- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


THQ gera fleiri de Blob leiki

Það hafa því miður ekki komið margir áhugaverðir Nintendo Wii leikir undanfarna mánuði sem heilla hjörtu Nintendo manna en þó eru nokkrir sem skara fram úr öðrum. Til að mynda fékk leikurinn de Blob góðar viðtökur frá okkur Game Tíví bræðrum og hefur hann selst mjög vel, víða um heiminn að mati THQ sem gerðu meðal annars leikinn.

Nú hafa THQ staðfest það að þeir hyggjast gera fleiri de Blob leiki þar sem hann seldist vel. Leikurinn var gefinn út í september í fyrra og snýst út á það að mála heiminn þar sem að liturinn var fjarlægður. Þú færð tækifæri á að hoppa og skoppa um byggingar og aðra hluti þar sem þú gefur umhverfinu lit um leið og þú kemur við það.

Það er óhætt að mæla með de Blob fyrir Nintendo Wii eigendur þar sem leikurinn hefur fengið allt að 82% í dóma að mati gamerankings. Fyrir þá sem þóttu gaman að leiknum ættu að bíða spenntir eftir næsta leik en það verður samt sem áður ekki á næstunni.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Grænt, grænt, grænt, er grasið út á túni…

1 Response to “THQ gera fleiri de Blob leiki”


Comments are currently closed.