Fyrra metið átti fyrsti aukapakkinn eða Burning Crusade en hann náðist að seljast í 2.4 milljónum eintökum á fyrsta deginum. Leikurinn seldist best í Bandaríkjunum og hér í Evrópu og einnig nágranna löndum þeirra. Hann á hins vegar eftir að vera gefinn út í Kína en þá má búast við ennþá meiri söluhraða þegar hann kemur út þar loksins.
Alls eru um 11 milljónir spilarar sem spila í World of Warcraft heiminum nú í dag og eykst sá fjöldi ennþá allverulega. Burning Crusade aukapakkinn seldist í 3.5 milljónum eintökum á fyrsta mánuðinum en ef Wrath of the Lich King heldur sér á sama striki má búast við því að hann seljist í allt að 5 milljónum eintökum.
Það er greinilega nóg að gera fyrir Blizzard fyrirtækið og ber þeim mikið að fagna. Þeir vinna nú að nýjum netleik sem tengist ekki World of Warcraft. Það verður spennandi að sjá hvernig hann mun koma til með að líta út og verður engin vafi á því að sá leikur verður flottur þar sem einungis fagmenn í gerð netleikja sitja þar á verki.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Það er ekki annað hægt en að fagna eftir gífurlega langa biðröð.



þegar þú þið talið um nýjann netleik.. eruði þá að meina starcraft2?
Afsakið, við áttum við nýjan MMO-RPG leik sem er í sama anda og World of Warcraft. Það er samt sem áður ekki vitað hvernig hann mun koma til með að líta út.
???