- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2009

Sannkölluð veisla framundan fyrir PSP eigendur

Já, þið lásuð rétt! Sony gáfu út nýja fréttatilkynningu í kvöld þar sem PSP lófatölvan er aðeins tekin fyrir í þetta skiptið hvað varðar útgáfudag leikja og væntanlegt útlit hennar. Þetta ár verður spennandi fyrir PSP eigendur og hér fyrir neðan má sjá aðeins brot af því besta sem verður fáanlegt fyrir vélina á þessu ári.

Til að byrja með að þá hafa Sony staðfest nýjan Rock Band leik sem mun koma út í fyrsta skiptið fyrir lófatölvurnar, eingöngu fyrir PSP vélina. Það er erfitt að ímynda sér Rock Band á PSP en Guitar Hero heppnaðist mjög vel á Nintendo DS og höfum við trú á Harmonix’s til að skapa eitthvað nýtt fyrir PSP vélina.

Fyrir þá sem höfðu gaman að Assassin’s Creed á leikjatölvunum geta heldur betur verið glaðir í bragði, því nú er væntanlegur nýr leikur í Assassin’s Creed seríunni sem verður hannaður sérstaklega með PSP vélina í huga. Ekki er vitað hvort hann tengist gömlu leikjunum að einhverju leiti en eitt er víst að það verður mikið fjör þegar Altaïr mætir aftur til leiks.

Rétt eftir að LittleBigPlanet kom út fyrir PS3 spruttu upp orðrómar um það að PSP útgáfa af leiknum væri í vinnslu og þeir reyndust vera sannir eftir allt saman. Media Molecule eru um þessar mundir að hanna LittleBigPlanet leik sem byggir á þeim sömu grundvallaratriðum og fyrri leikurinn, spila, byggja og deila. Leikurinn mun koma út á þessu ári fyrir PSP og verður spennandi að sjá hvernig hann mun spilast á þeirri vél.

PSP ætlar greinilega að gefa PS3 ekkert eftir því nú er nýr MotorStorm leikur væntanlegur á vélina og heitir að þessu sinni Motorstorm: Arctic Edge. Að þessu sinni fá spilendur að spreyta sig í nýju umhverfi í Alaska þar sem allir vegir liggja undir köldum klaka og ný föllnum snjó. Motorstorm: Arctic Edge verður einnig fáanlegur á PS2 leikjatölvuna.

Og síðast en ekki síst, að þá mun PSP vélin fá nýtt útlit í væntanlegum Hannah Montana PSP pakka. PSP vélin fær að þessu sinni nýjan lit, lillablár ásamt Hannah Montana takt leik. Einnig fylgja með þættirnir á UMD í pakkanum og höfðar pakkinn örugglega aðallega fyrir stelpur.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Funcom í slæmum fjárhagsvanda vegna Age of Conan

Age of Conan ætlar að verða norska leikjaframleiðandanum Funcom ansi dýrt ævintýri ef marka má nýjustu fjárhagsskýrslu félagsins. Skýrslan nær eingöngu yfir fjórða ársfjórðung síðasta árs, en í henni kemur fram að fyrirtækið hafi tapað 23,3 milljónum dollara á þessu þriggja mánaða tímabili. Heildartap fyrirtækisins nemur um 33.8 milljónum dollara. Þetta eru engar smá tölur eins og yfirmaður fjármála fyrirtækisins komst að. Hann fékk reyndar svo mikið sjokk að hann sagði upp í kjölfarið.

Helsta ástæðan á bak við þessum fjárhagslegu hrakförum fyrirtækisins er heldur lægri fjöldi áskrifenda en þeir bjuggust upphaflega við. Segja sumir að fjöldinn hafi farið undir 100.000 notendur. Til gamans má geta að íslenski netleikurinn EVE Online hefur yfir 250.000 áskrifendur og var í þokkabót talsvert ódýrari í framleiðslu.

Funcom hefur úr einungis 38 milljónum dollara að spila það sem eftir er, en þeir eru bjartsýnni á þessu ári og búast við að græða á bilinu 6 til 8 milljónir dollara á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Við skulum vona að það takist svo þeir geti komið út sínum næsta leik, The Secret World.

Heimildir: 1UP.com


Age of Conan ætlar að verða Funcom ansi dýr.

Koma God of War 3 og MAG á þessu ári?

Það getur vel verið að God of War 3 og MAG (Massive Action Game) komi út á þessu ári ef marka má fréttayfirlýsingu sem Sony gaf út í tilefni af útgáfu Killzone 2 og leikjabloggið Kotaku komst höndum yfir.

