
Í sumar kemur út fyrsti aukapakkinn fyrir Spore frá leikjameistaranum Will Wright sem hefur heldur betur slegið í gegn undanfarin ár. Aukapakkinn nefnist Spore Galactic Adventures og lítur hreinlega mjög vel út miðað við það sem maður bjóst við. Spilun leiksins tekur algjörlega nýja stefnu og gefur þér nánast fullkomna stjórn hvernig leikurinn á að spilast, ekki ólíkt LittleBigPlanet á Playstation 3.
Út frá myndbandinu hér fyrir neðan getur leikurinn orðið enn og aftur mjög áhugaverður. Það verður spennandi að sjá hvernig þetta allt saman fer, en Spore Galactic Adventures pakkinn er væntanlegur þann 26. júní á PC vélarnar.
Kveðja,
Game Tíví



Hell yee ég fæ mér þennan leik
ég fæ mér þennan
hlakkar til
þetta er annar aukapakin
sjæs, ég get ekki beðið eftir þessum
:D