- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2009

Page 2 of 6

BioShock 2 mun koma út þann 30. október

Búðu þig undir ferð, aftur í undirdjúpið, þar sem sjávarborgin Rapture bíður þín enn á ný. Kannaðu nýjar slóðir, afhjúpaðu leyndardóma og fáðu að vita meira um Stóra Systur!

Því nú hafa Take Two staðfest útgáfudag fyrir BioShock 2 sem verður fáanlegur hér í Evrópu þann 30. október á þessu ári, þremur dögum á undan bandarísku útgáfunni. BioShock 2 mun koma út fyrir PC, PS3 og Xbox 360 en því miður er ekki vitað hvort að leikurinn muni rata inn á allar vélarnar samtímis.

Eins og allir vita að þá var fyrri leikurinn aðeins gefinn út fyrir PC og Xbox 360 til að byrja með, á meðan PS3 eigendur þurftu að bíða í heilt ár eftir gripnum. Ekki er vitað hvort slíkir samningar liggja á borði hjá þeim enn og aftur en við munu væntanlega komast að því fljótlega þegar E3 sýningin hefst.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

big-sister-finale_1-bio2Stóra Systir verður ekkert lamb að leika sér við!

Allir Metroid Prime leikirnir væntanlegir á einum disk

Metroid Prime leikirnir á GameCube og Wii eru vafalaust með betri leikjum sem hægt er að finna og spila á Wii í dag og fyrir þá sem eiga ekki GameCube fjarstýringu til að spila fyrstu tvo leikina þá ætti þessi frétt að gleðja þann hóp. Nintendo í Ameríku ætlar nefnilega að gefa út alla þrjá Metroid Prime leikina (Metroid Prime, Metroid Prime 2: Echoes og Metroid Prime 3: Corruption) á einum Wii disk einhvern tímann í ágúst, og það á verði nýs leiks.

Það er ekki nóg með það að pakkinn, Metroid Prime Trilogy, innihaldi alla þrjá leikina heldur verður einnig bætt inn widescreen stuðningi og Wiimote stuðningi við fyrstu tvo leikina auk þess sem leikmenn geta opnað fyrir alls konar aukagóðgæti með því að spila leikina þrjá í gegn.

Metroid Prime kom fyrst út í desember 2002 og vakti mikla athygli gagnrýnenda og leikjaunnenda og fangaði jafnvel megnið af þeim Metroid aðdáendum sem voru að vonast eftir einhverju í líkingu við gömlu Metroid leikina. Samkvæmt gamerankings er hann hvorki meira né minna en fimmti besti leikur allra tíma og besti fyrstu-persónu skotleikur sem hefur verið gerður og skákar þar með Half-Life og Halo, þó svo að það sé þónokkur grundvallarmunur á þessum þremur leikjum.

Það er eins gott að þessi pakki rati til Evrópu áður en langt um líður því þessi pakki verður klárlega að vera til á hverju einasta heimili landsins sem á annað borð inniheldur Wii leikjatölvu.

Heimildir: Gamasutra

Kveðja,
GameTíví

samus_cosplayLíklega er ekki til karlmaður sem myndi verða ósáttur ef þessi
Samus Aran myndi gera skrúfuárás á hann.

Final Fantasy XIII auglýsingaskilti staðfesta útgáfuárið 2010

Það hefur verið mikið rætt um hvenær Final Fantasy XIII kemur út fyrir utan Japan. Leikurinn kemur út í austurlöndum fjær fyrir lok ársins, ef marka má orð Yoichi Wada, forstjóra Square-Enix, en hann hefur lítið viljað tjá sig um útgáfu leiksins í öðrum heimshlutum, þó svo að hann hafi áður staðfest að það yrði líklega ekki fyrr en eftir apríl 2010.

Um helgina birtust svo þrjú risastór auglýsingaskilti á stað sem áður prýddi Grand Theft Auto: Chinatown Wars auglýsingu frá Rockstar. Má sjá mynd af aðalpersónum leiksins, þeim Vanille, Snow og Lightning, og fyrir ofan Snow má svo sjá orðin “Coming 2010″ sem meira og minna staðfestir það sem við höfum í rauninni alltaf vitað: útgáfuár leiksins í Bandaríkjunum. Það er samt alltaf gott að fá staðfestingu á því.

