Þessa vikuna bætum við Gametíví bræður við 4 nýjum kreppuleikjum. Við viljum á sama tíma þakka viðtökurnar á þessum lið í þættinum og njótið vel 
Skotleikir
Fyrri skotleikurinn þessa vikuna er leikurinn Tremulous, en þar keppa menn á netinu og blandar leikurinn saman hefðbundinni skotleikjaspilun með hlutverkaleikja elementum, en í Tremolous þarf bæði að skjóta og byggja..
Til að ná í Tremulous skal dúndra sér inná : www.tremolous.net

Ef þú smælar framan í heiminn…
Seinni skotleikurinn þessa vikuna er leikurinn America’s Army, en þessi leikur var upphaflega hannaður sem æfingartól fyrir unga og upprennandi hermenn í Bandaríska hernum. Hér er á ferðinni bullandi fjör..
Til að ná í America’s Army skal tékka á : www.americasarmy.com

Hefur einhver séð grænu stjörnuna mína ?
Hlutverkaleikir
Fyrri hlutverkaleikurinn þessa vikuna er leikurinn Dungeon Runners, en þar er á ferðinni hlutverkaleikur gerður af NCSoft, en þeir eru þekktastir fyrir Guild Wars leikina. Hér búa leikmenn til persónur og djúsa sig í gegnum mega hart ævintýri.
Til að ná í Dungeon Runners skal fara inná : www.dungeonrunners.com

Varið ykkur…ég er með vængi og túttur..
Seinni hlutverkeleikurinn er RuneScape, sem er heldur betur harður og gamall í hettunni. Leikurinn spilast í netvafranum og því ekkert vesen. Við mælum sérstaklega með þessum..
Til að ná í RuneScape skal fara inná : www.runescape.com

Velkomin á plánetu bláu gauranna með rauða hárið..
Nýleg comment