Age of Conan ætlar að verða norska leikjaframleiðandanum Funcom ansi dýrt ævintýri ef marka má nýjustu fjárhagsskýrslu félagsins. Skýrslan nær eingöngu yfir fjórða ársfjórðung síðasta árs, en í henni kemur fram að fyrirtækið hafi tapað 23,3 milljónum dollara á þessu þriggja mánaða tímabili. Heildartap fyrirtækisins nemur um 33.8 milljónum dollara. Þetta eru engar smá tölur eins og yfirmaður fjármála fyrirtækisins komst að. Hann fékk reyndar svo mikið sjokk að hann sagði upp í kjölfarið.
Helsta ástæðan á bak við þessum fjárhagslegu hrakförum fyrirtækisins er heldur lægri fjöldi áskrifenda en þeir bjuggust upphaflega við. Segja sumir að fjöldinn hafi farið undir 100.000 notendur. Til gamans má geta að íslenski netleikurinn EVE Online hefur yfir 250.000 áskrifendur og var í þokkabót talsvert ódýrari í framleiðslu.
Funcom hefur úr einungis 38 milljónum dollara að spila það sem eftir er, en þeir eru bjartsýnni á þessu ári og búast við að græða á bilinu 6 til 8 milljónir dollara á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Við skulum vona að það takist svo þeir geti komið út sínum næsta leik, The Secret World.
Heimildir: 1UP.com

Age of Conan ætlar að verða Funcom ansi dýr.



AOC var bara fail miðað við WoW! WoW ftw