Enn eru 60 klukkustundir þangað til núverandi niðurteljari núllast á heimasíðu næsta verkefnis Kojima Productions, en þrátt fyrir það halda nýir hlutir áfram að birtast á síðunni góðu.
Nýjasta nýtt er að eftir nokkra bið birtist, í stað einkennismerkis fyrirtækisins í neðra hægra horni síðunnar, mynd af grímu, og með því að ýta á grímuna er maður sendur yfir á nýja síðu þar sem maður þarf að slá inn aldurstakmark til þess að sjá mynd af grímu. Neðst á síðunni má svo sjá “Rating Pending” merki frá ESRB, Entertainment Software Ratings Board í Bandaríkjunum.
Á niðurteljarasíðuna má svo sjá mynd af persónu sem virðist vera Raiden líkt og hann birtist í Metal Gear Solid 4. Þá hafa nokkrir stafir birst til viðbótar: C, O (eða 0) og P.
Mun eitthvað bætast við áður en teljarinn telur niður í núll? Við hjá GameTíví fylgjumst spenntir með!
Kveðja,
GameTíví




Nú er komin sól og það birtist tölustafurinn 8
Það kemur 8 hjá mér aftur og aftur með nokkura sekúndna millibili
Mig er farið að gruna dagsetninguna 8. júní
þetta er maybe nýr MGS leikur OG MGS serían endurbætt
Hjá mér er 00:54:22 wtf?
Jamm endar eftir smááá, jeyyy =P
hvað er svona wtf við það?
Hann gerði sér kannski ekki grein fyrir því hvað það var stutt í þetta.
2 mínútur í þetta!
þetta er komið niðrí núll og ekkert gerist!
Ég veit loool haha
Nýr MGS, MEtal Gear Solid: Rising