Mönnum í greiningageiranum greindi á hversu mörg eintök Grand Theft Auto: Chinatown Wars, sem kom út á Nintendo DS um miðbik marsmánaðar, seldist í marsmánuði. Á meðan Michael Pacter hjá Wedbush Morgan spáði því að leikurinn hefði selst í 450.000 eintökum var Jesse Divinch ekki eins og bjartsýnn og spáði því að 200.000 eintök hefðu selst á síðustu 2 vikum marsmánaðar.
NPD birti sölutölurnar í dag og þær eru langt undir spám markaðsgreinenda, en leikurinn seldist einungis í 89.000 eintökum vestanhafs á tímabilinu 17. til 31. mars. Var vonast til að útgáfa leiksins yrði fordæmisgefandi fyrir aðra framleiðendur að gefa út leiki fyrir fullorðið fólk (sem sagt einstaklinga eldri en 17 ára) á Nintendo DS.
Sölutölurnar sýna hins vegar að áhuginn fyrir slíkum leikjum er ekki eins mikill og búist var við. Leikurinn hefur fengið glimrandi dóma hjá framleiðendum en fellur greinilega ekki jafn vel í valinn hjá DS eigendum. Synd og skömm, enda frábær leikur.
Það er nokkuð síðan Grand Theft Auto: Chinatown Wars kom út á Íslandi og hvetjum við alla DS eigendur til að festa kaup á honum enda mikið í leikinn spunnið.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
GameTíví




þeir ættu að setja chinatown war á psp og sjá hvað gerist
Ef að þessi leikur átti að gefa fordæmi og fá aðra framleiðendur til þess að framleiða leiki fyrir fullorðna fyrir Nintendo DS, er þá ekki málið að reyna að fá fullorðna til að kaupa DS fyrst? Ef að flestir aðrir leikir fyrir tölvuna eru miðaðir á yngri notendahóp þá eru ekki miklar líkur á að margir fullorðnir eigi til eitt stykki.
Þetta gerir það að verkum að ef að fullorðinn einstaklingur ætlar að kaupa leikinn sem kostar ca 35 dollara þá þarf hann að punga út öðrum 100 dollurum til að kaupa tölvuna, sem að er síðan bara með einn leiki í boði við hans hæfi. Ég persónulega myndi aldrei kaupa leikjatölvu fyrir einn leik.
Vá svakaleg grafík.
Þetta er allveg svakalegt.
Þetta gæti svo sem allveg verið ágætur leikur.
En þessi mynd kemur hálfvegin í veg fyrir það.
En við hverju er að búast þeir nota að mestalagi 128 mb kort eða eitthvað.
Ég myndi nú ekki henda þessum leik alveg út af kortinu strax því hann er mun flottari í spilun en skjáskot sýna. Hann er meira homage til gömlu GTA leikjanna en er með því besta úr nýju leikjunum líka, eins og alvöru 3d myndavél, gottstuff. Vil til að mynda benda á að Eurogamer gáfu leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Á IGN fékk hann 9.5. Alls ekki slæmt, ha?
Vilhelm Smári: Ég myndi nú ekki henda þessum leik alveg út af kortinu strax því hann er mun flottari í spilun en skjáskot sýna. Hann er meira homage til gömlu GTA leikjanna en er með því besta úr nýju leikjunum líka, eins og alvöru 3d myndavél, gottstuff. Vil til að mynda benda á að Eurogamer gáfu leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Á IGN fékk hann 9.5. Alls ekki slæmt, ha?
Ég verð nú bara að benda á það að mér finnst það frekar heimskulegt að fylgja einkunnum eins og er gert svo mikið nútildags, segir manni bara að fólkið geti ekki ákweðið sjálfan sig. En samt sem áður fær leikurinn svona hátt og ég hefði búist við því að flestar síður hefði dregið leikinn niður fyrir graffíkina (jafnvel miðað við ds er þetta bara sæmilegt)
Og ég ætla líka að vitna í Yahtzee Croshaw (Sem að ég er ekki alltaf sammála með bara að benda á það) sem minntist á það að Gta Serían varð ekki ”frábær” fyrr en hún fór inn í 3D Jafnvel þótt að ég hafi haft gaman af gta 2 var þetta aldrei Stórmagnaður leikur…
Þröstur, þú segir að það sé heimskulegt að fylgja einkunnum (og þar af leiðandi gagnrýnum) en vitnar svo í snillinginn Yahtzee sem, þrátt fyrir hátt skemmtanagildi, er ekki beint aðilinn sem maður ætti að leita til ef maður vill fá álit einhvers á tölvuleik. Það eitt og sér er mótsögn.
Ef þú skoðar gagnrýnirnar þá sérðu að leikurinn er að fá hrós fyrir grafíkina, t.d. 9.5 fyrir hana á IGN til að mynda. Ástæðan er einfaldlega sú að leikurinn lítur gífurlega flottur út og það er ekkert sem hægt er að afneita ef maður hefur spilað leikinn sjálfur, hann er flottur, cel-shaded stíllinn fer honum afar vel og hann keyrir á 30 fps nær öllum stundum (nema þegar löggurnar byrja að swarma yfir þig í tugunum). Svo vinsamlegast ekki reyna að tjá þig um grafíkina ef þú hefur ekki spilað hann.
Þá vil ég líka benda á að flestallir gagnrýnendur hafa sagt að þetta sé besta handheld útgáfa af GTA sem hefur sést hingað til (já, betri en Stories leikirnir á PSP) og að hann hafi alla þá sál sem 3d GTA leikirnir höfðu. Lestu bara þessar gagnrýnir, þá sérðu rökstuðninginn fyrir þessu öllu saman.
Þröstur ég verð nú að vera sammála Vilhelm, þetta er mjög skemmtilegur leikur, skora á þig að prófa hann bara