- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for April, 2009

Page 3 of 6

Fallout: New Vegas væntanlegur

falloutvegas

Bethesda henti risastórri sprengju á blaðamannafundi í London í gær þegar þeir afhjúpuðu nýjan leik sem gerist í Fallout heiminum. Leikurinn heitir Fallout: New Vegas og er væntanlegur á PlayStation 3, Xbox 360 og PC einkatölvur á næsta ári.

Það sem kom hvað mest á óvart var að það er ekki Bethesda Softworks, fyrirtækið sem hannaði Fallout 3, sem gerir Fallout: New Vegas, heldur fellur það verkefni í skaut Obsidian Entertainment, en það er fyrirtækið á bak við Star Wars: Knights of the Old Republic 2: The Sith Lords og Neverwinter Nights 2 og aukapakkana fyrir þann leik.

Þá var fyrirtækið stofnað af Feargus Urquhart, fyrrum yfirmanni Black Isle Studios, en það var fyrirtækið sem þróaði og gaf út Fallout 2 fyrir PC einkatölvur á sínum tíma (og var reyndar til undir nafni Interplay þegar þegar gáfu út Fallout). Fyrir þá sem óttast að eitthvað gæti farið úrskeiðis með því að láta framleiðsluna í hendur annara geta því andað léttar því það eru reyndari og vitrari menn í Fallout fræðum innan Obsidian Entertainment en Bethesda Softworks.

Engar frekari upplýsingar hafa borist um leikinn, en það er fastlega gert ráð fyrir að leikurinn muni vera svipaður í spilun og Fallout 3, og eins og nafnið gefur til kynna gerist hann í New Vegas, Las Vegas endurbyggðri. Leikurinn er væntanlegur, eins og áður sagði, á PlayStation 3, Xbox 360 og PC einkatölvur á næsta ári.

Heimildir: Evil Avatar

Kveðja,
GameTíví

logo_obsidianentfeb13

Er Fallout kvikmynd og sjónvarpssería á leiðinni?

Svo virðist sem Bethesda láti sér ekki nægja að gefa út Fallout tölvuleiki þessa dagana því þeir hafa núna fengið einkaréttinn á framleiðslu sjónvarpsþátta og kvikmynda undir nafninu “Fallout” sem eiga að gerast eftir kjarnorkustyrjöld. Hljómar kunnuglega, ekki satt?

Ofan á kvikmyndina og sjónvarpsþættina er Fallout MMO leikur á leiðinni, það er að segja ef Bethesda hætta við að banna Interplay að þróa leikinn. Það eina sem vantar núna er Fallout Barbie og alvöru Nuka-Cola.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

fallout-3Skyldu splúndrandi dúkkur vera væntanlegar á markað?

Nintendo ver GTA:Chinatown Wars með kjafti og klóm

Nintendo láta það ekki fá á sig þótt Grand Theft Auto: Chinatown Wars hafi bara selst í 89.000 eintökum fyrsta mánuðinn í Banadaríkjunum. Margir telja að þar með sé leikurinn algjörlega dauðadæmdur en Steve Singer hjá Nintendo vill biðja fólk um að leggja árar ekki í bátinn alveg strax ef marka má þau orð sem hann lét falla í viðtali við MTV Multiplayer nýverið. Hann segir að Chinatown Wars sé í raun að feta í fótspor leikja á borð við Spore og Lego Star Wars, en þeir leikir seldust til að byrja með í færri eintökum en vinsældir þeirra hafi svo aukist jafnt og þétt.

Annars talsmaður Nintendo benti einnig á að Call of Duty hafi einungis selst í 36.000 eintökum á Nintendo DS fyrsta mánuðinn, en áður en yfir lauk hafði hann selst í hálfri milljón eintaka.

Take 2 hafa því ekkert að óttast þó svo að sölutölur fyrir fyrsta mánuðinn hljómi pínu illa. Það þarf bara mikla þolinmæði.

Heimildir: MTV Multiplayer

Kveðja,
GameTíví

gtacs_destruc2

Skjáskot úr BioShock 2 afhjúpuð

Núna í haust kemur út nýr leikur sem allir ættu að kannast við orðið. Við erum að tala um BioShock 2 frá 2K Marin sem hefur heldur betur verið í sviðsljósinu síðustu vikurnar eftir að hönnuðir leiksins settu upp heimasíðuna There’s Something in the Sea.

Fyrir stuttu gáfu þeir út fyrsta myndbandið sem sýnir úr spilun leiksins og lítur það allt saman mjög vel út. Í gærkvöldi birtu GameSpot fyrstu skjáskotin úr BioShock 2 ásamt viðtali við 2K Marin þar sem þau kynna leikinn í stuttu máli. Skjáskotin og viðtalið gætu spillt fyrir ykkur svo að þið vitið af því fyrir fram.

Smelltu á eftirfarandi hlekki til þess að skoða:

Skjáskot úr BioShock 2
Viðtal við 2K Marin

Kveðja,
Game Tíví

945380_20081023_790screen007

Wolfenstein Opening Cinema

Þessi gæti orðið mjög flottur

Kv. Game Tíví

Battlefield Heroes er væntanlegur í sumar

Undanfarna mánuði hefur netleikurinn  Battlefield Heroes gengist undir lokaðri beta prufun sem fer senn að ljúka. Eftir það tekur við opin beta sem mun veita öllum notendum aðgang að leiknum.

Battlefield Heroes er bráðskemmtilegur teiknimyndaleikur í anda Battlefield leikjanna sem verður algjörlega frír í spilun. Leikurinn spilast í þriðju persónu og inniheldur hann fjölda vopna ásamt farartækjum sem þú getur notað til þess að sigrast á óvininum. Það eina sem þið þurfið að gera er að niðurhala leiknum fyrir þann vafra sem þið notist við.

