- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for June, 2009

Page 2 of 3

Shigeru Miyamoto er hetja flestra leikjahönnuða

industry-executives-1

Á heimasíðu develop fór fram könnun nýlega sem gekk út á að finna hetju flestra leikjahönnuða. Yfir 9,000 leikjahönnuðir voru spurðir út í hvaða leikjahönnuð þeir álita sem hetju sína og voru rúmlega 3,000 leikjahönnuðir nefndir. Til þess að hafa þetta ekki of langt að þá ætlum við aðeins að nefna þá einstaklinga sem náðu topp tíu sætinu.

Það var sjálfur leikjasnillingurinn Shigeru Miyamoto, faðir Mario leikjanna, sem hafnaði í fyrsta sæti og náði þar með 30% af öllum atkvæðunum. Það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart og líta örugglega margir leikjahönnuðir upp til hans, enda hefur hann gert mjög merka hluti í gegnum tíðirnar, bæði tengt tölvuleikjum og til þess að bæta upplifunina við að spila tölvuleiki.

Á eftir honum kemur John Carmack, eigandi id Software, sem hefur einnig gert mjög góða hluti í tölvuleikjaheiminum. Þökk sé honum hafa fyrstu persónu skotleikir aldrei litið betur út þar sem hann hannaði til að mynda Doom sem gerði allt vitlaust á sínum tíma.

Í þriðja sæti varð svo Will Wright, en hann hefur einnig gert mög áhugaverða leiki á borð við Sim City, The Sims og Spore og hafa þeir allir notið mikillar vinsældir í gegnum tíðirnar.

Hér fyrir neðan má svo sjá topp tíu listann yfir þá leikjahönnuði sem fengu flestu atkvæðin í þessari könnun.

Heimildir: Kotaku, develop

Kveðja,
Game Tíví

  1. Shigeru MiyamotoMario, Zelda, NintenDogs, Wii, DS, Nintendo.
  2. John CarmackDoom, snilldar forritari, id Software.
  3. Will Wright - Sim City, The Sims, Spore, Maxis.
  4. Dave JonesLemmings, Grand Theft Auto, Realtime Worlds.
  5. Sid MeierCivilization, MocroProse.
  6. Peter MolyneuxFable, Black & White, Lionhead Studios.
  7. David Braben – Lost Winds, Rollercoaster Tycoon, Frontier.
  8. Masaya Matsuura – PaRappa The Rapper.
  9. Michael Morhaime – StarCraft, Diablo, World of Warcraft, Blizzard Entertainment.
  10. Jonathan Blow – Braid, eingöngu einn að verki.

Tölvuleikir munu spila sig sjálfir í framtíðinni

Ertu þreyttur á því að spila tölvuleiki sjálfur? Eða eru leikirnir alltof erfiðir fyrir þig að þú getur ekki klárað þá sjálfur? Ef svo er, að þá hafa Nintendo fundið lausn á þeim vanda, ef svo má kalla.

Leikjasnillingurinn Shigeru Miyamoto, faðir Mario leikjanna, kynnti nýja aðferð nýlega í viðtali við USA Today þar sem hann staðfesti að leikir frá Nintendo munu bjóða upp á að spila sig sjálfir í framtíðinni. Þetta gefur mönnum kleyft að yfirbuga erfið borð með því að láta gervigreind leiksins sigra borðið sjálft án þess að þú þurfir að ýta á einn hnapp.

Fyrsti leikurinn hjá Nintendo sem mun innihalda þessa aðferð verður New Super Mario Bros. Wii sem er væntanlegur um jólin fyrir Nintendo Wii leikjatölvuna. Hann nefndi einnig að fleiri titlar munu skarta þessa aðferð seinna meir en gaf þó ekki upp neina aðra titla á þessari stundu.

En við spyrjum, er þetta rétt stefna sem þeir hyggjast taka? Tölvuleikir í dag hafa jú, snúist út á að vera stundum erfiðir og eiga til með að innihalda áskorun sem leikja unnendur ber að sigrast á. Okkur þykir þetta furðuleg stefna hjá þeim þó svo að þessi valmöguleiki verður aðeins fyrir hendi. Harðkjarna spilarar munu eflaust hafna þessari skipun þegar hún poppar upp á skjáinn, ekki satt?

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

shigeru_miyamotoLeikirnir of erfiðir?  Láttu Nintendo sjá um að spila leikina fyrir þig!

