- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Enginn Fable 2 fyrir PC í bráð

Undanfarnar vikur hafa kviknað upp orðrómar um að hinn eftirsótti leikur, Fable 2 muni láta ljós sitt skína einn góðan veðurdag á PC vélunum. Líkt og tíðkaðist með fyrri leikinn að þá leið eitt ár frá því að Fable: The Lost Chapters var gefinn út fyrir PC eftir að hafa komið út, eingöngu fyrir Xbox.

Marga dreymir um að spila þetta meistaraverk á PC og óska þess að leikurinn verði færður yfir á þær vélar en því miður verður ekki úr því í bráð þar sem einn af starfsmönnum Lionhead lét þessi orð falla: „Við erum ekki að vinna að PC útgáfu af Fable II… Ef það breytist munum við sjá til þess að láta ykkur vita af því á síðunum okkar“.

Eins og staðan er í dag að þá er Fable 2 aðeins fáanlegur fyrir Xbox360 og hvetjum við fólk til þess að kynna sér leikinn ef þeir eiga hann ekki nú þegar.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tívi

2 Responses to “Enginn Fable 2 fyrir PC í bráð”


  • Gunnar Ómarsson

    lionhead eiga öruglega eftir að setja hann á PC eftir sirka 1-2 ár eins og þeir gerðu við fable TLC (TLC the lost chapters) því þannig eru microsoft, þeir neiða alla sem gera leiki með þeim að halda leiknum á eini tölvu bara till þess að neiða fólk að kaupa Xbox 360. og það hefur verið sagt að ef þeir setja hann á PC að PC talvan verði að hafa windows vista. en maður verður bara að vona það besta.

  • Hvað er málið með að láta fólk bíða í heilt ár eftir að fá leikinn á pc?

Comments are currently closed.