Þegar því lýkur getur þú spilað leikinn að vild án þess að borga neitt fyrir hann, fyrir utan internet kostnaðinn að sjálfsögðu. Enginn dagsetning hefur sett á leikinn ennþá en við munum láta ykkur vita af því þegar nær dregur að leiknum.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

battlefield-heroes_1Það verður líf og fjör í netheiminum þegar Battlefield Heroes lendir.

Sala á GTA: Chinatown Wars undir væntingum

Mönnum í greiningageiranum greindi á hversu mörg eintök Grand Theft Auto: Chinatown Wars, sem kom út á Nintendo DS um miðbik marsmánaðar, seldist í marsmánuði. Á meðan Michael Pacter hjá Wedbush Morgan spáði því að leikurinn hefði selst í 450.000 eintökum var Jesse Divinch ekki eins og bjartsýnn og spáði því að 200.000 eintök hefðu selst á síðustu 2 vikum marsmánaðar.

NPD birti sölutölurnar í dag og þær eru langt undir spám markaðsgreinenda, en leikurinn seldist einungis í 89.000 eintökum vestanhafs á tímabilinu 17. til 31. mars. Var vonast til að útgáfa leiksins yrði fordæmisgefandi fyrir aðra framleiðendur að gefa út leiki fyrir fullorðið fólk (sem sagt einstaklinga eldri en 17 ára) á Nintendo DS.

Sölutölurnar sýna hins vegar að áhuginn fyrir slíkum leikjum er ekki eins mikill og búist var við. Leikurinn hefur fengið glimrandi dóma hjá framleiðendum en fellur greinilega ekki jafn vel í valinn hjá DS eigendum. Synd og skömm, enda frábær leikur.

Það er nokkuð síðan Grand Theft Auto: Chinatown Wars kom út á Íslandi og hvetjum við alla DS eigendur til að festa kaup á honum enda mikið í leikinn spunnið.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví

gtacs_destruc2

The Conduit kominn með dagsetningu

Og dagsetningin er 26. júní!

Fyrir þá sem ekki vita er The Conduit skotleikur á Nintendo Wii sem mikið hefur verið talað um undanfarna mánuði, sér í lagi vegna þess að hann lítur mun betur en flestir aðrir tölvuleikir sem hafa komið út á vélina.

Framleiðendur leiksins eru að leggja lokahönd á hann, en þessa dagana vinna þeir hörðum höndum að bæta inn WiiSpeak stuðningi og öllu sem því ferli fylgir.

The Conduit skartar stórglæsilegri einspilunarsögu ásamt 12 manna fjölspilun með ýmsum game modes til að velja úr. Þá er hægt að stilla stýringarnar eins og maður vill, stýra því hvaða takki gerir hvað ásamt ýmsum viðkvæmnistillingum og slíku, en fyrir þá sem eru ekki til í svoleiðis ævintýri er hægt að velja um nokkrar mismunandi forritaðar stillingar.

Eins og áður sagði kemur The Conduit út á Nintendo Wii 26. júní næstkomandi. Hægt er að fræðast betur um leikinn með því að smella hér.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

the-conduit-1

Enginn Devil May Cry á PSP

Það er orðið svo langt síðan fyrst kom fram að Devil May Cry væri væntanlegur á PSP að líklega eru allir búnir að gleyma honum. Við munum hins vegar eftir honum, en núna værum við til í að hafa gleymt honum, því það er búið að henda honum út af borðinu. Í nýjasta tölublaði japanska vikuritsins Famitsu kemur fram að hætt hafi verið við útgáfu Devil May Cry PSP.

Leikurinn var fyrst afhjúpaður árið 2005, sem sagt fyrir fjórum árum, ásamt nokkrum öðrum titlum. Devil May Cry er einn þeirra sem hefur ekkert heyrst af hingað til, og það sama má segja um PSP útgáfuna af Gran Turismo 4.

Þar hafið þið það. Dante á ekki eftir að berjast við djöfla á PSP.

Heimildir: 1UP.com

sc001Sorry, krakkar, ég er bara of kúl fyrir PSP.

Patapon 2 ekki á UMD disk í Bandaríkjunum

Það er ekki langt síðan Patapon 2 kom út í Evrópu, ekki nema rúmur mánuður síðan. Það er þó ein heimsálfa sem enn bíður eftir að framhaldið af einhverri óvæntustu uppákomu í sögu PSP vélarinnar, Patapon, komi út: Norður-Ameríka.

Sony í Ameríku ætla að grípa tækifærið með þennan óútgefna leik og framkvæma með honum dálitla tilraun: Þeir ætla ekki að gefa hann út á UMD disk eins og aðra leiki. Í staðinn verður einungis hægt að hlaða honum niður á minniskubb. Hægt verður að kaupa niðurhalskóða fyrir leikinn í almennum verslunum, en svo þarf fólk að slá kóðann inn í PlayStation netversluninni og hlaða honum niður þaðan.

Þessi ákvörðun Sony er eins og olíuskvetta á logandi orðróm sem hefur farið um internetið eins og eldur í sinu, en tíðrætt hefur verið að PSP 2 muni ekki hafa UMD drif eins og fyrri PSP vélar, heldur muni hún eingöngu reiða sig á einhvers konar skráageymslur, svo sem minniskort og harða diska. Það verður spennandi að sjá hvort og þá hvenær Sony afhjúpar þessa UMD-fríu PSP vél.

Heimildir: Gamespot

Kveðja,
GameTíví

patapon2_5Pon Pon Patapon!