- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2009

Page 2 of 2

Dante’s Inferno verður svipaður God of War

Ýmsar upplýsingar um nýjustu afurð EA Redshore, Dante’s Inferno, sem byggður er á ljóðinu Divine Comedy eftir ítalska rithöfundinn Dante Alighieri, birtust í nýjasta tölublaði PSM3 Magazine. Þar er því haldið fram að það sé ansi mikill svipur með Dante’s Inferno og PS2 leikjunum God of War og God of War II.

Það er ekki nóg með það að hægt er að blanda saman léttum og þungum höggum og skapa þannig hin ýmsu kombó, líkt og í God of War, heldur missa óvinir einnig heilsu- og orkukúlur sem hlaða upp líf manns og galdraorku. Hægt verður að nota galdra gegn óvinum og henda þeim upp í loftið með vopnum sínum. Hljómar kunnuglega, ekki satt?

Ofan á það verða svokallaðir quick-time events, þar sem spilendur þurfa að ýta á sérstaka takka á réttum tíma til þess að sigra á óvinum, eins og til að mynda skrímsli á stærð við hús.

Það sem gerir leikina þó frábrugðna er að sjálfsögðu að Dante’s Inferno gerist ekki í Grikklandi til forna heldur í helvíti, þar sem allar verstu martraðir mannsins verða að veruleika. Þar verður líklega nóg af skrímslum til þess að drepa.

Dante’s Inferno er þróaður af EA Redwood Shores, sama fyrirtæki og færði okkur Dead Space. Leikurinn er væntanlegur á PS3, Xbox 360 og PC… einhvern tímann.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Í Game Tíví í kvöld kl. 19:20

Í þættinum í kvöld skoðum við sögu House of the Dead leikjanna, gagnrýnum Killzone 2 og Bangai O, skoðum græju vikunar, tvífara vikunnar og Robert Duval sýnir okkur hvernig Godfather 2 er talsettur.

Leikir sem við skoðum líka í þættinum:

GTA IV  The Lost and the Damned
Tekken 6
Rise of the Argonauts
Shellshock 2 Blood Trails
Tomb Raider Underworld Beneath the Ashes
Dragon Age Origin
Battlefield 1943
Halo Wars
Afro Samurai
Ultimate Alliance 2
Watchmen

Kv. Game Tíví.

Capcom staðfestir Dead Rising 2

Eftir að hafa reynt að fela leyndarmálið sitt í nokkrar vikur hafa Capcom loksins asnast til þess að afhjúpa framhaldið af Dead Rising, Dead Rising 2. Fyrri leikurinn var einungis til á Xbox 360 (en afar niðurvötnuð Wii útgáfa af honum er að vísu á leiðinni) en Dead Rising 2 mun koma út á PC, Xbox 360 og PlayStation 3.

Nýi leikurinn gerist nokkrum árum eftir atburði fyrri leiksins. Engum tókst að hefta útbreiðslu vírussins sem var að breyta öllum í uppvakninga og hefur honum nú tekist að breiða sér þvert yfir Bandaríkin.

Framleiðandi leiksins, Kanadíska fyrirtækið Blue Castle Games, sem áður hafa gert hafnaboltaleikinn The Biggs, lofar að taka seríuna upp á algjörlega nýtt stig og munu spilendur hafa tugþúsundi afturgöngur til þess að slátra. Sögusvið leiksins verður spilavítaparadísin Fortune City þar sem hægt verður að skoða hvern krók og kima. Og ef það er ekki nógu gott, þá eru ótal nýir hlutir til þess að nota sem vopna. Það verður áhugavert að sjá hversu marga frumlega hluti þeir geta bætt inn í flóruna því það var nú hægt að nota ansi mikið af frumlegum drápstólum í fyrri leiknum.

Ekki er vitað nákvæmlega hvenær Dead Rising 2 kemur, en hann er væntanlegur á PC, Xbox 360 og PlayStation 3.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Af þessu skjáskoti að dæma verður DR2 ein heljarinnar rokkveisla…

Epic endurbætir ranking kerfið í Gears 2

Epic Games ætla sér að gera stórar endurbætur á ranking kerfinu í Gears of War 2 í næstu uppfærslu sem kemur fyrir leikinn “einhvern tímann í framtíðinni.” Kerfið mun gefa öllum leikmönnum eiginleikastig í lok hvers leiks og fer fjöldi þeirra eftir frammistöðu þeirra í leikjum. Þegar spilendur safna ákveðið mörgum eiginleikastigum þá færast þeir upp um stig, en alls verða 99 stig til að klifra upp og því nóg að gera.

Kerfið verður náttúrulega balanserað svo ekki sé hægt að svindla á því, og þeir sem aftengjast í miðjum leik, hvort sem það er vísvitandi eður ei, missa stig, en þó ekki ef hýsandi aftengist. Þegar leik lýkur fá spilendur svo að vita hversu mörg stig þeir þénuðu í leiknum og hvað þeir eiga eftir til þess að ná næsta stigi.

Þegar næsta DLC (downloadable content) verður svo gefið út munu Epic tengja nýja ranking kerfið við achivement kerfi Xbox 360 svo fólk geti montað sig.

Í næstu uppfærslu munu einnig verða settir inn bottar sem munu taka við af spilendum sem detta út í liðaleik. Þeim mun verða bætt við inn í öll lið sem vantar 5 spilendur, svo ef tvö fjögurra manna lið eru að keppa fá þau tvö sitt hvorn bottann til þess spila með.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

    


Badass

24 framleiðendur hafa leyfi til að setja upp Home svæði

Sony birti í dag lista yfir 24 leikjaframleiðendur sem hafa sérstakt leyfi frá fyrirtækinu til þess að setja upp Home svæði í tengslum við tölvuleiki sína. Capcom og Electronic Arts eru bæði á listanum, en fyrirtækin tvö hafa nú þegar kynnt svæðin sín að einhverju leyti. Önnur stór fyrirtæki eru á listanum, en það eru m.a. Activision Blizzard, SEGA, Konami og Bandai Namco. Þá eru einnig nokkur óþekktari fyrirtæki á listanum, eins og GungHo og Nippon Ichi.

Það merkilega er að það vantar ýmis stór nöfn. Hvergi má finna útgáfurisann Square-Enix, en þónokkrir stórir leikir eru væntanlegir frá fyrirtækinu á næstunni. Þá eru 2K Games ekki á listanum, né heldur Atari.

Hér er svo allur listinn:

Atlus, Activision Blizzard, Acquire, Irem, EA, SNK, AQ Interactive, GungHo, Games Republic, Q Entertainment, Capcom, Koei, Hudson, Sega, Disney, D3, Spike, Genki, Nippon Ichi, Ubisoft, Bandai Namco, Paon, Tecmo, Konami. Samtals 24 fyrirtæki.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví