Kveðja,
Game Tíví
Monthly Archive for January, 2009

Þá er það staðfest, Dead Rising 2 kemur á bæði PS3 og Xbox360. Leikurinn er væntanlegur á árinu og til að vera góðir við Xbox360 eigendur sem spiluðu fyrsta leikinn þá fá þeir aukaefni sem verður ekki gefið út fyrir PS3 útgáfuna. Nú er bara að gera sig kláran fyrir meiri hasar með uppvakningum, það klikkar aldrei 
Kv. Game Tíví.
Marga dreymir um að spila þetta meistaraverk á PC og óska þess að leikurinn verði færður yfir á þær vélar en því miður verður ekki úr því í bráð þar sem einn af starfsmönnum Lionhead lét þessi orð falla: „Við erum ekki að vinna að PC útgáfu af Fable II… Ef það breytist munum við sjá til þess að láta ykkur vita af því á síðunum okkar“.
Eins og staðan er í dag að þá er Fable 2 aðeins fáanlegur fyrir Xbox360 og hvetjum við fólk til þess að kynna sér leikinn ef þeir eiga hann ekki nú þegar.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tívi

Nú hafa THQ staðfest það að þeir hyggjast gera fleiri de Blob leiki þar sem hann seldist vel. Leikurinn var gefinn út í september í fyrra og snýst út á það að mála heiminn þar sem að liturinn var fjarlægður. Þú færð tækifæri á að hoppa og skoppa um byggingar og aðra hluti þar sem þú gefur umhverfinu lit um leið og þú kemur við það.
Það er óhætt að mæla með de Blob fyrir Nintendo Wii eigendur þar sem leikurinn hefur fengið allt að 82% í dóma að mati gamerankings. Fyrir þá sem þóttu gaman að leiknum ættu að bíða spenntir eftir næsta leik en það verður samt sem áður ekki á næstunni.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Grænt, grænt, grænt, er grasið út á túni…
Kv. Game Tíví

Game Tíví hefst aftur á SkjáEinum 5. febrúar.
Nú er bara að poppa og bíða spennt! 
Kv. Game Tíví.
Þeir sögðu ekki mikið um leikinn sjálfan annað en það að hann verður fáanlegur í haust á þessu ári fyrir PS3, Xbox360, Wii, PC og DS. Vonandi tekst þeim betur með þennan leik til þess að geta bætt upp með síðasta leik þeirra.
Heimildir: Joystiq
Square Enix tilkynntu á E3 sýningunni í fyrra að þeir myndu ekki byrja á Xbox360 útgáfu leiksins fyrr en að Playstation 3 útgáfan væri tilbúin. Það getur þýtt að Xbox360 eigendur þurfa að bíða enn lengur til þess að geta fengið leikinn á sínar vélar.
Mikil eftirvænting hefur verið í kringum þennan leik og miklar vonir hana bundið til hans, alveg frá því að Square Enix tilkynntu fyrst komu hans. En allt getur gerst á síðustu og verstu tímum þannig að við þurfum að halda í vonina enn lengur.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
Ghostbusters leikurinn hefur gengið í gegnum nokkra erfiðleika í gegnum árin þar sem fyrirtækið Sierra ætluðu að taka á sig það verk að gefa leikinn út en hættu svo við það. Activision-Blizzard tóku svo að sér að gera það verkefni en eitthvað gekk illa á þeim bæ líka þannig að Atari tóku svo við og munu gefa út leikinn.
Leikurinn verður fáanlegur á PC, PS3, Xbox360, Wii, PS2 og DS og munu allar útgáfurnar koma út á svipuðum tíma.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Við megum einnig búast við fleiri aukapökkum eða viðbótum á þessu ári fyrir leikinn þar sem EA ætlar að vera með uppákomur og tilkynna útgáfur fyrir Spore þetta árið.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
![]()



Nýleg comment