Þegar kemur að því að hanna stóra leiki er ávallt gott að hafa fjölmargt starfsfólk í vinnu. Það á meðal annars við Assassins Creed 2.
Sebastien Puel, framleiðandi leiksins hefur sagt frá því að allt að 450 manns eru að vinna að Assassins Creed 2 sem gerir þrefalt fleiri starfsfólk heldur en þau sem unnu að fyrri leiknum. Hann sagði einnig að 75% af starfsfólkinu sem unnu að fyrri leiknum eru aftur saman komin til að vinna að Assassins Creed 2.
Hann bætti einnig við að þúsundir af hugmyndum sem voru ekki notaðar í fyrri leiknum væru allar að koma til sem þeir ætla að nota í Assassins Creed. Það verður gaman að sjá útkomuna úr þeim leik og þær breytingar sem þeir hyggjast gera að þessu sinni. Assassins Creed 2 mun koma út í haust á PC, PS3 og Xbox 360.
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
Game Tíví
Hér má sjá Ezio Auditore de Firenze, aðalpersónan í Assassins Creed 2



ég verð að fá þennan leik
x2
Shiit hvað mér hlakkar til :O
tja kannski möguleiki að leikurinn verði þá ekki jafn drullu einhæfur og leiðinlegur og sá fyrri.. batnandi leik er best að lifa (eða deyja)
Fyrsti leikurinn sökkaði illa. Ég er nokkuð viss um að þessi muni bæta einhverju örlitlu við og verður aðeins betri, en ekki nóg