- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for July, 2009

Dragon Quest IX hefur selst í meira en 3 milljónum eintaka

Dragon Quest IX: Defenders of the Starry Sky, sem kom út á Nintendo DS í Japan 11. júlí síðastliðinn, er víst búinn að seljast í meira en 3 milljónum eintaka. Þetta væru kannski ekki merkar fréttir ef leikurinn hefði komið út alls staðar, en svo er ekki raunin; Japan er eina landið sem hefur fengið leikinn hingað til. Þetta þýðir að einn af hverjum 42 Japönum eiga leikinn. Geri aðrir betur!

Í Dragon Quest IX leika spilendur engil sem verður fyrir því óláni að missa geislabauginn og vængina sína og þarf að ferðast um mannheima til að komast aftur í englatölu. Það er þó erfiðara en hann heldur, en hann er þó alls ekki hjálparlaus því nokkurs konar blómálfur að nafni Sandy ákveður að hjálpa honum í leit sinni. Þá er einnig hægt að skella þremur öðrum persónum, sem maður býr til frá grunni, í hópinn líka til þess að yfirbuga erfiðari óvætti heimsins.

Dragon Quest IX var sá tíundi til að fá fullt hús stiga, 40 stig af 40 mögulegum, í hinu virta tímariti Famitsu, svo það eru einhverjar ástæður á bak við vinsældir leiksins. Fyrir utan að Dragon Quest serían hefur alltaf verið vinsæl í Japan, en því miður nær óþekkt á vesturlöndum. Square-Enix hafa þó reynt að bæta úr því, meðal annars með því að gefa út endurgerðirnar af Dragon Quest IV og Dragon Quest V á Nintendo DS, og vonast þeir til að leikurinn fái góðar viðtökur þegar hann kemur út í Norður-Ameríku og Evrópu á næsta ári.

Þó er búist við að leikurinn verði undir frá og með morgundeginum, 1. ágúst, en þá verður nýjasti leikurinn í Monster Hunter seríunni gefinn út á Nintendo Wii.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

dragonquest

Xbox Avatars smeygja sér inn í Guitar Hero 5

gh5avatar

Xbox 360 eigendur sem ætla sér að festa kaup á Guitar Hero 5 hafa fengið enn eina ástæðuna til að gleðjast því Activision hefur upplýst að hægt verður að nota Xbox kallana (“avatars”) í leiknum. Það þýðir að þið getið skapað heilu hljómsveitirnar sem líta út eins og krúttlegar útgáfur af ykkur sjálfum!

Hversu kúl er það að spila saman félagarnir bæði fyrir framan sjónvarpið OG inni í sjónvarpinu lög David Bowie og Rolling Stones? Eða sjá sjálfan sig spila með listamönnum á borð við Kurt Cobain og Johnny Cash? Það er bara frekar kúl, ef eitthvað er!

Guitar Hero 5 er nýjasti leikurinn í rokktónlistarseríu Activision og er væntanlegur 1. september næstkomandi á Xbox 360, Playstation 2, Playstation 3 og Nintendo Wii. Hægt er að spila á trommur, bassa og gítar í leiknum og raula með lögum. 85 lög frá jafn mörgum listamönnum eru í leiknum og má sjá allan listann eftir stökkið.

Ef þetta er ekki nóg til þess að sannfæra fólk, þá má bæta því við að listamennirnir Matt Bellamy (Muse), Shirley Manson (Garbage), Kurt Cobain (Nirvana) og Johnny Cash birtast í tölvutæku formi á skjánum.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

Continue reading ‘Xbox Avatars smeygja sér inn í Guitar Hero 5′

SEGA: “Það mun taka langan tíma að laga Sonic”

Eins og margir vita hefur blái broddgölturinn Sonic ekki séð marga góða daga síðan SEGA stóð í því sjálft að gefa út leikjatölvur. Eftir að Dreamcast lagðist af hefur hver Sonic leikurinn verið verri en sá sem áður kom og sjaldan hefur sú regla verið brotin, nema kannski með Sonic and the Seven Rings á Nintendo Wii og Sonic Rush leikjunum tveimur fyrir Nintendo DS.

