- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2009

Ný Playstation vél lekið á netið, PSP Go

psp_go_qore_leak

Það lítur út fyrir það að Sony muni afhjúpa nýja PSP vél á blaðamannafundi þeirra sem verður haldinn á næstkomandi þriðjudag. Hluti úr þættinum Qore, sem Sony eiga, var lekið á netið í kvöld þar sem þeir sýndu úr nýrri vél sem gengur undir nafninu PSP Go og mun hún boða miklar breytingar, hvað útlit og innihald varðar.

Í þættinum kom fram myndin sem við birtum hér að ofan og á henni má sjá LittleBigPlanet í spilun sem er meðal annars væntanlegur í haust fyrir PSP vélina. Einnig mátti sjá myndband úr þættinum þar sem þau ræða saman varðandi vélina og kom fram margt nýtt í því samtali.

Vonandi hefur þetta ekki spillt öllu því óvænta sem Sony hafa fyrir okkur á E3 sýningunni. Við munum komast að því fljótlega og færa ykkur nánari fréttir þegar að því kemur.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar breytingar frá PSP-3000, ásamt nýjum upplýsingum varðandi vélina:

  • Gran Turismo, LittleBigPlanet, Jak & Daxter og Metal Gear Solid voru allir nefndir í myndbandinu.
  • PSP Go inniheldur 16GB flash minniskort ásamt bluetooth stuðningi.
  • Það Lítur út fyrir að hægt verði að leigja eða kaupa leiki í gegnum PSN búðirnar.
  • PSP Go mun ekki leysa PSP-3000 af hólmi, PSP- 3000 verður ennþá til staðar á markaðnum.
  • PSP Go mun koma út í haust á þessu ári.
  • Hún er 43% léttari en PSP-3000 vélin.
  • Vélin skartar 3.8″ LCD skjá.

Criterion Games opna fyrir Big Surf Island þann 11. júní

Ertu reiðubúinn til þess að yfirgefa Paradísarborg? Því rétt fyrir utan borgina frægu liggur eyja að nafni Big Surf Island sem skartar enn fleiri stökkpalla en áður fyrr ásamt fullt af nýjum leiðum sem veitir þér enn meira frelsi.

Criterion Games hafa lofað öllu fögru tengt eyjunni og verður þetta stærstu viðbótin fyrir Burnout Paradise til þessa. Nú hafa þessi umræddu viðbót loksins fengið staðfestan útgáfudag sem verður þann 11. júní og geta PS3 og Xbox 360 eigendur sótt viðbótin þann sama dag.

Það verður eflaust líf og fjör, enn á ný í Burnout Paradise þegar Criterion Games opna brúnna sem liggur yfir til Big Surf Island. Þeir eiga þó enn eftir að gefa upp verðið fyrir viðbótin en það mun væntanlega skýrast fljótlega á næstu dögum.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

bigsurf

Ætlar Peter Molyneux að sýna eitthvað nýtt á E3?

Peter Molyneux er alltaf með eitthvað í gangi, kappinn, enda með frjórri hug en margir aðrir. Hann á heiðurinn af ansi mörgum vinsælum leikjum undanfarinn áratug eða svo, en þar má telja Dungeon Keeper, Them Hospital, Black & White og Fable svo eitthvað sé nefnt.

Á Twitter síðu fyrirtækis Molyneux, Lionhead Studios, má sjá skilaboð þar sem þeir lofa stórri sýningu á blaðamannafundi Microsoft sem haldinn verður næsta mánudag.

Það er alvitað að Lionhead Studios hafa verið að bralla eitthvað undir handleiðslu snillingsins, en hann hefur ekki mátt segja frá því hingað til þótt honum langi líklega ægilega til að kjafta frá. Svo virðist sem Microsoft hafi gefið honum grænt ljós, en vonandi lofar hann ekki gulli og grænum skógum, hann á það til að lofa meiru upp í ermina á sér en hann hefur pláss fyrir.

Við ítrekum það vitaskuld að við verðum vakandi á meðan á E3 stendur yfir.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

peter-molyneuxPeter Molyneux er hress gaur.

Gríma, Raiden, fleiri bókstafir á heimasíðu Kojima Productions

Enn eru 60 klukkustundir þangað til núverandi niðurteljari núllast á heimasíðu næsta verkefnis Kojima Productions, en þrátt fyrir það halda nýir hlutir áfram að birtast á síðunni góðu.

Nýjasta nýtt er að eftir nokkra bið birtist, í stað einkennismerkis fyrirtækisins í neðra hægra horni síðunnar, mynd af grímu, og með því að ýta á grímuna er maður sendur yfir á nýja síðu þar sem maður þarf að slá inn aldurstakmark til þess að sjá mynd af grímu. Neðst á síðunni má svo sjá “Rating Pending” merki frá ESRB, Entertainment Software Ratings Board í Bandaríkjunum.