Verstu störfin í tölvuleikjaheiminum

Þegar maður spilar tölvuleiki hugsar maður sjaldnast um störf þeirra persóna sem maður hittir. Pwn or Die gerðu það hins vegar og hafa sett upp lista yfir 11 verstu störfin í tölvuleikjaheiminum. Af öllum störfunum á listanum eru þrjú úr Fallout heiminum. Störfin 11 eru eftirfarandi:

11. Blaðberi (Paperboy)
10. Bóndi (Destroy All Humans)
09. Dómari (Mutant League Football)
08. Saurmokari (Fallout 2)
07. Tilraunadýr fyrir nýja hliðatækni (Portal)
06. SCV ökumaður (StarCraft)
05. Keflingur (A Kingdom for Keflings)
04. Ghoul læknir (Fallout 3)
03. Vísindamaður (Goldeneye)
02. Portkona (GTA)
01. “Fluffer” (Fallout 2)

Hægt er að skoða listann með ýmsum lýsingum hér. Fyrir þá sem vita enn ekki hvað “fluffer” gerir eftir að hafa lesið yfir allan listann… ekki spyrja. Við skulum bara segja að það sé ekki beint besta starfið sem hægt er að finna hjá Golden Globes klámframleiðandanum í New Reno.

Heimildir: Pwn or Die

Kveðja,
GameTíví

800px-fo2_golden_globes

Byrjað að porta Final Fantasy XIII yfir á Xbox 360

Square-Enix hefur staðfest að vinnsla á Xbox 360 útgáfu Final Fantasy XIII hafi byrjað fyrir um tveimur mánuðum. Það þykir heldur lítið í ljósi þess að Motomu Toriyama og Yoshinori Kitase, tveir af hönnuðum leiksins, sýndu spilanlegt demó af Xbox 360 útgáfu leiksins á E3 sýningunni sem fram fór fyrr í mánuðinum.

“Þangað til demó útgáfa leiksins var gefin út í apríl var leikurinn eingöngu til á Playstation 3,” sagði Kitase í samtali við Giant Bomb. Það virðist því lítið mál fyrir starfsmenn Square-Enix að færa leikinn yfir á Xbox 360, en leikurinn er framleiddur með Crystal Tools vélinni sem notar PC einkatölvur sem basa og gerir framleiðendum leikja auðveldar um vik að færa leiki yfir á mismunandi leikjatölvur.

Toriyama lofaði Xbox 360 eigendum að leikurinn kæmi út í Bandaríkjunum næsta vor. Ekki er víst hvenær Evrópsk útgáfa leiksins kemur út, en líklega verður ekki mikill vandi að panta leikinn frá hinum vitlausum Atlantshafsins.

Heimildir: Giant Bomb

Kveðja,
GameTívígame-final-xiii

Bankahrun í Eve Online?

eve-online-apocrypha-12-patch

Ebank, hinn opinberi banki í Eve Online tölvuleiknum, er í miklum vandræðum eftir að ljóst varð að bankastjórinn sem gengur undir nafninu Ricdic stal miklum upphæðum úr sjóðum bankans og seldi á svörtum markaði til hliðar við leikinn.

Í viðskiptaumhverfi Eve Online ræður nakin frjálshyggjan ríkjum og allt er leyfilegt. Leikurinn inniheldur 66 markaði þar sem 5.000 hlutir eru til sölu og meir en milljón viðskipti fara fram á hverjum degi.

Ebank var strax mjög vinsæll meðal notenda Eve Online og brátt höfðu safnast í hann 8,9 trilljón ISK á 13.000 reikningum sem 6.000 notendur áttu. En einhverstaðar á leiðinni náði græðgin yfirhöndinni hjá yfirstjórn bankans.

Í frásögn af málinu í New York Times segir að eigendur Eve Online hafi sparkað Ricdic út úr leiknum og jafnframt sett alla stjórn Ebankans af meðan verið er að leysa úr þeirri flækju sem komin er upp í framhaldi af því að Ricdic tæmdi sjóði bankans.

Nánar á visir.is

Kv. Game Tíví

Gertaun – hvaða 5 leikir eru þetta..?

Jæja þá er kominn tími á smá getraun, að þessu sinni eru verðlaunin bara að vera fljótastur til að leysa þrautina og þar með vera mesti leikjagúrúinn.

