Eins og við sögðum frá fyrir nokkru var niðurteljari á vefsíðu Kojima Productions sem, að því er virðist, á að telja niður í næsta leik fyrirtækisins. Teljarinn átt að renna út 22. janúar, sem, samkvæmt flest öllum dagatölum, er í dag.
Eflaust voru margir sem eyddu löngum tíma í að endurhlaða síðuna aftur og aftur í þeirri von um að komast fram hjá öllum villunum sem komu þegar allur heimurinn reyndi að fara inn á vefsíðuna á sama tíma, en þegar það tókst að lokum blasti við þeim ný sýn. Nýjar tölur.
119 klukkustundir (109 klst þegar þetta er skrifað) og þrír stafir til viðbótar við S-ið/5-una sem birtist á síðunni reglulega: e, E og 3. Hvað gæti það þýtt, hmm?
Það verður spennandi að sjá hvað mun birtast á síðunni þegar þessi teljari hefur tapað öllum sínum tölum. Eflaust verður það nýr niðurteljari sem lætur sjá sig í kjölfarið.
Kveðja,
GameTíví




5 = MGS5. E – 3 = E3. MGS5 sýndur á E3. MGS5 confirmed!
Og hann verður exclusive fyrir Xbox360, þá yrði nú aldeilis kátt á hjalla.