- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Fleiri kreppuleikir…ókeypis fjör og stuð !

Þessa vikuna bætum við Gametíví bræður við 4 nýjum kreppuleikjum.  Við viljum á sama tíma þakka viðtökurnar á þessum lið í þættinum og njótið vel :haha:

Skotleikir
Fyrri skotleikurinn þessa vikuna er leikurinn Tremulous, en þar keppa menn á netinu og blandar leikurinn saman hefðbundinni skotleikjaspilun með hlutverkaleikja elementum, en í Tremolous þarf bæði að skjóta og byggja..

Til að ná  í Tremulous skal dúndra sér inná : www.tremolous.net

http://tremulous.net/media/screenshots/98_full.jpg
Ef þú smælar framan í heiminn…

Seinni skotleikurinn þessa vikuna er leikurinn America’s Army, en þessi leikur var upphaflega hannaður sem æfingartól fyrir unga og upprennandi hermenn í Bandaríska hernum.  Hér er á ferðinni bullandi fjör..

Til að ná  í America’s Army skal tékka á : www.americasarmy.com

http://www.americasarmy.com/images/media/screenshots/800x600/ShootHouse1.jpg
Hefur einhver séð grænu stjörnuna mína ?

Hlutverkaleikir
Fyrri hlutverkaleikurinn þessa vikuna er leikurinn Dungeon Runners, en þar er á ferðinni hlutverkaleikur gerður af NCSoft, en þeir eru þekktastir fyrir Guild Wars leikina.  Hér búa leikmenn til persónur og djúsa sig í gegnum mega hart ævintýri.

Til að ná  í Dungeon Runners skal fara inná : www.dungeonrunners.com

http://www.dungeonrunners.com/downloads/image_gallery/pictures/9_25.jpg
Varið ykkur…ég er með vængi og túttur..

Seinni hlutverkeleikurinn er RuneScape, sem er heldur betur harður og gamall í hettunni.  Leikurinn spilast í netvafranum og því ekkert vesen.  Við mælum sérstaklega með þessum..

Til að ná  í RuneScape skal fara inná : www.runescape.com

http://www.geocities.com/runescape_atlantic/ac3_album/2004feb06/7.jpg
Velkomin á plánetu bláu gauranna með rauða hárið..

25 Responses to “Fleiri kreppuleikir…ókeypis fjör og stuð !”


Comments are currently closed.