- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Criterion Games opna fyrir Big Surf Island þann 11. júní

Ertu reiðubúinn til þess að yfirgefa Paradísarborg? Því rétt fyrir utan borgina frægu liggur eyja að nafni Big Surf Island sem skartar enn fleiri stökkpalla en áður fyrr ásamt fullt af nýjum leiðum sem veitir þér enn meira frelsi.

Criterion Games hafa lofað öllu fögru tengt eyjunni og verður þetta stærstu viðbótin fyrir Burnout Paradise til þessa. Nú hafa þessi umræddu viðbót loksins fengið staðfestan útgáfudag sem verður þann 11. júní og geta PS3 og Xbox 360 eigendur sótt viðbótin þann sama dag.

Það verður eflaust líf og fjör, enn á ný í Burnout Paradise þegar Criterion Games opna brúnna sem liggur yfir til Big Surf Island. Þeir eiga þó enn eftir að gefa upp verðið fyrir viðbótin en það mun væntanlega skýrast fljótlega á næstu dögum.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

bigsurf

2 Responses to “Criterion Games opna fyrir Big Surf Island þann 11. júní”


  • Vá, ég get ekki beðið eftir þessari viðbót. Stærsta viðbótin til þessa! Alveg fullt af römpum og hlutum til að gera, og náttúrulega nýtt sett af Bikurum. :)

  • Og hvar getum við keypt þetta ?? Ekki hægt fyrir okkur með Evrópu útgáfu leiksins.

Comments are currently closed.