Þann 12. maí næstkomandi kemur út önnur viðbótin fyrir Fable 2 sem heitir á því skemmtilegu nafni „See the Future“. Í þeim pakka fá Fable 2 spilendur að skyggnast inn í framtíðina sem er full af leyndardómum og vekur sennilega upp margar spurningar. Þar færðu einnig að heimsækja þekkta staði í Fable heiminum sem komu meðal annars fram í fyrri leiknum og ætti það að vekja upp gamlar og góðar minningar fyrir Fable aðdáendur.
Lionhead hafa lofað góðum viðbótum sem inniheldur ný vopn og önnur verkefni sem menn þurfa að leysa. Frá því að Fable 2 kom út hafa aðdáendur leiksins óskað eftir því að geta breytt hundinum sem fylgir þér út allan leikinn. Lionhead hafa ákveðið að uppfylla þá ósk þar sem þú geta breytt bæði útliti og tegund hundsins með ákveðnum hætti.
Fyrir þá sem þekkja til Fable 2 ættu hiklaust að verða sér um þessi viðbót. Eins og titillinn nefnir að þá munu viðbótin koma út þann 12. maí í gegnum Xbox Live Marketplace á aðeins 560 Microsoft punkta.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví
Theresa hefur ekki lokið ferli sínum ennþá, hvað ætli hún hafi handa okkur núna?



whaaat , þannig að Fable the lost chapters er fable 1 ?
Já, Lost Chapters er lengri útgáfa af Fable 1, sem var eiginlega PC útgáfan en var einnig gefin út á Xbox
Er ekki kominn tími til að gefa út Fable 2 á PC?