Þar kemur víst skýrt fram að God of War 3 muni koma út árið 2009 og sömuleiðis netskotleikurinn MAG, eða Massive Action Game, en hann var afhjúpaður á E3 á síðasta ári. Þessir tveir leikir bætast við ansi fallega flóru leikja sem væntanlegir eru á árinu, en meðal annara leikja sem væntanlegir eru á þessu ári eru Uncharted 2: Among Thieves, Heavy Rain og inFamous.

Þetta ár verður því algjör veisla fyrir PlayStation 3 eigendur því þetta þýðir að Killzone 2 verður einungis fyrsti stóri leikurinn af mörgum sem munu gleðja margan manninn.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví


Kratos mætir víst aftur á þessu ári.

American McGee’s Alice snýr aftur

Útgáfurisinn Electronic Arts og fyrirtæki hins sérstaka American McGee, Spicy Horse, hafa gert með sér samning þess efnis að Electronic Arts gefi út framhald af hinum klassíska American McGee’s Alice, en sá leikur naut mikillar hylli gagnrýnenda þegar hann kom út árið 2000.

American McGee’s Alice er byggður á ævintýrasögunum um Lísu í Undralandi eftir Lewis Caroll, en leikurinn gerist stuttu eftir seinna ævintýri hennar í Undralandi. Húsið hennar brennur til grunna og báðir foreldrar Lísu deyja í brunanum. Lísa fær stórt samviskubit í kjölfarið og reynir að fremja sjálfsmorð, en mistekst og er hún lögð inn á geðsjúkrahús með stjarfklofa. Nokkrum árum síðar býður hvíta kanínan henni aftur til Undralands þar sem hlutirnir eru ekki lengur eins og hún skildi við þá því Hjartadrottningin hefur tekið yfir völdin. Þarf Lísa að berjast í gegnum hið stjórnlausa Undraland með engan annan en Glottsýsluköttinn og hans torskiljanlegu ráðleggingar sér til hjálpar.

Nýi leikurinn hefur hlotið titilinn “The Return of American McGee’s Alice” en það er þó ekki víst hvort það sé endanlegur titill leiksins. Að sögn framleiðenda leiksins mun leikurinn ekki koma út í bráð, en það er þó staðfest að hann er á leiðinni, eitthvað sem ætti að gleðja marga aðdáendur fyrri leiksins.

Heimildir: Edge Magazine

Kveðja,
GameTíví


Hvíta kanínan og Glottsýslukötturinn eru allt öðruvísi í American McGee’s Alice en í Disney útgáfunni af Lísu í Undralandi.

Hönnuður Super Smash Bros. vinnur að nýjum leik

Masahiro Sakurai er þekktastur fyrir að hafa gert Super Smash Bros. Brawl leikinn fyrir Nintendo Wii og einnig hinn vinalega Kirby. Nú hefur hann í samstarfi við Nintendo stofnað nýtt fyrirtæki og nefnist það Project Sora þar sem þeir vinna að nýjum leik.

Þann 22. janúar síðastliðin var Project Sora stofnað og eiga Nintendo mest allan hlut í því. Ekki er er vitað hvers konar leikur þetta verður en forstjóri Nintendo, Satoru Iwata hefur látið þau orð falla að þetta verður ekki annar Super Smash Bros. leikur.

Masahiro Sakurai vildi sjálfur ekkert tjá sig um leikinn en sagði þó: „Ég get lofað þeirri upplifun sem er ólík öllu þú hefur spilað fram til dagsins í dag.“.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Masahiro Sakurai er spenntur yfir nýja leiknum.

Nintendo DSi kemur 3. apríl

Á tímum þar sem hlutir koma oftast út síðast í Evrópu hefur Nintendo komið öllum í opna skjöldu: Nýjasta útgáfan af Nintendo DS, DSi, mun koma út 3. apríl næstkomandi, tveimur dögum áður en vélin kemur út í Norður-Ameríku. Tilkynning þess efnis kom út einungis degi eftir að útgáfa vélarinnar hafi verið staðfest vestanhafs.

Vélin mun koma í tveimur litum, svörtum og hvítum. Það er ýmislegt sem gerir vélina ansi frábrugðna DS Lite sem kom út fyrir nokkrum árum. Fyrst ber að nefna að vélin er þynnri, hefur stærri og betri skjái, rauf fyrir SD minniskort, tvær myndavélar með hreyfiskynjurum og innbyggt flash-minni. Geri aðrir betur.

