- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2008

Page 2 of 2

Uncharted 2 loksins afhjúpaður

Það hefur ekki verið neitt leyndarmál að framhald af Uncharted: Drake’s Fortune sé á leiðinni, en hingað til hafa framleiðendur leiksins, fyrirtækið Naughty Dog, hafa hins vegar ekki verið að tala mikið um það. Í janúarhefti tímaritsins Game Informer mun þó birtast 10 blaðsíðna umfjöllun um framhaldið, en það mun bera titilinn Uncharted 2: Among Thieves.

Hluti úr stiklu hefur verið birtur á netinu og sýnir hann Nathan Drake vera að þvælast í snjóstormi. Stiklan mun verða sýnd í fullri lengd á Spike TV Video Game Awards 12. desember næstkomandi. Hægt er að sjá stiklubrotið hér.

Nathan Drake er núna að feta í fótspor Marco Polo og því megum við hugsanlega búast við að ferðast með kappanum alla leiðina til Kína. Leikurinn mun innihalda allt sem sá gamli hafði ásamt því að bæta við feluleikspilun og príli.

Miðað við fyrri leikinn og önnur afrek Naughty Dog þá getum við bara búist við góðum leik!

Heimildir: 1UP.com

Kveðja,
GameTíví


Ég er mættur til að taka nöfn og tyggja tyggigúmmi… nei bíddu…

Tölvuleikjakönnun

Þessa daganna er háskólaneminn Bjarki Þór Jónsson að vinna að tölvuleikjakönnun sem hann ætlar að nota í BA ritgerð sína, sem fjallar um tölvuleikjamarkaðinn á Íslandi meðal annars.

Við Gametíví bræður hvetjum ykkur til að taka þátt svo sem skýrust mynd komi útúr þessari könnun :p

Slóðin á könnunina er :

http://www3.hi.is/~bthj1/leikjatolvur/

Heppnir þátttakendur geta unnið sér inn frían tölvuleik :haha: