Til að byrja með að þá hafa Sony staðfest nýjan Rock Band leik sem mun koma út í fyrsta skiptið fyrir lófatölvurnar, eingöngu fyrir PSP vélina. Það er erfitt að ímynda sér Rock Band á PSP en Guitar Hero heppnaðist mjög vel á Nintendo DS og höfum við trú á Harmonix’s til að skapa eitthvað nýtt fyrir PSP vélina.
Fyrir þá sem höfðu gaman að Assassin’s Creed á leikjatölvunum geta heldur betur verið glaðir í bragði, því nú er væntanlegur nýr leikur í Assassin’s Creed seríunni sem verður hannaður sérstaklega með PSP vélina í huga. Ekki er vitað hvort hann tengist gömlu leikjunum að einhverju leiti en eitt er víst að það verður mikið fjör þegar Altaïr mætir aftur til leiks.
Rétt eftir að LittleBigPlanet kom út fyrir PS3 spruttu upp orðrómar um það að PSP útgáfa af leiknum væri í vinnslu og þeir reyndust vera sannir eftir allt saman. Media Molecule eru um þessar mundir að hanna LittleBigPlanet leik sem byggir á þeim sömu grundvallaratriðum og fyrri leikurinn, spila, byggja og deila. Leikurinn mun koma út á þessu ári fyrir PSP og verður spennandi að sjá hvernig hann mun spilast á þeirri vél.
PSP ætlar greinilega að gefa PS3 ekkert eftir því nú er nýr MotorStorm leikur væntanlegur á vélina og heitir að þessu sinni Motorstorm: Arctic Edge. Að þessu sinni fá spilendur að spreyta sig í nýju umhverfi í Alaska þar sem allir vegir liggja undir köldum klaka og ný föllnum snjó. Motorstorm: Arctic Edge verður einnig fáanlegur á PS2 leikjatölvuna.
Og síðast en ekki síst, að þá mun PSP vélin fá nýtt útlit í væntanlegum Hannah Montana PSP pakka. PSP vélin fær að þessu sinni nýjan lit, lillablár ásamt Hannah Montana takt leik. Einnig fylgja með þættirnir á UMD í pakkanum og höfðar pakkinn örugglega aðallega fyrir stelpur.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví



Hvenær ætlið þið að fjalla um Darkfall (www.darkfallonline.com) hann er búinn að vera í þróun síðan 2003 (hugsanlega fyrr) og það er verið að setja upp fyrstu serverana í dag, þetta er MMORPG leikur, það væri gaman að fá smá umfjöllun um hann
PSP-ið er ekkert öðruvísi.
QUOUTE Hvenær ætlið þið að fjalla um Darkfall (www.darkfallonline.com) hann er búinn að vera í þróun síðan 2003 (hugsanlega fyrr) og það er verið að setja upp fyrstu serverana í dag, þetta er MMORPG leikur, það væri gaman að fá smá umfjöllun um hanQUOUTE var í beta’inu, hann er ekki skemmtilegur.
dkgksdfjlk
hjksjg
:3
heyrðu ég á PSP en mér vantar Hleðslutæki fyrir hana ég fór inná http://www.elko.is og http://www.bt.is en og það var ekki neitt hleðslutæki fyrir hana ef þið vitið eitthvað commentið til Baka Takk
Stefán skifaði:heyrðu ég á PSP en mér vantar Hleðslutæki fyrir hana ég fór inná http://www.elko.is og http://www.bt.is en og það var ekki neitt hleðslutæki fyrir hana ef þið vitið eitthvað commentið til Baka Takk
Amazon er líklegasti staðurinn :Þ