- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


American McGee’s Alice snýr aftur

Útgáfurisinn Electronic Arts og fyrirtæki hins sérstaka American McGee, Spicy Horse, hafa gert með sér samning þess efnis að Electronic Arts gefi út framhald af hinum klassíska American McGee’s Alice, en sá leikur naut mikillar hylli gagnrýnenda þegar hann kom út árið 2000.

American McGee’s Alice er byggður á ævintýrasögunum um Lísu í Undralandi eftir Lewis Caroll, en leikurinn gerist stuttu eftir seinna ævintýri hennar í Undralandi. Húsið hennar brennur til grunna og báðir foreldrar Lísu deyja í brunanum. Lísa fær stórt samviskubit í kjölfarið og reynir að fremja sjálfsmorð, en mistekst og er hún lögð inn á geðsjúkrahús með stjarfklofa. Nokkrum árum síðar býður hvíta kanínan henni aftur til Undralands þar sem hlutirnir eru ekki lengur eins og hún skildi við þá því Hjartadrottningin hefur tekið yfir völdin. Þarf Lísa að berjast í gegnum hið stjórnlausa Undraland með engan annan en Glottsýsluköttinn og hans torskiljanlegu ráðleggingar sér til hjálpar.

Nýi leikurinn hefur hlotið titilinn “The Return of American McGee’s Alice” en það er þó ekki víst hvort það sé endanlegur titill leiksins. Að sögn framleiðenda leiksins mun leikurinn ekki koma út í bráð, en það er þó staðfest að hann er á leiðinni, eitthvað sem ætti að gleðja marga aðdáendur fyrri leiksins.

Heimildir: Edge Magazine

Kveðja,
GameTíví


Hvíta kanínan og Glottsýslukötturinn eru allt öðruvísi í American McGee’s Alice en í Disney útgáfunni af Lísu í Undralandi.

0 Responses to “American McGee’s Alice snýr aftur”


Comments are currently closed.