Þeir eru margir notendurnir á Youtube og frá þeim kemur misgott efni. Einn af þessum notendum er ungur maður sem gengur undir nafninu brentalfloss, en hann sérhæfir sig í tölvuleikjatengdum myndböndum. Eitt af því sem hefur slegið í gegn hjá honum er að semja söngtexta við hin ýmsu tölvuleikjalög, en meðal þeirra laga sem hann hefur tekið fyrir er þemalagið úr Mega Man 3, sem sjá má hér fyrir neðan.



haha snilld
ég veit að þetta kemur þessum link ekkert við, en veit ekker hvenær sonic unleashed kemur… eg allavega helt hann kæmi i nov, en eg finn hann aldrei á netinu.. og eg er of latur til að fara ut i elko eða ekka og gá…. þannig, hvenær kemur hann??
Sonic Unleashed kemur út í þessari viku fyrir PS3, annars er hann kominn út fyrir hinar.