Hvort að Modern Warfare 2 takist að seljast betur en Halo 3 eða Grand Theft Auto IV verður að koma í ljós. En það er stefna Activision, þeir sem sjá um að gefa út leikinn fyrir PC, Xbox 360 og PS3.
Það er orðið nokkuð ljóst að Activision bindir miklar vonir gagnvart Modern Ware 2, enda býst maður ekki við neinu nema hörku leik frá framleiðendunum, Infinity Ward, eftir að hafa spilað Call of Duty 4: Modern Warefare.
Activison réðu nú á dögunum TBWA/Chait/Day fyrirtækið til þess að auglýsa leikinn á fullum krafti og auglýsa Modern Warfare 2 sem „besta afþreyingu allra tíma“, eða nokkuð veginn þannig. Fyrirtækið er vel þekkt um víða veröld þar sem þeir settu upp til að mynda auglýsingarherferð fyrir Macintosh tölvuna, sem gengur einnig undir nafninu Apple í dag.
Til þess að þeim takist áætlunarverk sitt að þá þarf leikurinn að seljast betur en Halo 3 og GTA IV gerðu á fyrsta degi. Halo 3 sló sölumet á sínum tíma árið 2007 þegar leikurinn seldist í 1.7 milljónum eintökum á fyrsta söludegi. GTA IV bætti svo metið rækilega og ber hann titilinn „besti útgáfudagurinn“ í för með sér þar sem leikurinn seldist í 3.6 milljón eintökum á fyrsta söludegi.
Þó svo að Activision stefni svona hátt að þá er markmið þeirra alls ekki ómögulegt, þrátt fyrir ástandið í dag. Rúmlega „13 milljónir manna spila Call of Duty 4 á Xbox Live“ og þá er ekki talið með þá einstaklinga sem spila leikinn í gegnum PSN eða PC einkatölvurnar.
Modern Warfare 2 verður svo gefinn út þann 10. nóvember næstkomandi á PC, Xbox 360 og PS3.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Nýleg comment