Á niðurteljarasíðuna má svo sjá mynd af persónu sem virðist vera Raiden líkt og hann birtist í Metal Gear Solid 4. Þá hafa nokkrir stafir birst til viðbótar: C, O (eða 0) og P.

Mun eitthvað bætast við áður en teljarinn telur niður í núll? Við hjá GameTíví fylgjumst spenntir með!

Kveðja,
GameTíví

mask

E3 byrjar snemma í ár!

e3electronicentertainmentexpo

Á næstkomandi mánudag hefst hin árlega E3 sýning þar sem leikjafyrirtækin fá tækifæri til að kynna væntanlega leiki og fleiri góðgæti sem þeir hafa á boðstólnum fyrir tölvuleikja unnendur. Þeir hjá Microsoft munu stíga fyrstir upp á svið eins og vanalega og kynna fyrir okkur væntanlega leiki og nýja hluti fyrir Xbox 360 vélina.

Á sama degi munu Electronic Arts og Ubisoft halda kynningu til þess að sýna okkur hvað þeir ætla að vera með á þessu ári og á því næsta. Svo á þriðjudaginn kemur, verða Nintendo og Sony einnig með kynningar og munu þeir allir keppast við að ná hylli áhorfenda, líkt og ávallt.

Í gærkvöldi fengu Game Trailers TV brot af því sem koma skal á E3 sýningunni, þar sem þeir sýndu úr fullt af nýjum leikjum sem munu allir verða sýndir á meðan sýningin fer fram. Hér fyrir neðan eru fullt af hlekkjum sem vísa að helstu myndböndunum sem voru sýnd í gærkvöldi sem ætti að gleðja marga tölvuleikja unnendur.

Við hjá Game Tíví verðum að sjálfsögðu vel vakandi á meðan sýningin stendur yfir og munu færa ykkur allt það nýjasta hér á Game Tíví síðunni.

Hér fyrir neðan má finna fullt af væntanlegum leikjum sem voru meðal annars sýndir í GTtv þættinum í gær. Þetta er aðeins brot af því sem koma skal, svo spennið beltin gott fólk, E3 er handan við hornið!

Kveðja,
Game Tíví

Nýr kappakstursleikur með Sonic og félögum er væntanlegur á næsta ári

sonicracing052804

Það lítur út fyrir það að Sega hópurinn nái mjög vel saman þegar kemur að því að leika í tölvuleikjum. Síðast sáum við þau spila saman tennis í leiknum Sega Superstar Tennis þar sem Sonic og félagar tóku nokkuð vel á því og kepptu saman í fjölbreytilegum tennis þrautum, ekki ólíkt Mario Tennis leikjunum.

Nú hafa Sega menn ákveðið að safna saman hópnum enn á ný til þess að keppa saman í kappakstri í leiknum Sonic & Sega All-Stars Racing. Margar kunnuglegar persónur á borð við AiAi úr Super Monkey Ball seríunni og hinn fjörmikli dansari, Samba de Amigo munu mæta aftur til leiks ásamt hinum illa Dr. Eggman sem mun væntanlega gera allt til þess að koma í veg fyrir að Sonic sigri.

Í kynningar myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Tails stýra flugvél sem gæti bent til þess að spilendur fá að stýra fleiri farartækjum heldur en bara kappakstursbílum. Sonic & Sega All-Stars Racing mun svo koma út á allar gerðir leikjatölva en það verður ekki fyrr en einhvertímann á næsta ári.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Castlevania kvikmynd ei meir

Eitt af verkefnum Paul W.S. Anderson, leikstjóra Resident Evil og Event Horizon, undanfarin ár hefur verið undirbúningur kvikmyndar byggðri á Castlevania tölvuleikjunum frá Konami. Kvikmyndin átti að vísu að vera komin út fyrir löngu, en vegna sífelldra seinkana er búið að ganga frá henni endanlega.

Upphaflega ætlaði Anderson að byrja upptökur seinni hluta 2006, en sumarið 2007 var það ekki enn orðið að veruleika svo leikstjórinn neyddist til þess að stíga niður úr leikstjórastólnum. Í staðinn tók Sylvain White við reiðtygjunum, en í höndum hans var heldur ekkert gert, aðallega þökk sé verkfalli handritshöfunda í Hollywood.

Fréttasíðan Bloody Disgusting segjast nú hafa heimildir fyrir því að kvikmyndin verði aldrei að veruleika. Þetta er þó ekki fyrsta tölvuleikjakvikmyndin sem verður að engu því Halo kvikmyndin fór í gegnum svipað fíaskó, þó svo að fjármögnun hafi endanlega orðið þeirri mynd að falli.

Það er þó ekki öll nótt úti enn: Teiknimyndin Castlevania: Dracula’s Curse gæti verið enn í framleiðslu, jafnvel þótt að síðustu fréttir af þeirri mynd hafi borist í ágúst á síðasta ári. Það er samt enn von.