Þá eru einnig nokkur forrit sem eru sérstaklega hönnuð fyrir DSi, eins og hljóðupptökuforrit, myndvinnsluforrit og aðgang að netverslun þar sem hægt er að hlaða niður tölvuleikjum fyrir vélina smáu. Hún spilar einnig tónlist og myndbönd fyrir þá sem hafa áhuga, og hægt er að vafra um netið á henni. Þá fylgir PictoChat að sjálfsögðu með vélinni eins og öðrum DS vélum.

Því miður er þó ekki hægt að spila Game Boy Advance leiki eins og á öðrum vélum, en DS leikir virka fínt, eitthvað sem er að sjálfsögðu sjálfsagt.

Nintendo eru þó enn afar þöglir yfir verðinu, en vélin mun fara á 169 dollara vestanhafs. Ef þeir nota fyrri aðferðafræði sína þá verður vélin líkast til á 169 evrur í Evrópu. Guð einn má vita hvað verður heima á Íslandi þegar vélin loksins lendir.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Svört DSi… nammi.

Í Game Tíví í kvöld

Í þættinum í kvöld förum við í Prince of Persia raunveruleik, sjáum viðtal við 50 cent og félaga, dæmum leikina Street Fighter 4 og Lord of the Rings Conquest. Skoðum heitustu PC leikina sem eru væntanlegir. Og kíkjum á “nýjan” RETRO leik.

Aðrir leikir í þættinum:

God of War 3
Resident Evil 5
Mario & Sonic Olympic Winter Games
Flower
Monsters vs. Aliens
WWE Legends of Wrestlemania
C&C Red Alert 3 Uprising
Starcraft2
Rage
Sims 3
Borderlands
Dragon Age Origins
Dawn of War 2
Destroy All Humans Path of the Furon

Kv. Game Tíví

Black Mesa Mod væntanlegt seint á þessu ári

Fyrir nokkrum mánuðum síðan síðan sýndum við ykkur úr nýju “mod-i” sem er verið að vinna að fyrir Half Life aðdáendur. Þetta mod heitir á því skemmtilega nafni Black Mesa og er það endurgerð af Half Life 1 leiknum í Source grafík vélinni. Yfir hönnuður á bak við mod-ið var spurður af því hvenær þeir ætla að gefa það út og hafði hann þetta að segja:

„Ég ætla ekki að gefa upp nákvæmari dagsetningu annað en “seint á þessu ári”. Eins og allir hönnuðir, þá viljum við troða inn  eins mögnuðu og hægt er áður en við sendum þetta út, en við munum ekki tefja þetta lengur nema það sé alveg nauðsynlegt.“ – sagði Carlos Montero.

Út frá því sem komið er að þá lítur þetta virkilega vel út eins og staðan er í dag. Við vonum að sjálfsögðu að þetta komi sem best út þegar þetta verður full klárað því það er ekkert grín að breyta Half Life 1 leiknum þar sem hann hefur staðið uppi mjög lengi og hefur hlotið miklar vinsældir í gegnum tíðina.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
Game Tíví

Sony gefa út nýjan trailer fyrir God of War 3

Það eru ábyggilega margir sem bíða eftir þriðja og seinasta kaflanum í God of War seríunni. Sony gáfu út nýjan trailer fyrir God of War 3 í dag og lítur hann virkilega vel út frá honum. Allur trailerinn sýnir úr spilun leiksins og er ljóst að hann eigi eftir að líta vel út þegar hann verður gefinn út í mars árið 2010.

Kveðja,
Game Tíví

Mario og Sonic mæta aftur til leiks á Vetrarólympíuleikunum

Fyrir rúmu ári síðan mættu Mario og Sonic í fyrsta skiptið saman í leik þar sem þeir kepptu um gullverðlaunin á ólympíuleikunum. Nú hafa hönnuðir leiksins, Sega staðfest það að þeir ætli að gefa út annan slíkan leik þar sem Mario og Sonic munu koma aftur saman en í þetta skiptið á vetrarólympíuleikunum.

Mario & Sonic at the Olympics seldist í um það bil 10 milljónum eintökum á bæði Wii og DS og sjá framleiðendur leiksins ekki annað fært en að gera annan leik með sömu persónum. Leikurinn skartar allar helstu persónur úr báðum leikjunum þar sem þau koma saman að keppa í hinum ýmsum íþróttagreinum.

Nintendo stýringarnar spila mikið inn í leikinn til þess að gera hann ennþá skemmtilegri og er gaman að segja frá því að þessi leikur mun styðja við Wii Balance Board undir snjóbretta greinar og fleira. Fyrir þá sem höfðu gaman að fyrri leiknum ættu að kíkja á þennan þegar hann lendir síðar á þessu ári fyrir Nintendo Wii og DS.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví