Sex ára norskur drengur að nafni Christer fékk þá skemmtilegu hugmynd að vilja breyta nafni sínu yfir í Sonic X og þá erum við ekki að ýkja. Opinberlegar nafnabreytingar þurfa að vera samþykktar frá konungi en Haraldur 5. Noregskonungur hafnaði henni því miður.
Christer sótti um þessa beiðni fyrir rúmu ári síðan og fékk loksins svar um daginn. Hann var sagður ekki vera nógu gamall ennþá til þess að taka svona ákvarðanir og þyrfti að vera orðinn 18 ára. Christer þarf þess vegna að bíða í 12 ár til viðbótar til þess að geta fengið leyfi til þess að heita Sonic X.
Þó svo að honum hafi verið hafnað að þá sendu SEGA fyrirtækið honum fulla körfu af Sonic góðgætum svo að hann fengi nú eitthvað eftir allt saman.
Hvernig hljómar Super Bergmann og Ólafur Freeman?
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
Sonic hefur ábyggilega verið ánægður með aðdáanda sinn.




Spilaðu Jókerinn í Batman: Arkham Asylum, eingöngu á PS3
Sólin skín mun bjartari á mars, eða hvað?








Nýleg comment