Já, við erum harðir og bjóðum ávallt það besta! Nú fást Red Faction Guerilla og Bionic Commando á 20% afslætti í Elko. Báðir leikirnir hafa fengið mjög góða dóma hjá erlendum leikjasíðum og er óhætt að mæla með þeim báðum. Ef þú villt kynna þér leikina betur að þá getur þú smellt hér.
Þann 6. júní 2009, í gær, eru nákvæmlega 25 ár frá því að hinn alkunnugi Tetris var búinn til. Maður frá Rússlandi að nafni Alexey Pajitnov hannaði upprunalega Tetris leikinn sem varð strax vinsæll og ennþá daginn í dag er hann einn vinsælasti leikur allra tíma, því allir þekkja og hafa spilað Tetris.
Þessu ber að fagna vel og hvetjum við ykkur, fyrir þá sem vissu ekki af þessu, að spila leikinn í dag og njóta þess. Hægt er nálgast Tetris nánast allstaðar daginn í dag og þar á meðal á netinu, i-Podnum, Gameboy, Nintendo DS, Wii og víða annarstaðar. Hér er til dæmis ein útgáfa á leiknum á freetetris.org, annar hlekkur að fríum leik frá okkur Game Tíví bræðrum.
Hér fyrir neðan er svo stutt myndband sem sýnir nokkuð veginn þróun leiksins og segir frá sögu Tetris í örstuttu máli.
Margir aðdáendur Nintendo urðu kannski fyrir vonbrigðum að sjá ekki úr nýja Zelda leiknum fyrir Wii á Nintendo blaðamannafundinum á E3. Af einhverjum ástæðum fannst leikjasnillingnum Shigeru Miyamoto, faðir Zelda leikjanna, E3 ekki vera rétti tíminn til þess að sýna úr leiknum þar sem Nintendo vildu koma öðrum leikjum á framfari.
Í stað þess að afhjúpa nýjan Zelda leik á blaðamannafundi Nintendo, að þá hélt Shigeru Miyamoto sjálfur kynningu um verkefni sín og bauð hann aðeins ákveðnum einstaklingum á þann fund. Á kynningunni nefndi hann að nýr Zelda leikur fyrir Wii myndi ekki koma út fyrr en á næsta ári en gæti þó tekið aðeins lengri tíma en þeir ætla sér.
Hann talaði einnig um að það væri möguleiki á því að næsti Zelda leikur myndi eingöngu spilast með nýju Motion Plus græjunni sem þeir munu gefa út í næsta mánuð. En hann vildi þó ekki staðfesta það alveg þar sem þeir eiga enn eftir að ákveða það.
Þessar fregnir ættu að hressa upp á þá einstaklinga sem bíða óðreyfafullir eftir næsta Zelda leik fyrir Nintendo Wii leikjatölvuna. Myndin hér fyrir neðan var sýnd á kynningunni þegar Shigeru Miyamoto ræddi um Zelda leikinn. Það lítur út fyrir að Link þurfi að hjálpa Zora’s ættbálknum í næstkomandi Zelda leik fyrir Wii, eða hvað?
Það getur ekki verið annað en skemmtilegt að spila fjögramanna Mario leik.
Á síðastliðin þriðjudag héldu Nintendo blaðamannafund á E3 sýningunni sem gengur nú yfir út þessa viku. Enn og aftur þótti blaðamannafundur þeirra frekar slappur í ár miðað við það sem Microsoft og Sony höfðu að segja um sínar vélar.
Þrátt fyrir það voru samt sem áður nokkrir mjög áhugaverðir leikir kynntir og spilar píparinn frægi, Mario mikið inn í það. Nintendo sýndu úr tveimur nýjum leikjum með kappanum í aðalhlutverki fyrir Nintendo Wii ásamt tveimur DS leikjum, Mario & Luigi: Bowser Inside Story og Mario vs. Donkey Kong: Minis March Again.
