þessi frétt ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart en hún þykir þó afar dapurleg. Á blaðamannafundi Take Two fyrirtækisins, sem haldinn var í gærkvöldi, var tilkynnt að BioShock 2 myndi ekki geta framfylgt útgáfudegi sínum þar sem leikurinn hafði fengið útgáfudaginn 30. október. Í staðinn hefur leikurinn verið færður fram yfir á næsta ári og mun þar með ekki láta ljós sitt skína í undirdjúpinu á þessu ári.

Það sem gerði þetta að verkum er að næsta fjárhagstímabil fyrirtækisins byrjar ekki fyrr en í nóvember á þessu ári sem olli því að fyrirtækið neyddist til þess að færa þrjá stórtitla sem munu ekki koma út fyrr en árið 2010. Þeir leikir heita Mafia 2, Max Payne 3 og svo BioShock 2 sem margir hafa beðið óðreyfafullir yfir og þar á meðal við. Einnig spilaði inn í þetta mál að hönnuðir leiksins þurftu enn lengri tíma til þess að bæta við nýjum hlutum í leikinn.

Það er nokkuð ljóst að BioShock 2 hefði verið með þeim betri leikjum á þessu ári. Samt sem áður hefur leikurinn ennþá stóran möguleika að hreppa sama heiður fyrir næsta ár. Take Two þóttu afar leiðinlegt að þetta mál skyldi koma fyrir en var þó besta leiðin fyrir fyrirtækið sjálft. Við megum þá búast við að sjá BioShock 2 einhvern tímann í fyrri helmingi næsta árs fyrir PC, Xbox 360 og PS3.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

bioshock_pc_demoStóri föður þarf núna að passa upp á litlu systur ennþá lengur.

1 Response to “BioShock 2 frestað fram til 2010”


Comments are currently closed.