
Það lítur út fyrir það að nýji Batman leikurinn ætli að verða æ betri með tímanum því nær sem dregur að leiknum.
Upphaflega var aðeins Jókerinn kynntur til sögunnar sem beitir hinum lumskum brögðum til þess að ná Arkham Asylum á sitt vald. Síðan kynntu þeir Harley Quinn, kventýpan af Jókernum sem mun væntanlega aðstoða Jókerinn við að halda Batman í skefjum.
Nú hafa Eidos afhjúpað enn einn óvinin, Poison Ivy sem er náin vinkona hennar Harley Quinn. Hún hefur þann eiginleika að geta stjórnað plöntum og öðrum jurtum til þess að koma í veg fyrir að Batman nái ætlunar verki sínu, að stöðva Jókerinn. Þau þrjú eiga þann hlut sameiginlegan, öll hata þau Batman.
Af því sem búið er að sýna úr leiknum er nokkuð ljóst að hann eigi eftir að líti vel út og verður spennandi að sjá hvort þeim takist jafnvel með leikinn eins og þeir ætla. Batman: Arkham Asylum er svo væntanlegur í lok sumarsins á bæði PS3 og Xbox 360.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Rauða liðið bíður eftir því að þú gangir til liðs með þeim.
Eins villimannslega og það hljómar voru leikir eitt sinn gefnir

Super mutantinn Haraldur reyndi að skilja þessa frétt en tókst
Hér má sjá Ezio Auditore de Firenze, aðalpersónan í Assassins Creed 2



Nýleg comment