Stóra spurningin er að sjálfsögðu hvenær leikurinn kemur út í EVRÓPU. Hingað til hafa oftast liðið um 6 mánuðir á milli þess sem Square-Enix leikur kemur út í Bandaríkjunum og þangað til hann kemur út í Evrópu, en framleiðendur leiksins hafa þó lofað að reyna eins og þeir gera að stytta þessa bið.

Aftur á móti virðist þessi bið vera fáránleg í ljósi þess að það sé orðið meira og minna eðlilegt að gefa leiki út í öllum löndum á sama tíma. Skyldi Square-Enix eiga erfitt með að forgangsraða hlutunum hjá sér? Spurning.

Fyrir þá sem geta ekki beðið eftir að prófa leikinn og sjá hvernig hann spilast má lesa yfir þessa umfjöllun um Final Fantasy XIII demóið á GameOver.is.

Heimildir: 1UP.com

Kveðja,
GameTíví

ff13billboard

Splunkunýr myndavélaleikur í hönnun fyrir DSi

Sænskt leikjafyrirtæki að nafni Ghoswire, vinnur hörðum höndum þessa dagana við að búa til splunkunýjan leik fyrir Nintendo DSi sem mun nýta vélina til fulls. Eins og allir kannast við að þá inniheldur DSi myndavél sem var ekki fáanleg á eldri týpunum, þ.e.a.s. Nintendo DS og DS-Lite.

Myndavélin verður því aðal hjálpartæki leiksins þar sem þú munt nota hana til þess að eltast við drauga sem verða á sveimi í umhverfinu þínu. Þú verður að beina henni, t.d. heima hjá þér, til þess að geta fundið þá og fundið út hvers vegna þeir eru að ofsækja heiminn okkar. Hljóðnemi vélarinn verður einnig nýttur undir ákveðinn veg ásamt stylus, DS pinnanum fræga.

„Nintendo Dsi vélin er fullkomin fyrir þennan leik. Þetta gefur okkur kleift að auka upplifunina í raunveruleikanum með sameiningu á myndavél, hljóðnema og snerti skjá.“ – sagði Anders Bergman, yfir leikjahönnuður hjá Ghostwire.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær þessi leikur verður gefinn út. Þetta hljómar allt mjög spennandi og verður gaman að sjá hvernig þetta kemur út með DSi vélinni frá Nintendo.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

custom_1243253807133_ghostwireLeynast draugar í húsinu þínu? Þú kemst af því með DSi vél þegar þessi leikur kemur út.

Mega64 hafa leyst Kojima gátuna… næstum því

megakojima

Undarnfarna daga höfum við fært ykkur fréttir af nýju heimasíðunni hjá Kojima Productions, sem hefur því miður ekki fært okkur neitt nýtt ennþá nema tvo niðurteljara. Margir telja að eitthvað leynist í skýjunum sem táknar næstkomandi leik frá þeim og einnig má sjá tölustafinn 5 eða bókstafinn S blikka þegar þrumurnar dynja í bakgrunninum.

En örvæntið ekki, því Mega64 hópurinn hefur leyst gátuna og nú er komið að ykkur að finna út hvað þeirra merking þýðir. Í myndbandinu hér fyrir neðan byrja þeir á því að rökræða um upprunalegu myndina og segja frá því hvað þeir sjá úr skýjunum. En það er eitthvað bogið við niðurstöðu þeirra því hún er langt frá því að vera skiljanleg.

Ef þið áttið ykkur á því hvað þeir eru að meina, að þá megi þið endilega koma með athugarsemd um það hér á eftir. Vonandi fáum við að sjá réttar útskýringar um þessi mál þegar E3 sýningin hefst, sem verður eftir viku.

Kveðja,
Game Tíví

Half-Life Full-life Consequences, WTF???

Sumt er svo skrýtið að það verður gott, það er spurning með þetta:

Kv. Game Tíví

01

Infinity Ward afhjúpa fyrsta myndbandið fyrir Modern Warfare 2

mw2may244

Síðasta föstudag lofuðu Infinity Ward okkur nýju myndbandi fyrir leikinn Modern Warefare 2 sem er væntanlegur í haust, og þeir hafa svo sannarlega staðið við það.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið í heild sinni og lítur það einnig mjög vel út. Líkt og í fyrri leiknum að þá mun Modern Warfare 2 innihalda bullandi hasar með góðum söguþræði sem ætti að kæta alla aðdáendur Call of Duty seríunnar. Það er nokkuð ljóst að þeir leggja mikinn metnað í að gera þennan leik sem allra bestan og verður spennandi að sjá meira úr honum þegar nær dregur að leiknum.