SEGA veit vel af þessu vandamáli, samkvæmt viðtali IndustryGamers við yfirmann markaðsdeildar Sega í Ameríku, Sean Ratcliffe.

“Gæði (leikjanna) er eitthvað sem verður lagað þegar fram líða stundir. Þetta er ekki eitthvað þar sem maður vaknar einn morguninn og segir “Veistu, við ætlum að bæta gæði þessarar leikjaseríu,” sagði Ratcliffe meðal annars.

Hann segir að Sonic Unleashed hafi fengið góðar viðtökur… hjá krökkum, sem áttu víst að hafa heillast af varúlfspörtum leiksins þar sem hraðinn var hægari, meira var um bardaga og minna um hlaup. “Ég held að eldri Sega aðdáendur sem öldust upp með seríunni og fyrstu Sonic the Hedgehog leikjunum og tengja leikina við hraðan tvívíddan hliðskrunsleik, og þeir fíluðu dagpartana (í Sonic Unleashed), en þegar það kom að hægari pörtum leiksins voru þeir frekar ósáttir við það, og það er allt í lagi – þeir hafa sínar eigin skoðanir,” bætti hann við.

Ratcliffe segir þó að SEGA séu að íhuga að skoða betur klassískar leikjaseríur, hvort sem það er Sonic eða eitthvað annað. iPhone útgáfan af upprunalega Sonic the Hedgehog vakti mikla athygli og naut gífurlegra vinsælda. “Við þurfum ekki lengur að hugsa til heimaleikjatölva og innpakkaðra vara og getum litið í áttina að niðurhalanlegum leikjum,” sagði Ratcliffe. “Við getum skoðað XBLA og slíkt, og það þýðir að við getum gefið þessum kjarnaaðdáendum öðruvísi reynslu. Þetta er hluti af stefnu okkar, að taka klassísk vörumerki og gera þau fáanleg yfir netið frekar en að eyða fullt af pening í að skapa þeim nýja ímynd á Playstation 3 eða Xbox 360.”

Vonandi þýðir þetta að við þurfum að spila fleiri afskræmi eins og Sonic the Hedgehog á PS3/Xbox360 og Sonic and the Black Knight á Nintendo Wii.

Heimildir: IndustryGamers

Kveðja,
GameTíví

sonic_ps3Sonic á einum af sínum slæmu dögum

Slefið yfir þessum Final Fantasy XIII skjáskotum

final-fantasy-xiii

Það er enn nokkur tími í að Final Fantasy XIII komi út í Evrópu, svo það eina sem hægt er að gera þessa stundina er að skoða skjáskot og myndir úr leiknum. Hingað til hafa flest skjáskot verið frekar takmörkuð við innandyrahasar og bardagaskot, en hér má sjá þrjár myndir sem sýna hvernig heimurinn í Final Fantasy XIII kemur til með að líta út.

Final Fantasy XIII er væntanlegur á Playstation 3 og Xbox 360 á næsta ári. Vonandi.

Það er eitthvað ofan í sjónum, eða inn á skrifstofunni

Þið sem hafið fylgst með öllum fréttum varðandi  BioShock 2 hafið ábyggilega rekist á fréttina „það er eitthvað ofan í sjónum“ sem fór af stað fyrir nokkrum mánuðum síðan á mjög dularfullan hátt. Framleiðendur leiksins settu upp undarlegu heimasíðu sem innihélt vísbendingar sem leiddu að stóru systur sem var svo afhjúpuð, stutt eftir að allar vísbendingarnar voru komnar fram.

