- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2009

Smá getraun…

Engin verðlaun að þessu sinni,
bara heiðurinn að vera fyrstur til að svara rétt 8)

Úr hvaða leik er þetta:

Kv. Game Tíví.

Ratchet & Clank mæta aftur í nýjum leik í haust

Á síðasta ári gáfu Insomniac Games út litla viðbót fyrir Ratchet & Clank seríuna eða Quest for Booty sem var beint framhald á eftir Tools of Destruction. Leikurinn skartaði 3-4 klukkustunda spilun og þótti frekar stuttur miðað við aðra leiki í seríunni en var seldur á vægu verði fyrir það. Í lok leiksins mátti sjá mynd sem á henni stóð „ævintýrið heldur áfram í haust 2009“ og þeir munu standa við það.

Í kvöld tilkynntu þeir væntanlegan leik sem heitir að þessu sinni Ratchet & Clank: A Crack in Time og hefur hann sögu sína á eftir Quest for Booty. Þú ferð með hlutverkið sem Ratchet þar sem hann er einn á báti að berjast fyrir því að frelsa vin sinn Clank frá hinum illa Dr. Nefarious sem fór meðal annars með aðalhlutverkið sem óvinur þeirra í þriðja leiknum í þessari frábæru seríu.

Félagarnir okkar þurfa meðal annars að ferðast á milli tíma til þess að sigrast á Dr. Nefarious og er gaman að segja fá því að Ratchet og Clank munu báðir rekast á eldri útgáfur þeirra í fyrri leikjunum sem komu út á PS2. Það verður gaman að sjá hvernig það fer allt saman í PS3 grafíkinni en þeir félagar munu sem sagt koma út í Blu-Ray útgáfu næsta haust.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Call of Duty: Modern Warfare 2 væntanlegur í nóvember

Call of Duty: Modern Warfare 2, arftaki Call of Duty 4, er væntanlegur á PS3, Xbox 360 og PC 11. nóvember næstkomandi ef marka má stiklu sem skoða má á vefsíðu leiksins. Hana má einnig sjá hér að neðan, þökk sé Joystiq.

Call of Duty 4 er einn besti skotleikur sem gerður hefur verið og það verður gaman að sjá hvort Infinity Ward tekst að endurtaka leikinn með Modern Warfare 2.

Kveðja,
GameTíví

Borat: Vavavúva! – GameTíví: Nýr Zelda DS leikur væntanlegur!

Það fyrsta sem Borat Sagdiyev segir þegar hann les þessa færslu verður eflaust “VAVAVÚVA!” á meðan hann baðar út höndunum af gleði. Nintendo hafa nefnilega farið þvert á allar fullyrðingar um að nýr Zelda leikur yrði ekki afhjúpaður á Game Developers Conference sem nú fer fram í San Fransisco.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks var afhjúpaður af Satoru Iwata, forseta fyrirtækisins, á GDC nú fyrir skömmu, en leikurinn er væntanlegur á Nintendo DS seinna á árinu. Leikurinn fær listrænan innblástur frá Wind Waker á GameCube og Phantom Hourglass, en sjórinn hefur vikið fyrir grænni jörð og lestarteinum og risastórri fallbyssu.

Ef marka má stiklu sem sýnd var úr leiknum þá má búast við leik afar svipuðum The Phantom Hourglass. Sá leikur var næstum því fullkominn – að musteri sjávarkonungsins undanskildu, auðvitað.

The Legend of Zelda: Spirit Tracks er væntanlegur á Nintendo DS seinna á þessu ári, ef vel viðrar í Evrópu.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

GDC09: Crytek sýna brot úr CryENGINE 3

Það er ekki hægt að neita því að Crysis þykir einn af flottari leikjum sem hafa komið út á einkatölvurnar hvað varðar grafík leiksins. Grafíkin er sögð vera það öflug að leikurinn gæti aldrei  verið spilaður á Xbox360 né Playstation 3 eins og hann leggur sig í PC útgáfunni. Crysis keyrir á CryENGINE 2 grafíkvélinni sem var hönnuð af Crytek fyrirtækinu en þeir eru alls ekki hættir að kreista getu vélbúnaðarins á þessu stigi.

Þessa vikuna fer fram GDC sýningin eða „Game Developers Conference“ þar sem leikjahönnuðir koma saman og sýna úr væntanlegum leikjum. Crytek tóku sig til og sýndu brot úr nýrri grafíkvél sem þeir hafa verið að þróa og heitir hún CryENGINE 3, sem er auðséð næsta skref á eftir CryENGINE 2. Þeir gáfu út myndband sem sýnir úr leik sem gæti verið Crysis 2 en er þó ekki staðfest.

Ef skoðað er myndbandið fyrir neðan að þá er þetta engin smá vél. CryENGINE 3 er núna þegar tilbúin og þurfum við aðeins að bíða eftir leik til þess að keyra vélina áfram. Gaman er að segja frá því að CryENGINE 3 mun styðja leiki á PC, PS3 og Xbox360.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Need For Speed: SHIFT kemur út um miðjan september

Það hefur verið hefð hingað til síðustu árin að gefa út nýjan Need For Speed leik í lok hvers árs og því verður auðvitað ekki breytt með þessu ári. EA hafa sett upp áætlaða dagsetningu fyrir komandi leik sem heitir að þessu sinni Need For Speed: SHIFT. Áætlað er að leikurinn komi út í Evrópu þann 18. september næstkomandi, fjórum dögum á undan Bandaríkjunum sem fær leikinn 22. september.

