- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Koma God of War 3 og MAG á þessu ári?

Það getur vel verið að God of War 3 og MAG (Massive Action Game) komi út á þessu ári ef marka má fréttayfirlýsingu sem Sony gaf út í tilefni af útgáfu Killzone 2 og leikjabloggið Kotaku komst höndum yfir.

Þar kemur víst skýrt fram að God of War 3 muni koma út árið 2009 og sömuleiðis netskotleikurinn MAG, eða Massive Action Game, en hann var afhjúpaður á E3 á síðasta ári. Þessir tveir leikir bætast við ansi fallega flóru leikja sem væntanlegir eru á árinu, en meðal annara leikja sem væntanlegir eru á þessu ári eru Uncharted 2: Among Thieves, Heavy Rain og inFamous.

Þetta ár verður því algjör veisla fyrir PlayStation 3 eigendur því þetta þýðir að Killzone 2 verður einungis fyrsti stóri leikurinn af mörgum sem munu gleðja margan manninn.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví


Kratos mætir víst aftur á þessu ári.

4 Responses to “Koma God of War 3 og MAG á þessu ári?”


  • er hægt að láta tölvuna spila tröll og ent í lotr conquest

  • ..................... geisp

    Þarf en og aftur að þrýsta á ykkur til að setja þættina á netið!!!

  • EKKI nýja god of war

    nýji God of war leikurinn er víst bara 2 klukkustundir í spilun bara sonna vara við ekki verða of æstir!!en á á örugglega efir að kosta sonna 10 þúsund kall!!!

  • já okei og þú ert bara kominn með leikinn (sem er ekki tilbúinn) í hendurnar og getur sagt okkur hvað hann er langur í spilun? … þú ert fáfróður maður

Comments are currently closed.