- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for November, 2008

Page 2 of 2

WTF!

Sumt er bara of steikt til að orð fái því lýst, eins og þetta:



Kv. Game Tíví

Framhald af Supreme Commander í vinnslu

Einn stærsti herkænskuleikur sem kom út á síðasta ári var framtíðar leikurinn Supreme Commander sem fékk góðar einkunnir frá flestum leikjagagnrýnendum. Það voru Gas Powered Games sem unnu að honum og stóðu heldur betur vel að verki. Einnig sá THQ fyrirtækið um að færa okkur leikinn en eitthvað hefur breyst þar á bæ.

Square Enix tilkynntu í morgun að þeir myndu sjá um að gefa út næsta Supreme Commander leik og kom þá í ljós að leikur númer 2 væri í vinnslu. Einhver misskilningur var á því að THQ ættu hlut í leiknum en svo virtist ekki vera. Square Enix eru þekktastir fyrir að gera Final Fantasy leikina og hafa greinilega tekið góðar ákvarðanir við að hefja ný samstörf við önnur fyrirtæki.

Því miður hefur ekki enn komið í ljós hvenær Supreme Commander 2 mun verða gefinn út en vonandi verður ekki mjög löng bið að leiknum.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Game Tíví í kvöld kl. 19:30

Í þættinum verður sko nóg að gerast, við gerum magnaða nördatilraun og nördum upp Gillzenegger! Við fáum gestadómara til að fara yfir og dæma fyrir okkur Fallout 3, er hann eins góður og menn eru að tala um eða er hann bara toxic waste? Nörd vikunar mætir og við förum yfir alla helstu leiki, bæði nýútkomna og væntanlega, leiki eins og World of Warcraft: Wrath of the Lich King, Mirrors Edge, Valkyria Chronicles, Left 4 Dead og marga marga fleiri leiki.

Kv. Game Tíví

Ekki viltu að Skjáreinn hætti?

Skráðu þig á www.skjarinn.is/askorun

Svifbílar á leið til Paradísar borgar

Hönnuðir bílaleiksins Burnout Paradise, Criterion Games hafa staðið mjög vel að verki við að viðhalda leikinn og halda honum í topp ástandi. Þeir hafa gefið út reglulegar viðbætur fyrir leikinn og má þar nefna mótorhjól sem voru bætt við seinast og tókst þetta allt saman mjög vel til þess að gera leikinn ennþá skemmtilegri.

Nú á dögum tilkynntu þeir frá því að fimmti pakkinn fyrir leikinn er nú þegar í vinnslu og hlýtur hann heitið Legendary Cars Pack. Að þessu sinni kynna þeir bílinn Jansen 88 Special sem þótti afar góður árið 1980 og þykir ennþá mjög fallegur. Núna fá spilendur tækifæri á að svífa í gegnum Paradice borgina á sérstökum bílum á miklum hraða sem mun gera leikinn ennþá skemmtilegri. Menn þurfa aðeins að ýta á einn hnapp á fjarstýringunni og mun þá bíllinn taka á loft líkt og ekkert hafi gerst annað en að bíllinn tekur að svífa.

Alls verða fjórir bílar í boði í leiknum sem fá tækifæri á að svífa um borgina og eru þeir Jansen 88 Special eins og við nendum hér að ofan, Cavalry Bootlegger, Manhattan Spirit og síðast en ekki síst, GT Nighthawk.

Þetta á allt eftir að auka skemmtunargildi leiksins allverulega, en búast má við pakkanum einhvertímann næsta vor.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Nú fáum við loksins að upplifa atriði úr Back To The Future myndunum.