Nýlega var BioShock 2 frestað fram til ársins 2010 og urðu örugglega margir sárir að heyra frá því. 2K Marine sitja þó ekki aðgerðalausir þrátt fyrir það og vinna þess vegna hörðum höndum þessa dagana til þess að leikurinn líti sem best út.

Í tilefni komu leiksins settu framleiðendur upp heila skrifstofu fyrir sjálfan leikinn á Comic-Con hátíðinni sem fór fram fyrir örfáum dögum. Inn á skrifstofunni mátti sjá marga furðulega hluti, þar á meðal kortið sem var notast við á heimasíðu þeirra, „það er eitthvað ofan í sjónum“. Öll smáatriði sem voru að finna á skrifstofunni tengist BioShock 2 á einhvern hátt, en framleiðendurnir vildu að sjálfsögðu ekki gefa það upp.

Þeir sem hafa áhuga á að kíkja inn á skrifstofuna á veraldarvefnum, geta litið inn í hana á heimasíðu þeirra „There’s Something in the Sea.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

bioshocksdcc10Svona leit skrifstofan út á Comic-Con hátíðinni.

Myndbrot úr fjölspilunar hluta, Modern Warfare 2

nr-1

Þeir sem hafa einhvern tímann spilað fjölspilunar hlutann í Call of Duty 4: Modern Warfare vita nákvæmlega hversu skemmtilegt það er að taka nokkra leiki með vinum og vandamönnum. Menn fara létt með að gleyma sér í leiknum og áður en þú veist að hafa margar klukkustundir fokið fram hjá þér, þar sem skemmtunar gildið er í hámarki.

Þann 10. nóvember næstkomandi hefst svo gamanið enn á ný í glænýjum leik. Fyrir nokkrum dögum gáfu Infinity Ward út nýtt myndbrot úr fjölspilunar hluta í Call of Duty: Modern Warfare 2 sem sýnir nokkrar breytingar sem þeir hafa bætt við frá því síðasta leik. Nú hafa þeir bætt við risa flugvél sem þú færð að stjórna ef þú nærð að drepa 11 andstæðinga í röð, án þess að láta lífið sjálfur.

Við erum afar spenntir yfir Modern Warfare 2, því hann á klárlega eftir að slá í gegn eins og allir hinir Call of Duty leikirnir sem Infinity Ward hafa unnið að. Ef þið viljið sjá bullandi hasar að þá mælum við með því að þið skoðið myndbandið hér fyrir neðan.

Kveðja,
Game Tíví

Ghostbusters (PS3) – Leikjadómur

Fyrir um mánuði síðan gaf Sony út Ghostbusters: The Video Game á Playstation 2 og Playstation 3. Ég hef verið að skemmta mér í Playstation 3 útgáfunni undanfarið, eftir langa og stranga prófatörn, og sem Ghostbusters aðdáandi verð ég að viðurkenna að ég er afar sáttur. En ef ég á að skoða leikinn frá sjónarhorni leikjaspilandans, þá er ýmislegt sem má bæði lofa og lasta. Hvernig stendur leikurinn sig í heildina? Er hann eitthvað góður?

Ghostbusters: The Video Game er í sjálfu sér þriðja kvikmyndin, í það minnsta þangað til Ghostbusters 3 kemur út. Leikmenn fara í hlutverk “nýliðans,” nýasta meðlims drauabananna, en hann er í gegnum leikinn einfaldlega kallaður “Rookie.” Leikurinn gerist eftir Ghostbusters 2, nánar til tekið árið 1991, og fara undarlegir hlutir að gerast enn á ný eftir að PKE höggbylgja skekur New York. Hinn frægi draugur Slími sleppur í kjölfarið og tekur sér bólfestu í fyrri dvalarstað sínu, Sedgewick hótelinu sínu. Draugabanarnir neyðast til að sækja hann þangað aftur, og komast að því að verkefni þeirra er þó mun stærra og erfiðara en það virðist og teygir sig til guðsins Gozer og hinn brjálaða Ivo Shandor, sem minnst var á í fyrstu myndinni.ghostbusters_march__711_ Continue reading ‘Ghostbusters (PS3) – Leikjadómur’

Bungie stutt frá því að bleka samning um nýjan leik

Bungie hafa síðastliðin ár fyrir að pumpa út hverjum Halo leiknum á eftir öðrum. Ekki lengur, að eigin sögn, því þeir eru að vinna að glænýjum leik og eru stutt frá því að ná samningi við útgefanda til að gefa leikinn út.