Heimildir: Bloody Disgusting (í gegnum Kotaku)

Kveðja,
GameTíví

castlevania

Nýi Wolfenstein leikurinn kemur út í ágúst

Activision hefur staðfest að framhaldið af Return to Castle Wolfenstein, Wolfenstein, sé væntanlegur á Xbox 360, PlayStation 3 og PC einkatölvur þann 4. ágúst næstkomandi.

Í leiknum taka leikmenn enn og aftur upp vopn B.J. Blazkovicz og komast að því hvað nasistarnir eru að bralla þessa stundina (þar sem “þessi stund” er árið 1943). B.J. hefur fylgt okkur alveg síðan við kynntumst honum fyrst í Wolfenstein 3d árið 1992 og virðist síður en svo á leiðinni út.

Þó svo að id Software séu á fullu að þróa nýjustu tæknina í tölvubransanum, ásamt því að vera að hanna leikina Rage og Doom 4, virðast þeir hvergi af baki dottnir með Wolfenstein seríuna. Það er að vísu Raven Software sem sér að mestu leyti um leikinn, en þrátt fyrir reynslu þeirra í leikjabransanum er þetta fyrsti Wolfenstein leikur sem fellur í þeirra skaut. Vonandi klikkar hann ekki.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

church_heavy_trooper_2

Big Boss birtist á heimasíðu Kojima Productions

Það virðist engu máli skipta þótt það séu enn rúmlega 100 klukkustundir þangað til teljarinn á heimasíðu Kojima Productions núllast, væntanlega til að afhjúpa nýjan niðurteljara, því nýtt efni hefur bæst við síðuna.

Hingað til höfum við einungis séð stafina e, E, 3 og S/5 birtast á skjánum, en í nótt var svo þremur hlutum til viðbótar bætt við: Bókstöfunum R og P og því sem mesta eftirtekt vekur, mynd af Big Boss, aðalpersónunni í Metal Gear Solid 3: Snake Eater og Metal Gear Solid: Portable Ops. Kallin virðist hafa elst aðeins síðan við sáum hann í MGS3 og skartar núna fínni húfu sem á stendur “Militares Sans Frontiers” (Her án landamæra).

Það er þó ekki það eina því í nýjasta hefti japanska tímaritsins Famitsu birtist furðulegt viðtal við Hideo Kojima þar sem búið var að ritskoða um það bil helminginn af öllu sem hann sagði. Í tímaritinu mátti sjá sömu mynd af Big Boss með niðurteljaranum góða, og aðra mynd af Raiden eins og hann birtist í Metal Gear Solid 4 með svipaðan niðurteljara sér við hlið.

Það er því auðveldlega hægt að búast við því að Raiden muni smeygja sér inn á síðuna einhvern tímann á næstu dögum. Þetta virðist einnig renna stoðum undir orðróma um að Hideo Kojima sé ekki að vinna að einum heldur tveimur Metal Gear leikjum. Sjáum til hvað setur.

Kveðja,
GameTíví

bigbosscountdown

Rockstar kynnir The Ballad of Gay Tony

Rockstar hafa afhjúpað seinni aukapakkann fyrir Grand Theft Auto IV á Xbox 360 í tveggja pakka díl sem þeir gerðu við Microsoft. Sá fyrri, The Lost and the Damned, naut mikilla vinsælda, en sá pakki gerði fólki kleyft að fara í gervi meðlims í mótorhjólaklíku. Seinni pakkinn, á hinn bóginn, er þónokkuð frábrugðinn. Hann mun bera titilinn The Ballad of Gay Tony og munu spilendur feta í fótspor Luis Lopez, aðal aðstoðarmanns næturklúbbseigandans Tony Prince, sem er betur þekktur sem Gay Tony.

Gay Tony þessi ætti að vera GTA4 spilendum kunnugur en hann kemur við sögu í tengslum við Anceletti fjölskylduna. Ekki hefur verið mikið sagt um söguþráð nýja aukapakkans, en í hlutverki Luis eiga spilendur að spila á hollustu fjölskyldumeðlima og vina og finna út hver sé feik og hver ekki. Þá hafa Rockstar lofað byssum, glysi og óhreinindum. Áhugaverð blanda, þótt ekki sé meira sagt.

Þá hafa Rockstar einnig staðfest að á sama tíma og aukapakkinn kemur út, sem verður einhvern tímann í haust, muni þeir gefa út disk með báðum aukapökkunum sem mun heita Grand Theft Auto: Episodes from Liberty City. Ekki þarf að eiga Grand Theft Auto 4 til þess að geta spilað aukapakkana tvo af disknum.

Það þarf varla að taka það fram að The Ballad of Gay Tony er, líkt og The Lost and the Damned, eingöngu fyrir Xbox 360. Það sama á við um Grand Theft Auto: Episodes from Liberty City aukadiskinn. Microsoft punguðu, jú, út 50 milljónum dollara fyrir aukaefnið svo það er klárt mál að þeir vilji ekki sjá efnið á leikjatölvu keppinautanna.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

nicobellicSorry, Nico, þú ert ekki aðalgæinn í þetta skipti.