Að þessu sinni munu þeir einbeita sér að raunveruleikanum, það er að segja gera leikinn sem raunverulegastan. Need For Speed: SHIFT mun skarta gáfuðu “physics” kerfi sem lætur okkur finna fyrir hverju höggi. Einnig verður ökumaðurinn nákvæmari og mun hann bregðast betur við kringumstæðunum. EA vonast til þess að þetta muni draga okkur nær raunveruleikanum, með því að upplifa stjórnklefann á raunverulegan hátt.

Við hvetjum auðvitað Need For Speed aðdáendur að fylgjast vel með þessum þegar nær að dregur. Vonandi mun þessi leikur lífga upp á seríuna því það er alltaf eitthvað sem vantar upp á í leikina, þó þeir seljist mjög vel.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Wii Fit hefur selst betur en heitar lummur… og Halo 3

Þrátt fyrir að vera 30 dollurum dýrari og 8 mánuðum skemur á markaðnum en Halo 3 hefur Wii Fit tekist hið ótrúlega: Að seljast í meira en 6 milljónum eintaka og þar með skáka Halo 3, sem seldist í 5.9 milljónum eintaka.

Þessi velgengi Wii Fit undirstrikar ekki bara velgengi Nintendo Wii, heldur einnig hversu stór “casual” markaðurinn er. Það er augljóslega gríðarlegt fjármagn sem fólk er til í að reiða fram í þeim hluta geirans, þrátt fyrir að sá hópur kaupi færri leiki á haus en harðkjarna leikjaspilendur.

Það verður spennandi að sjá í hversu mörgum eintökum Wii Fit hefur selst þegar Nintendo Wii og leikurinn verða komin til ára sinna. Hver veit nema þau verði fleiri en 10 milljón?

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
GameTíví


Max Payne 3 væntanlegur í vetur

Rockstar droppuðu svakalegri bombu í dag þegar þeir afhjúpuðu nýjasta leikinn í Max Payne seríunni. Það er liðinn þónokkuð langur tími síðan annar leikurinn kom út og það voru ekki allir sem bjuggust við þriðja leiknum. En nú hefur það sem sagt verið staðfest.

Í Max Payne 3 er Payne aðalhetjan búinn að eldast um nokkur ár, búinn að yfirgefa lögregluna og New York borg, og orðinn þreyttari á heiminum og svartsýnni en nokkru sinni fyrr. Leikurinn segir sem sagt frá dapurri sögu Payne eftir atburði Max Payne 2.

Max Payne 3 mun koma út á PC, PlayStation 3 og Xbox 360 næsta vetur, frekar fljótt miðað við að annar leikur frá Rockstar, LA Noir, hefur verið í limbói í þónokkur ár og ekkert hefur heyrst af honum… magnað hvað hlutir eru frábrugðnir.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví


Max Payne verður í hærri upplausn í þriðja leiknum.

2K Games hafa breytt titlinum í BioShock 2 [Uppfært]

Þeir sem hafa klárað BioShock leikinn á PS3 leikjatölvunni hafa væntanlega tekið eftir því að framleiðendur leiksins hafa sett inn auka “teaser” myndband sem var ekki að finna í PC og Xbox 360 útgáfu leiksins. Myndbandið gaf spilendum mjög fáar vísbendingar um næsta leik en þar mátti meðal annars finna að næsti leikur fengi nafnið BioShock 2: Sea of Dreams.

Tíminn hefur svo sannarlega breyst frá þeim dögum því að 2K Games tilkynntu í dag að þeir ætla að breyta nafni leiksins yfir í BioShock 2 og sleppa þar með „Sea of Dreams“. Þeir vildu samt sem áður ekkert tjá sig um hvað fólst í þeim breytingum. Okkar ágiskun er sú að þeir hafi gefið leiknum heitið of snemma eða þá að nafnið passi ekki við leikinn þar sem sjórinn er uppfylltur af martröðum, líkt og í fyrri BioShock.
Hvað sem verður úr því að þá styttist heldur betur í leikinn þar sem hann mun koma út á þessu ári. Í næstu viku verðu haldin GDC sýning þar sem framleiðendur úr ýmsa fyrirtækja munu koma saman og sýna úr væntanlegum leikjum og öðru tengt tölvuleikjum. Það verður spennandi að sjá hvað 2K Games ætla að sýna úr og vonandi fáum við að vita meira um BioShock 2.

Heimildir: Joystiq

Uppfært: Svo virðist vera að 2K Games hafi hætt við að hætta við „Sea of Dreams“ undir titilinn. Samkvæmt eurogamer.net, að þá hafa þeir sagt að einhver hafi verið að láta þau orð flakka á netið og hreinlega verið að bulla. Þannig að næstkomandi leikur í þessari seríu mun þar með halda nafninu BioShock 2: Sea of Dream.

Kveðja,
Game Tíví

Game Tíví komið á Facebook

Þá erum við mættir á fésið!

Kv. Game Tíví