Þeir leikir sem voru kynntir fyrir Nintendo Wii leikjatölvuna voru New Super Mario Bros. Wii, sem er væntanlegur um jólin á þessu ári, og hinn var Super Mario Galaxy 2 sem kemur því miður ekki út fyrr en á næsta ári. New Super Mario Wii minnir mikið á New Super Mario Bros. fyrir DS vélina nema nú geta allt að fjórir vinir spilað saman í einu og er það algjörlega nýtt fyrir Mario leikina.
Aðrir leikir voru einnig kynntir á blaðamannafundi þeirra og má þar nefna Wii Fit Plus, Final Fantasy: The Crystal Bearers, Golden fyrir DS og svo lauk sýningu þeirra með Metriod: Other M. Því miður var Link og félagar úr Zelda seríunni skildir útundan og var ekkert nýtt sýnt úr þeirri seríu.
Það lítur út fyrir að leikjaframleiðendur nú til dags, leggja hart á sig til þess að koma með fleiri hugmyndir svo þeir geti bætt tölvuleikjabransann ennþá betur. Við höfum séð mörg dæmi um slík verk síðustu árin og má þar nefna t.d. Nintendo Wii leikjatölvuna sem boðaði miklar breytingar til þess að leikja unnendur gætu upplifað spilun tölvuleikja á nýjan hátt.
En Nintendo eru ekki þeir einu sem hafa haft það í huga að breyta spilun tölvuleikja. Því Microsoft eru langt komnir í því að þróa nýja tækni sem kallast Project Natal sem mun gefa þér kleift að spila leiki án þess að vera þurfa að nota stýripinnann á nokkurn veg.
Project Natal líkist PlayStation Eye myndavélinni að nokkur leiti en bíður þó upp á mun fleiri aðgerðir heldur en PlayStation Eye hefur gert hingað til. Hún skynjar bæði hreyfingar og raddir og gæti auðveldlega numið hver væri að spila Xbox 360 tölvuna í fjölskyldunni þinni. Project Natal verður með innbyggða myndavél sem skynjar umhverfið þitt í þrívídd og kemur það sér mjög vel að gagni fyrir leikjahönnuði, til þess að þeir geti hannað ýmsa þrautaleiki eða annars konar leiki.
Þeir hjá Lionhead Studios fengu Project Natal afhenda snemma til þess að þeir gætu búið til stutta kynningu fyrir tækið og skoðað möguleikana út frá gripnum. Úr því, varð til Milo Project sem er nokkurs konar tæknisýnishorn sem sýnir okkur þann möguleika hvað við getum gert með því sleppa takinu á stýripinnanum og notað aðeins þær aðferðir sem Project Natal bíður upp á.
Myndbandið hér fyrir neðan sýnir atriðið á Microsoft blaðamannafundinum þegar Peter Molyneux sýnir úr verki þeirra, Milo Project. Verkið lítur stórkostlega vel út og verður spennandi að sjá næsta leik frá Lionhead Studios, ef þeir verða með eitthvað svipað og þeir hafa verið að gera með Milo Project.
Það voru ekki bara Xbox 360 eigendur sem fengu góðar fréttir í gær því allir unnendur klassískra ævintýraleikja hafa eflaust hoppað hæð sína af gleði þegar Lucas Arts tilkynntu að Monkey Island serían hafi verið vakin upp frá dauðum. Þau eru orðin ansi mörg árin síðan síðasti Monkey Island leikur, Escape from Monkey Island, kom út á PC einkatölvur og Playstation 2 árið 2000.
The Secret of Monkey Island kom fyrst út árið 1992 og var þróaður af herramönnunum Ron Gilbert, Tim Schafer og David Grossman. Hann mun koma aftur út í sumar, í þetta sinn á Xbox Live Arcade og PC niðurhal undir nafninu The Secret of Monkey Island: Special Edition, en búið er að taka leikinn alveg í gegn án þess að gera hann óþekkjanlegan, líkt og sjá má á skjáskotinu hér fyrir neðan. Búið er að talsetja allar línurnar í leiknum og snúa allir upphaflegu raddleikararnir úr The Curse of Monkey Island og Escape from Monkey Island aftur. Það þýðir að sjálfsögðu að Dominic Armato muni snúa aftur sem Guybrush Threepwood og er það nóg til þess að fá flesta Monkey Island aðdáendur til að anda léttar.