Bráðum verðum við svo með svipaðan leik og glæsileg verðlaun, svo að þetta er fín upphitun fyrir það :)

Getraunin er einföld, 5 myndir, 5 leikir, hvaða leikir eru þetta, svara í comments:

1

2

3

4

5

Just Cause 2 verður góður!

jc2

Just Cause var einn af þessum leikjum sem fæstir tóku mikið eftir en var bara nokkuð góður, helst til einhæfur en að mörgu leiti virkilega töff þegar hann kom út 2006. Nú styttist í að Just Cause 2 komi út og miðað við það sem við erum búnir að sjá gæti þetta orðið frábær sandbox leikur í anda Grand Theft Auto leikjanna, í bland við Bionic Commando og FarCry, ekki slæm blanda það! Klárlega leikur sem vert er að athuga :)

Hér er svo smá sýnishorn af því hvernig leikurinn mun líta út:

Kv. Game Tíví

Max Payne 3 verður kynntur nánar í næsta tölublaði Game Informer

Framleiðendur Max Payne leikjanna, Rockstar Vancouver’s hafa heldur betur haft hljótt um sig síðustu mánuðina á meðan þeir vinna að þriðja Max Payne leiknum. Hvorki voru sýndar myndir né myndbrot úr Max Payne 3 á E3 sýningunni sem lauk fyrir viku síðan og þykir það nokkuð undrandi, þar sem leikurinn á að koma út næsta vetur.

Aðdáendur Max Payne leikjanna hafa örugglega átt erfitt með að halda ró sinni yfir þriðja leiknum, eða þar til að fleiri fregnir berast um leikinn. En nú styttist í fleiri tilkynningar. Því Game Informer, sem er eitt virtasta tölvuleikja tímarit í heiminum í dag, verður með sérstaka kynningu á leiknum í næsta tölublaði þeirra sem kemur út í næsta mánuði.

Þetta lofar allt saman mjög góðu. Game Informer er mjög vandað tímarit sem inniheldur ávallt nýjar og ferskar fréttir um leiki sem hafa eingöngu verið birtir fyrstir hjá þeim. Eins og áður kom fram að þá verður Max Payne 3 tekinn fyrir næst og mega aðdáendur leikjanna búast við hörku fréttum í næsta mánuði.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

game-informer-max-payne-slob

Sims 3 slær sölumet í sögu EA

Það fór örugglega ekki fram hjá neinum tölvuleikja áhugamönnum að þriðji leikurinn í The Sims seríunni hafi verið gefinn út í síðustu viku, enda er hún ein vinsælasta leikjaserían nú til dags. Þó svo að harðkjarna tölvuleikja unnendur reyni að forðast leikinn að þá er ekki hægt að forðast fréttir af leiknum, því þær eru allstaðar!

EA fagnar því hins vegar auðvitað mjög vel. Því í síðustu viku, frá því að leikurinn kom út, hefur The Sims 3 slegið sölumet fyrirtækisins hvað varðar upphafsölu leikja. Leikurinn seldist í 1.4 milljónum eintökum fyrstu vikuna sem varð til þess að leikurinn er nú best seldi PC leikur fyrirtækisins, þá er bara talið fyrstu vikuna frá því að hann var gefinn út.

Ekki fór það heldur verra hjá Apple fyrirtækinu, því The Sims 3 sló einnig sölu met í apple búðinni þar sem hann hefur selst best af öllum keyptum iPhone leikjum til þessa. Leikurinn kostaði þar 9.99 dollara og afrekaði leikurinn þetta á aðeins 18 klukkustundum.

Það er ljóst að The Sims serían heldur áfram að seljast eins og heitar lummur og ætti það ekki að koma neinum á óvart. Það mun örugglega ekki líða langur tími þar til að Maxis fara að dæla ofan í leikinn fullt af aukapökkum, verið allavega reiðubúin fyrir það.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

sims-3-coming-february-20-2009-1Aaaaaaaaahhh!!! Heyrðu þið þessar fréttir?

Borderlands væntanlegur í október

Þetta er ein af yfir milljón byssum leiksins

Þetta er ein af yfir milljón byssum leiksins

Þá er það staðfest að Gearbox Software ætla að gefa út Borderlands í október, þetta er leikur sem er sennilega best lýst sem Fallout 3 blandað við Halo, ekki slæm blanda það! Þetta er einn af þessum RPG skotleikjum sem maður getur varla beðið eftir, og ekki skemmir fyrir honum að innihalda yfir milljón mismunandi byssur!

Hér er svo smá gameplay til að hita upp með:

:)

Kv. Game Tíví