- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Borat: Vavavúva! – GameTíví: Nýr Zelda DS leikur væntanlegur!

Það fyrsta sem Borat Sagdiyev segir þegar hann les þessa færslu verður eflaust “VAVAVÚVA!” á meðan hann baðar út höndunum af gleði. Nintendo hafa nefnilega farið þvert á allar fullyrðingar um að nýr Zelda leikur yrði ekki afhjúpaður á Game Developers Conference sem nú fer fram í San Fransisco.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks var afhjúpaður af Satoru Iwata, forseta fyrirtækisins, á GDC nú fyrir skömmu, en leikurinn er væntanlegur á Nintendo DS seinna á árinu. Leikurinn fær listrænan innblástur frá Wind Waker á GameCube og Phantom Hourglass, en sjórinn hefur vikið fyrir grænni jörð og lestarteinum og risastórri fallbyssu.

Ef marka má stiklu sem sýnd var úr leiknum þá má búast við leik afar svipuðum The Phantom Hourglass. Sá leikur var næstum því fullkominn – að musteri sjávarkonungsins undanskildu, auðvitað.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks er væntanlegur á Nintendo DS seinna á þessu ári, ef vel viðrar í Evrópu.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

0 Responses to “Borat: Vavavúva! – GameTíví: Nýr Zelda DS leikur væntanlegur!”


Comments are currently closed.