- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Columbia Pictures gerir Uncharted kvikmynd

Samkvæmt fréttum Hollywood Reporter ætlar Columbia Pictures að gera kvikmynd eftir hinum frábæra Playstation 3 leik Uncharted: Drake’s Fortune. Það er Kyle nokkur Ward sem skrifar handritið að kvikmyndinni, en hann hefur nýlokið að skrifa handritið að Kane & Lynch kvikmynd, sem Bruce Willis mun leika í, og er víst í viðræðum við 20th Century Fox um að skrifa handritið að Hitman 2.

Meðal framleiðenda kvikmyndarinnar eru feðgarnir Avi og Ari Arad, Charles Roven og Alex Gartner.

Fyrir þá sem ekki þekkja til Uncharted: Drake’s Fortune: SKAMMIST YKKAR. Leikurinn fjallar um Nathan Drake sem ferðast til Suður-Ameríku ásamt vini sínum Sully og fréttakonunni Elenu til þess að elta uppi leifar forfeður síns, Sir Francis Drake. Inn í þetta fléttast svo sjóræningjar, annar illskeyttur fjársjóðsleitari, og hinn goðsagnakennda borg El Dorado, og saman skapar þetta allt saman einn eftirminnilegasta leik þessarar kynslóðar leikjatölva.

Það verður áhugavert að fylgjast með framleiðslu kvikmyndarinnar og sjá hvort þeim takist að endurskapa persónu Nathan Drake á hvíta tjaldinu. Yfirleitt hafa tölvuleikjakvikmyndir ekki heppnast vel en það er aldrei að vita nema það breytist. Sér í lagi þar sem það eru fleiri tölvuleikjakvikmyndir á leiðinni nú en nokkru sinni fyrr.

Heimildir: Hollywood Reporter

Kveðja,
GameTíví

uncharted

4 Responses to “Columbia Pictures gerir Uncharted kvikmynd”


  • Nice! ég mun POTTÞÉTT fara á þessa mynd heimsfrumsýningu (eða frumsýningu) á þessa mynd! vona að hún heppnist vel..! =)

  • Það var það góð saga í leiknum að mér finnst að þeir ætu ekki að gera kvikmynd.

  • þessi mynd verður f*** góð öruglega

  • Sony Gerir Kvikmynd fyrir þennan leik því hann fékk hrikalega góða dómaa og er MJÖG góður

    þeir SONY eiga Columbia Pictures þannig já

    þeir munu feitan líka gera GOD OF WAR kvikmynd um alla leikina því sá leikir hafa selst mjðg vel =)

Comments are currently closed.