Á vefsíðu leiksins má finna fleiri skjáskot auk myndbands þar sem Ron Gilbert, aðalheilinn á bak við leikinn, gefur samþykki sitt fyrir endurgerðinni. Leikurinn er alfarið þróaður innanhúss hjá Lucas Arts.
My name is Guybrush Threepwood and I want to be a pirate!
The Secret of Monkey Island: Special Edition er þó ekki eina Monkey Island efnið sem er á leiðinni því Telltale Games, sem eru þekktastir fyrir að þróa og gefa út nýjustu Sam & Max ævintýraleikina, eru að vinna að glænýjum Monkey Island leik sem mun koma út í fimm hlutum og nefnist Tales of Monkey Island. Aðalhönnuður leiksins er David Grossman, en eins og áður hefur komið fram var hann einn af hönnuðum fyrsta Monkey Island leiksins.
Fyrsti þátturinn í Tales of Monkey Island, Launch of the Screaming Narwhal, er væntanlegur á PC einkatölvur og WiiWare 7. júlí næstkomandi, en hægt er að forpanta alla fimm þættina á heimasíðu leiksins og fá ýmislegt spennandi í kaupbæti.
Hideo Kojima virðist hafa mörg járn í eldinum þessa dagana því að frátöldum Metal Gear Solid: Rising er Kojima Productions víst skráð fyrir Castlevania: Lords of Shadow sem væntanlegur er á Xbox 360 og Playstation 3 á næsta ári. Er þetta grímuleikurinn okkar?
Þessar upplýsingar komu óvart fram á Games Press, gagnagrunni fyrir starfsmenn og fréttamenn innan leikjabransans, fyrr í nótt, en þegar við kíktum á síðuna fyrir stundu var þar ekkert að finna. Castlevania: Lords of Shadow er þróaður af spænska fyrirtækinu Mercury Steam en Koji Igarashi átti víst að hafa yfirumsjón með verkinu, en hann hefur verið fósturfaðir Castlevania seríunnar undanfarin ár. Svo virðist sem hann hafi stigið til hliðar fyrir Hideo Kojima ef þessar fréttir reynast réttar.
Þetta var þó ekki það eina sem kom fram á Games Press því einnig kom fram að Metal Gear Solid: Rising væri væntanlegur á Playstation 3 og PC einkatölvur til viðbótar við Xbox 360 og að Metal Gear Solid: Peace Walker væri væntanlegur á Playstation Portable.
Þetta mun eflaust vera staðfest eða hrakið á næstu dögum, en E3 sýningunni, sem nú fer fram í Los Angeles, lýkur á fimmtudag.
Í gær stytti upp á heimasíðu Kojima Productions og talan 8 blikkaði stöðugt. Núna er niðurtalningu lokið og engin ný niðurtalning er komin í staðinn. Aftur á móti er ný E3 síða komin í loftið.
Á nýju síðunni má sjá vegg og tvö veggspjöld sem búið er að hengja á hann, annars vegar eitt fyrir glænýjan Metal Gear Solid leik sem heitir Metal Gear Solid: Rising, en sá leikur skartar Raiden í aðalhlutverki. Ef ýtt er á veggspjaldið … stækkar það. Leikurinn var afhjúpaður á fréttamannafundi Microsoft með nýrri stiklu sem má sjá hér fyrir neðan. Þess má geta að tvö Japönsk tákn flassa á skjánum, annars vegar fyrir orðið “vind” og hins vegar “elding.”
Á hinu veggspjaldinu má sjá spurninguna “”Mask?” Who are you?” sem tekur okkur aftur á grímusíðuna góðu. Vonandi fáum við frekari útskýringar á henni á blaðamannafundi Konami síðar í vikunni.
Nýleg comment