Aðspurður hvort þeir væru búnir að finna nýjan útgefanda sagði Lars Bakken hjá Bungie: “Ég tel að við munum vita það frekar fljótlega. Ég sé ekki um þessa hluti en ég get alveg ímyndað mér að við myndum frétta af þessu áður en við gefum út almenna tilkynningu um hver útgefandinn verður! En já, ég held þetta sé alveg að koma.”

Bungie eru frekar hljóðir um verkefnið, enda þýðir lítið að fara að tala um það á meðan enn sé óvíst hvort leikurinn komi út yfir höfuð. Það virðist þó ekki vera langt í að þeir nái samningum við nýjan útgefanda og við bíðum bara spaklega þangað til það gerist.

Bungie sleit sig frá Microsoft fyrir tveimur árum og varð að sjálfstæðum framleiðanda, en þrátt fyrir það hafa þeir haldið ótrauðir áfram að gefa út Halo leikina og eru ekki nærri því búnir með þá enn. Halo: ODST verður gefinn út 22. september næstkomandi, og fyrir utan það er Halo: Reach einnig í framleiðslu.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

bungie3qy

Brütal Legend lítur vel út

brutal_legend11
Það eru fullt, fullt af framhöldum sem koma út í ár. Brütal Legend er ekki eitt þeirra. Brütal Legend er nýr leikur frá snillingnum Tim Schafer, en hann hefur áður fært okkur snilldir á borð við Grim Fandango, Full Throttle og Psychonauts, en sá síðastnefndi var þróaður af Double Fine Productions, sama fyrirtæki og vinnur hörðum höndum að Brütal Legend.

Í leiknum setja spilendur sig í spor rótarans Eddie Riggs (talsettur af Jack Black) sem lendir í heimi þungamálms eftir að blóð snertir töfrum gædda beltissylgju hans. Er heimurinn á barmi eyðileggingar og þarf Riggs því að nota allt sem hann kann, og meira til, til þess að bjarga heiminum, og þungamálmi, frá eyðileggingu.

Hér fyrir neðan má sjá tvö myndbönd úr leiknum. Leikurinn er væntanlegur á Playstation 3 og Xbox 360 í rokktóber.

Kane er snúinn aftur!

kane

Kane, úr Command & Conquer seríunni, er snúinn aftur og það í fjórða og síðasta sinn og mun Joe Kucan að sjálfsögðu fara með hlutverk hans. Leikurinn gengur undir nafninu Command & Conquer 4, þar sem spilun hans verður afar ólík fyrrum C&C leikjum og mun hann fjalla um loka kaflann í Tiberum stríðinu.

Nú á dögum kom út nýtt myndband frá C&C teyminu sem sýnir nokkuð veginn hvað koma skal við sögu í leiknum. Æðstu menn GDI herflokksins sitja ráðþrota við hringborð og reyna að velta því fyrir sér hvað næsta skref skuli þeir taka. Á meðan gengur Kane inn, í fylgd með tveimur GDI hermönnum, og varpar fram hinni undarlegu kúlu sem við fengum að sjá í blálokin í Kane’s Wrath aukapakkanum.

Það verður mjög spennandi að sjá hvernig EA Los Angeles munu útfæra leikinn og enda þetta geysimikla stríð. Leikurinn verður gefinn út einhvern tímann á næsta ári, eingöngu fyrir PC einkatölvurnar.

Kveðja,
Game Tíví