Spurt er, úr hvaða leik er þetta screenshot:

“smá vísbending, þetta er MMO leikur…”
Engin verðlaun í þetta sinn, bara heiðurinn að hafa fattað þetta fyrstur 
Gangi ykkur vel,
kv. Game Tíví.
Spurt er, úr hvaða leik er þetta screenshot:

“smá vísbending, þetta er MMO leikur…”
Engin verðlaun í þetta sinn, bara heiðurinn að hafa fattað þetta fyrstur 
Gangi ykkur vel,
kv. Game Tíví.
Frá því að Super Mario Bros kom út árið 1985 hefur verið ansi erfitt að bæta sölumet hans og er það nánast ómögulegt út af vinsældum leiksins. Samkvæmt VGChartz hefur nýr leikur tekið við toppsætinu yfir best seldi leikur allra tíma og er það enginn annar en Wii Sports á Nintendo Wii tölvunni sem tekur við.
Super Mario Bros seldist í 40.24 milljónum eintökum sem er næst besti árangur tölvuleiks um þessar mundir en Wii Sorts hefur náð að seljast í 40.52 milljónum eintökum samkvæmt VGChartz. Þeir eiga báðir sameiginlegt að hafa fylgt með vélunum í pakka frá upphafi sölu þeirra. Wii Sports fylgir ennþá með hverri seldri Wii vél í dag nema í Japan og Suður-Kóreu, samt skiptir það engu máli því hann rokselst í þeim löndum.
Einhvern veginn höfðum við á tilfinningunni að enginn leikur ætti eftir að toppa hinn góðkunnuga Super Mario Bros en Nintendo hafa svo sannarlega gert það enn og aftur.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Þessir orðrómar hófust allir fyrir stuttu út frá breska útvarpsþættinum Radio One þar sem hönnuðir Lego leikjanna, Traveller’s Tales sögðu frá því að nýr Lego leikur mun koma út á þessu ári. Leikjafréttasíðan VG247 heldur því fram að næsti leikur verður Lego útgáfa af Rock Band seríunni sem verður gerður í samstarfi með EA mönnum.
Ekkert hefur verið staðfest ennþá hvort orðrómarnir reynast sannir eða ekki. Það er allavega ljóst að það mun koma út nýr Lego leikur á þessu ári og geta aðdáendur leikjanna farið að hlakka til.
Heimildir: Kotaku
Kveðja,
Game Tíví

Nýleg comment