- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2009

Page 2 of 2

Í Game Tíví í kvöld kl. 19:20

Við dæmum meðal annars Guitar Hero World Tour, skoðum 10 bestu Co-Op leikina, lærum á Godfather 2 leikinn og gagnrýnum Resitance Retribution, sem og skoðum allar nýjustu fréttirnar úr tölvuleikjaheiminum.

Aðrir leikir sem við skoðum:
EVE
GTA Chinatown
Batman Arkham Asylum
World in Conflict Soviet Assault
SOCOM Confrontation
MySims Party
Stormrise
X-Men Origins: Wolverine
Grays Anatomy
House of the Dead Overkill
Sonic and the Black Knight

Kv. Game Tíví

Alpha Protocol lendir í október

Sega frumsýndi nýja stiklu fyrir njósnahlutverkaleikinn Alpha Protocol í dag, auk þess sem þeir gáfu út tilkynningu þess efnis að leikurinn yrði gefinn út á PS3, Xbox 360 og PC í öllum hornum heimsins í október á þessu ári.

Alpha Protocol er fyrsti njósnahlutverkaleikurinn sem gerist í nútímanum og er jafnframt þriðji leikur fyrirtækisins Obsidian Entertainment, en fyrirtækið var stofnað af fyrrum starfsmönnum Black Isle Studios og þróaði Neverwinter Nights 2 og Knights of the Old Republic II: The Sith Lords.

Í Alpha Protocol skella leikmenn sér í spor bandaríska njósnarans Michael Thornton sem þarf að þefa uppi óþverralýð eftir að farþegaflugvél er skotin niður með bandarísku flugskeyti yfir austur Evrópu. Sega lofar að leikurinn bjóði upp á “meira en aðrir hlutverkaleikir,” hvað svo sem það þýðir.

Alpha Protocol kemur út, eins og áður sagði, í október næstkomandi á PlayStation 3, Xbox 360 og PC. Hér að neðan má svo sjá áðurnefnda stiklu fyrir leikinn.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Fallout 3 – The Pitt

Við hjá Game Tíví mælum með öllu sem tengist Fallout 3,
og þessi viðbót svíkur engan :)

Kv. Game Tíví

EA Sports Active inniheldur allt að 25 íþróttagreinar

Það þykir greinilega mjög vinsælt orðið nú til dags að hanna íþróttaleiki fyrir Nintendo Wii og þá með Wii fjarstýringuna og Balance Board í huga. Leikirnir frá Nintendo, Wii Sports og Wii Fit hafa tekist ágætlega vel til þess að halda uppi hreyfingu heima hjá fólki en það er samt eitthvað sem vantar upp á leikina, væntanlega Wii Motion Plus?

Þrátt fyrir það ætlar EA að láta á skarið að skríða og svara þeim með nýjum íþróttaleik sem ber heitið EA Sports Active. Í honum verða allt að 25 mismunandi íþróttagreinar sem munu þær notast við Wii fjarstýringuna og Balance Board á ólíkan hátt. L

EA Sports Active er dagsettur þann 22. maí og mun þá Wii Motion Plus ekki styðja við leikinn. Wii Sports innihélt aðeins 5 íþróttagreinar sem tókust allar mjög vel þannig að það verður spennandi að sjá hvernig EA mönnum tekst að útfæra leikinn með 25 ólíkar íþróttagreinar.

Þær greinar sem verða í boði eru:

Cardio Boxing, Basic Dance, Tennis, Inline Skating, Kick-Ups, Cardio Dance, Kickbox, Batting, Volleyball, Basketball, Pitching and Catching, Serve, Run, Walk, Jump, High Steps, Lateral Raises, Lunge, Reps Side Lunge, Squat/Calf, Lunge Jump, Squat Jump, Punch Target, Fast Dance, Punch Bag.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Noby Noby Boy fjölspilun staðfest

Í einum af þáttum okkar sýndum við úr leiknum Noby Noby Boy sem er eingöngu fáanlegur í gegnum PSN búðina. Leikurinn þykir afar einstakur þar sem hann er engum leikur líkur og er markmið hans að lengja sjálfan Noby Noby Boy með því að borða allt saman sem verður í vegi fyrir honum.

Keita Takahashi, höfundur leiksins hefur staðfest að þeir ætla að gefa út fjölspilun fyrir leikinn sem fer eingöngu fram án netspilun. Hann telur að leikurinn verði ennþá skemmtilegri og skiptir engu hvort hann fer fram á netinu eða ekki, því það verður samt sem áður mjög skemmtilegt.

Hann sagði áður fyrr að uppfærsla fyrir leikinn mundi koma út tveimur mánuðum síðar, eftir að leikurinn verði gefinn út. Ef marka má þessi orð að þá munu viðbótin vera gefin út fyrir 18. apríl næstkomandi. Þeir sem keyptu sér Noby Noby Boy og höfðu gaman að honum, ættu að tékka á þessu þegar að því kemur.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

BioShock 2: Það er eitthvað ofan í sjónum!

Einn af þeim leikjum sem vakti mest athygli árið 2007 hvað varðar sögu, spilun og frumleika ku vera BioShock frá 2K Games. Leikurinn þótti gríðarlega vel gerður þar sem hann innihélt stórfenglega sögu um borgina Rapture sem var byggð neðansjávar af einhverju ástæðum. Næsta haust er svo væntanlegt framhald af leiknum sem hefur hlotið nafnið BioShock 2: Sea of Dreams.

Nú á dögunum settu framleiðendur leiksins upp síðu sem nefnist „Það er eitthvað ofan í sjónum“ eða “There’s Something in the Sea” þar sem hún tengist næsta leik að einhverjum hætti. Síðan segir ekkert til um næsta leik en gefur þó vísbendingu um að næsti leikur gerist 7 árum eftir atburðinum sem átti sér stað í fyrri leiknum.

Á þessari síðu má finna kort af heiminum sem inniheldur dularfullar merkingar, eða þrjú x og hafa allar merkingarnar dagsetningar fyrir ofan sig. Einnig er þar að finna 10 blöð sem hægt er að smella á sem sýna bæði myndir og aðrar vísbendingar af týndri stúlku sem hvarf skyndilega eina nóttina og er mannræninginn ekki enn fundinn.

Þetta hljómar allt mjög spennandi þar sem þeir eru ennþá að uppfæra síðuna frá því að þeir settu hana upp. Við hvetjum alla þá sem höfðu gaman að BioShock að fylgjast vel með þessum fréttum því hann á klárlega eftir að gera stóra hluti þegar hann lendir í haust.

Hér er  hlekkur að síðunni There’s Something in the Sea.

Kveðja,
Game Tíví

bioshock2Hvað varð eiginlega um stúlkuna?