Við hvetjum alla þá sem hafa gaman af fyrstupersónu skotleikjum að hafa auga með þessum því hann verður án efa einn af leikjum ársins. Eins og við nefndum hér að ofan að þá er Modern Warfare 2 væntanlegur haust, þann 10. nóvember á þessu ári fyrir PC, PS3 og Xbox 360.

Kveðja,
Game Tíví

Fuel setur Guinness met, stærsti tölvuleikur til þessa fyrir leikjatölvurnar

Mikið hefur verið rætt um bílaleikinn frá Asobo Studios undanfarið, Fuel sem er talinn vera afar stór miðað við aðra leiki sem hafa komið út fyrir leikjatölvurnar. Þetta virðist þó vera allt saman rétt, því umboðsaðilar hjá heimsmetabók Guinness hafa nú þegar veitt leiknum verðlaun fyrir að vera stærsti leikur allra tíma sem mun koma út fyrir leikjatölvurnar, þ.e.a.s. PS3 og Xbox 360.

Leikurinn mun skarta 14,400 ferkílómetra svæði þar sem spilendur geta keyrt um svæðið og leikið sér að vild, torfærast eða eitthvað annað. Fuel þykir nokkuð líkur MotorStorm  frá Sony, blandað við hinn víðfræga Burnout Paradise sem veitir þér frelsi til þess að aka um í Paradísarborg.

Vonandi verður leikurinn stútfullur af ýmis konar keppnum, ásamt korti sem veitir þér aðgang til þess að ferðast á milli staða. Annars getur leikurinn orðið frekar langdregin ef þú skyldir þurfa að keyra frá einum enda til annars, fjölmörgum sinnum.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

fule_is_big_jd-copyHér má sjá  Asobo Studios teymið halda á viðurkenningu sem Guinness veitti þeim

Assassin’s Creed 2 kemur út í nóvember

Svo virðist sem stórfelld fjölgun á starfskröftum í Assassin’s Cread teyminu hjá Ubisoft Montreal hafi góð áhrif því framhaldið af þessum vinsæla (en þó örlítið einhæfa) morðingjaleik er væntanlegt ekki seinna en í nóvember. Það er að segja ef allt gengur upp.

Þetta kom meðal annars fram í tölu sem David W. Carlson, yfirmaður Gamestop leikjakeðjunnar, hélt á fundi fyrir stuttu. Þá nefndi hann einnig að við gætum fastlega búist við að spila Tekken 6 og Bioshock 2 í október.

Þá er það bara stóra spurningin um hvort það sé eitthvað til í því sem kallinn segir. Við ættum að geta séð hvort það sé eitthvað til í þessu … í nóvember.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

assassins_creed

Niðurteljari Kojima Productions afhjúpar nýjan niðurteljara

Eins og við sögðum frá fyrir nokkru var niðurteljari á vefsíðu Kojima Productions sem, að því er virðist, á að telja niður í næsta leik fyrirtækisins. Teljarinn átt að renna út 22. janúar, sem, samkvæmt flest öllum dagatölum, er í dag.

Eflaust voru margir sem eyddu löngum tíma í að endurhlaða síðuna aftur og aftur í þeirri von um að komast fram hjá öllum villunum sem komu þegar allur heimurinn reyndi að fara inn á vefsíðuna á sama tíma, en þegar það tókst að lokum blasti við þeim ný sýn. Nýjar tölur.

119 klukkustundir (109 klst þegar þetta er skrifað) og þrír stafir til viðbótar við S-ið/5-una sem birtist á síðunni reglulega: e, E og 3. Hvað gæti það þýtt, hmm?

Það verður spennandi að sjá hvað mun birtast á síðunni þegar þessi teljari hefur tapað öllum sínum tölum. Eflaust verður það nýr niðurteljari sem lætur sjá sig í kjölfarið.

Kveðja,
GameTíví

kojimacountdown